Fréttablaðið - 31.10.2009, Qupperneq 72
44 31. október 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Á morgun heldur áfram tónleikaröðin
15.15 í Norræna húsinu og þar verður
harpan í fyrirrúmi. Katie Buckley,
hörpuleikari Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, flytur þar einleiksverk fyrir
hörpu: Elegie pour la mort d’un Ber-
ger eftir franska tónskáldið og hörpu-
leikarann Bernard Andres sem notar
gjarnan framandi tækni í verkum
sínum allt frá því að klípa strengina
til þess að banka á hörpuna. Næst á
efnisskránni eru tvö næturljóð sem
renna saman í eina heild: hið fyrra eftir Alphonse
Hasselmans sem var samtímamaður Gabriels
Faure, en hið síðara eftir Rússann Mikhail Glinka.
Síðast þessara verka er Spænskur dans númer 1
úr óperunni La Vida Breve eftir Manuel De Falla í
umritun fyrir hörpu eftir Marcel Grandjany. Són-
öturnar tvær eru frá mjög ólíkum tímabilum: Sú
fyrri, eftir tónskáldið Johann Baptist Krumpholtz,
nefnist Sonata Comme Scene Pathetique Opus 16
bis. Sónatan er frábærlega vel skrifuð
í síðbarokkstíl. Síðari sónatan á efn-
isskránni er hörpusónatan eftir Paul
Hindemith. Hann skrifaði sónötuna
1939, á tímabili þegar hann skrifaði
sónötur fyrir nánast hvert hljóðfæri
sinfóníuhljómsveitarinnar. Hún er í
þremur þáttum og hefur þann ein-
staka eiginleika að hljóma nýstárleg
þrátt fyrir að vera rituð á tæknilega
hefðbundinn hátt.
Katie Buckley hóf nám í hörpuleik
átta ára gömul í Bandaríkjunum. Hún hefur komið
fram sem einleikari með mörgum hljómsveitum,
var með stöðu hörpuleikara við Brevard Music
Festival í Brevard í Norður-Karólínu, en 2005
var hún ráðin hörpuleikari Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. Katie lék með The World Philharmonic
Orchestra í París 2006. Katie er meðlimur í Duo
Harpverk, hörpu- og slagverksdúói sem hún stofn-
aði ásamt slagverksleikaranum Frank Aarnink. - pbb
Hörpuverk í mýri
TÓNLIST Katie Buckley
hörpuleikari
ath kl. 16.
Edda Erlendsdóttir píanóleik-
ari mun halda tónleika á Stokka-
læk í dag. Tónleikarnir eru haldnir
til að minnast 200 ára dánaraf-
mælis Haydns á þessu ári. Á dag-
skránni á Stokkalæk eru verk eftir
C.P.E. Bach, J. Haydn og F. Schu-
bert. Tónleikarnir verða endurtekn-
ir í Listasafni Íslands á miðvikudag,
í Laugarborg á fimmtudag og í nýju
menningarhúsi á Dalvík, Bergi, á
laugardag eftir viku.
> Ekki missa af
Hyllingartónleikum þeirra Eyfa
og félaga í Háskólabíói í kvöld
kl. 20. Eyfi og félagar ætla að
endurtaka leikinn og flytja öll
helstu lög hljómsveitarinnar
Eagles. Síðast komust færri
að en vildu og var uppselt á
tvenna tónleika. Eyfi er mikill
Eagles-aðdáandi og þessir
tónleikar eru hans leið til að
votta þessari frábæru hljóm-
sveit virðingu sína, sem hún
svo sannarlega verðskuldar.
Eyfa til fulltingis og aðstoðar
verða margir af okkar bestu
söng- og hljóðfæraleikurum
og er ekkert til sparað við að
gera tónleikana sem gjöfulasta
fyrir eyrað.
Undanfarið ár hafa konur af
erlendum uppruna hist í Borgar-
bókasafni Reykjavíkur einu sinni í
mánuði ásamt íslenskum kynsystr-
um sínum til að njóta félagsskap-
ar hver annarrar, deila reynslu
sinni og styðja hver aðra á ýmsan
máta, meðal annars við það að tala
íslensku. Félagsskapurinn kallast
Söguhringur kvenna og þangað
eru allar konur velkomnar sem
hafa áhuga á að hitta aðrar konur
í fjölmenningarlegu umhverfi.
