Fréttablaðið - 31.10.2009, Side 78
50 31. október 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
„Ég hafði ekki leyfi til að láta
neinn fá merkingarnar. Ég urða
þær seinna,“ segir Jón Garðar
Ögmundsson, eigandi Lystar ehf.
sem rekur McDonald‘s á Íslandi.
Síðustu McDonald‘s-hamborg-
ararnir á Íslandi verða seldir í
kvöld. Á morgun verður svo hafist
handa við að rífa niður rauðu og
gulu merkingarnar og örlög þeirra
verða táknræn. Enginn hefur fal-
ast eftir merkingunum, enda má
Jón ekki afhenda þær neinum og
þær enda því á haugunum.
Engar innréttingar verða fjar-
lægðar, svo að ásýnd staðarins
umturnast ekki þegar hann breyt-
ist í íslenska hamborgarastað-
inn Metró. Hamborgararnir hafa
hreinlega rokið út eftir að tilkynnt
var að McDonald‘s myndi ljúka
rekstrinum í vikulok. Í Frétta-
blaðinu í gær kom fram að 10.000
borgarar seldust á dag, sem hlýt-
ur að vera Íslands- ef ekki Norð-
urlandamet.
Samkvæmt Jóni hefur enginn
falast eftir frosnum McDonald‘s-
borgurum fyrir framtíðina, enda
er sama sagan með þá og merking-
arnar – óleyfilegt er að afhenda þá
hamborgarahungruðum Íslending-
um. - afb
M-ið verður urðað
Andrea Helgadóttir förð-
unarfræðingur hefur verið
búsett í New York síðast-
liðin tíu ár og starfað með
ýmsum þekktum tónlist-
armönnum, hönnuðum og
listamönnum. Andrea nam
förðun í París og útskrifað-
ist sem förðunarfræðingur
árið 2001. Hún er persónu-
legur förðunarfræðingur
Bjarkar á tónleikaferðalög-
um og hefur einnig starfað
með hönnuðum á borð við
Threeasfour og Jeremy
Scott.
„Ég byrjaði í raun ferilinn sem
aðstoðarmaður Bjarkar og sá
meðal annars um að farða hana
fyrir heimstúrinn árið 1998 og
fyrir Voltatúrinn í fyrra. Það
skemmtilega við að vinna með
Björk er að hún gefur manni frelsi
til að vera skapandi,“ segir Andrea
Helgadóttir förðunarfræðingur.
Að sögn Andreu er starf-
ið skemmtilegt og fjölbreytt og
nýlega tók hún að sér starf yfir-
förðunarfræðings fyrir tísku-
sýningu hönnunarþríeykisins
Threeasfour, en þar var verið
að frumsýna vorlínu næsta árs.
Hönnuðirnir sóttu innblástur sinn
til listakonunnar Yoko Ono og var
tískusýningin sjálf innblásin af
Cut of Piece-gjörningi Ono. „Þeir
í Threeasfour hafa mjög sérstak-
an og framsækinn stíl og það er
mjög gaman að vinna með þeim.
Línan var innblásin af nokkrum
teikningum eftir Yoko Ono og ég
ákvað að vinna með sama munst-
ur í förðuninni. Ég endaði á því að
gera þrjú mismunandi form sem
voru teiknuð á fyrirsæturnar með
punktaaðferð og það kom mjög vel
út,“ útskýrir Andrea. Innt eftir því
hvernig persóna Yoko Ono sé segir
Andrea hana vera ljúfa konu. „Ég
hef aðeins hitt hana nokkrum sinn-
um og þekki hana því ekki mjög
vel, en hún virkar yndisleg. Hún
er mjög prívat persóna og ég held
að það sé vegna þess hve hún hefur
verið mikið gagnrýnd um árin.“
Andrea hefur meðal annars séð
um förðun fyrir tímarit á borð
við Dazed og Vogue og farðaði til
dæmis Peaches Geldolf fyrir tíma-
ritið NO. Andrea segir það skipta
miklu máli að hafa gott fólk til að
vinna með í þessum bransa svo allt
gangi snurðulaust fyrir sig. „Það
skiptir mjög miklu máli að hafa
gott lið með sér þegar maður er
til dæmis að farða fyrir tískusýn-
ingar þannig að allt gangi eins og
smurt.“
Kærasti Andreu er tónlistarmað-
urinn Mike Stroud úr bandarísku
hljómsveitinni Ratatat og hafa þau
verið saman í rúm fimm ár. „Við
ferðumst bæði mjög mikið vegna
vinnu okkar þannig að það kemur
fyrir að við hittumst lítið sem ekki
neitt í einhvern tíma. En við erum
orðin vön þessu, þetta hefur verið
svona frá því við byrjuðum saman
og maður lagar sig bara að þessum
aðstæðum eins og öllu öðru.“
Andrea segist kunna vel við sig
í New York og þar á hún stóran
hóp af vinkonum sem margar eru
íslenskar. „Þetta er mjög skemmti-
legur hópur og ein elsta vinkona
mín, Jóhanna Methúsalemsdóttir,
býr í sama hverfi og ég í New York.
Við erum mjög samheldinn hópur
og reynum að hittast sem oftast og
vinnum líka mikið saman,“ segir
Andrea. „Ég reyni að koma reglu-
lega í heimsókn til Íslands, ræturn-
ar toga alltaf í mann og þá reynir
maður að koma í stutta heimsókn.
Mér finnst ágætt að geta dvalið
til skiptis í New York og á Íslandi.
Kosturinn við New York er að þar
getur maður týnst í fjöldanum, en
á sama tíma er alltaf jafn nota-
legt