Konurnar skiptast á sögum um
allt mögulegt sem þeim liggur á
hjarta, meðal annars um reynslu
sína af því að flytjast á milli landa,
að læra nýtt tungumál og hvernig
gengur að samhæfa bakgrunn sinn
lífinu í nýju landi. Markmiðið er
þó fyrst og fremst að eiga saman
notalega samverustund.
Á sunnudag fagnar söguhringur-
inn eins árs afmæli og af því tilefni
hafa konurnar skapað saman lista-
verk sem nefnist Tölum saman,
undir handleiðslu listakvennanna
Fitore Berisha og Helgu Arnalds.
Vigdís Finnbogadóttir mun afhjúpa
verkið á opinni afmælisdagskrá í
aðalsafni Borgarbókasafns í Gróf-
arhúsi kl. 14. Helga Arnalds hefur
einnig gert vídeóverk um sköp-
unarferli verksins og það verður
frumsýnt við sama tækifæri. Fólk
af erlendum sem og íslenskum
uppruna skemmtir með tónlist og
dansi og boðið verður upp á veit-
ingar.
Söguhringurinn er samstarfs-
verkefni Borgarbókasafns og Sam-
taka kvenna af erlendum uppruna
og eftir þetta velheppnaða fyrsta
ár er ætlunin að halda áfram af
fullum krafti. Þær Paola Carden-
as og Kristín R. Vilhjálmsdótt-
ir kynna söguhringinn frekar á
afmælishátíðinni, sem er opin
öllum, bæði konum og körlum.
- pbb
Allar með tölu
Mönnum dettur sjaldnast í hug
ljóð þegar kvikmyndir eru ann-
ars vegar. Samlíking listgreina er
enda vafasöm. Listgreinar standa
á sínu. Hitt er hverju orði sann-
ara að tilraunamyndin er oft lík
ljóði, stutt, grípur afmarkað svið
umhverfis og tilfinningar með
fáum gerendum. Það er því vel við
hæfi að stuttmyndahátíð ungra
höfunda kenni sig við ljósvakaljóð
en hún verður haldin öðru sinni í
næstu viku. Skilafrestur rennur
út á mánudag en hátíðin er haldin
í Norræna húsinu hinn 5. nóvem-
ber. Þeir sem vilja leggja nótt við
dag og klára hálfkaraðar myndir
eða handrit hafa því helgina.
Keppt verður um bestu stutt-
myndina, besta frumsamda hand-
ritið og í annað skipti á Íslandi
verður keppt um bestu pitch-hug-
myndina en sú keppni sló eftir-
minnilega í gegn þegar hún var
haldin í fyrsta skipti í fyrra. Höf-
undar verða að vera á aldrinum
15-25 ára en umsóknarfrestur er
til og með 2. nóvember. Áhuga-
samir eru vinsamlegast beðn-
ir um að kynna sér keppnina og
skrá sig á heimasíðu Ljósvaka-
ljóða, www.ljosvakaljod.is. Pen-
ingaverðlaun eru í boði. Dómarar
í handritakeppninni eru einn virt-
asti kvikmyndaleikstjóri Íslands,
Friðrik Þór Friðriksson, ásamt
Bergi Ebba Benediktssyni og Yrsu
Sigurðardóttur rithöfundi.
Hátíðin er haldin í fjórða skipti
í ár og unnin í samstarfi við
dvoted.net, Reykjavíkurborg,
Zik Zak Filmworks og Norræna
húsið. Dagskráin hefst kl. 17.30
á fimmtudag í næstu viku með
umræðum með þekktum innlend-
um kvikmyndagerðarmönnum
og svo pitch-keppni þar sem fólk
getur viðrað kvikmyndahugmynd-
ir sínar og fengið ráðleggingar
fagaðila. Sjálf stuttmyndakeppn-
in fer svo fram kl. 20 um kvöldið.
Valdar verða 6-10 stuttmyndir úr
innsendum myndum til að keppa
um aðalverðlaunin, 50.000 króna
peningaverðlaun. Aðgangur er
ókeypis og allir áhugasamir eru
velkomnir. - pbb
Ljóðað í ljósvakanum
Á morgun verða tónleikar
með þeim Sæunni Þor-
steinsdóttur sellóleikara
og Kristni Erni Kristinssni
píanóleikara í Sal Tónlistar-
skólans á Akureyri kl. 17.
Sæunn hefur vakið mikla athygli
fyrir magnaðan sellóleik nú þegar
nám hennar er að baki. Hún mun
koma fram á tvennum tónleikum
á Íslandi ásamt Kristni Erni Krist-
inssyni píanóleikara, á Akureyri á
morgun og á þriðjudagskvöldið kl.
20 í Salnum í Kópavogi. Flutt verða
verk eftir Beethoven, Debussy,
Janacek, Franck og Martinu. Tón-
leikarnir eru liður í röðinni Tón-
snillingar morgundagsins. (www.
tonsnillingar.is)
Sæunn lauk meistaraprófi frá
hinum þekkta Julliard-skóla í New
York vorið 2008. Hún hefur hlotið
ýmis verðlaun fyrir leik sinn, m.a.
verðlaun til minningar um Zara
Nelsova í hinni þekktu alþjóðlegu
Naumburg-sellókeppni í New York
og einnig vann hún til verðlauna í
alþjóðlegu Antonio Janigro-selló-
keppninni í Zagreb, Króatíu. Hún
hefur komið fram víða í Banda-
ríkjunum og Evrópu bæði sem ein-
leikari og kammermúsikant og tekið
þátt í fjölda tónlistarhátíða og komið
fram með frábærum listamönnum.
Má þar nefna Marlboro Music Festi-
val með Mitsuko Uchida og Kim
Kashkashian, Perlman Chamber
Music Workshop í strengjakvart-
ett með Itzhak Perlman og Kron-
berg sellóhátíðina þar sem hún var
ein af einleikurum á lokatónleikum
hátíðarinnar.
Sæunn var hér á landi í júní og
lék þá m.a. einleik með Kammer-
sveitinni Ísafold í frumflutningi
verksins „Bow to String“ eftir
Daníel Bjarnason á tónlistarhátíð-
inni Við Djúpið, en það verk flutti
hún einnig á Airwaves-hátíðinni nú
í október. Meðal verkefna á döfinni
má nefna frumraun Sæunnar með
Sinfóníuhljómsveit Íslands í Selló-
konsert eftir Dvorak nú í febrúar,
tónleika í Trinity Church á Man-
hattan, sem verður útvarpað beint
á netinu og Konsert fyrir fiðlu og
selló eftir Brahms ásamt Adriane
Tilanus í Amsterdam.
Kristinn Örn Kristinsson píanó-
leikari lauk lokaprófi við Tónlist-
arskólann á Akureyri og stund-
aði framhaldsnám í Reykjavík og
í Bandaríkjunum. Meðal helstu
kennara hans má nefna Philip Jenk-
ins, Margréti Eiríksdóttur, Ruth
Slenczynska og Joseph Kalichstein.
Eftir að námi lauk kenndi Kristinn
við Tónlistarskólann á Akureyri
til 1990 en þá gerðist hann skóla-
stjóri og kennari við Tónlistar-
skóla Íslenska Suzukisambandsins
í Reykjavík.
Árið 1998 stofnaði hann ásamt
fleirum Allegro Suzukitónlistar-
skólann í Reykjavík og hefur starf-
að þar síðan. Kristinn Örn hefur
einnig starfað við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík og sem skólastjóri
við Tónskóla Þjóðkirkjunnar en frá
hausti 2006 var hann ráðinn í fullt
starf sem meðleikari við Söngskól-
ann í Reykjavík. Hann hefur komið
víða fram á tónleikum með ýmsum
hljóðfæraleikurum og söngvurum,
leikið inn á hljómdiska og tekið upp
fyrir útvarp. pbb@frettabladid.is
SÆUNN SPILAR HEIMA
KVIKMYNDIR Friðrik Þór Friðriksson situr
og dæmir í handritakeppninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNING Tölum saman, sameiginlegt verk kvenna af ýmsum uppruna, verður
afhjúpað á morgun. MYND BORGARBÓKASAFN REYKJAVÍKUR
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
2.395,-
1.950,-
Helgar-
tilboð
TÓNLIST Sæunn Þorsteinsdóttir er einn hinna ungu íslensku tónlistarmanna sem
starfa bæði hér heima og erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA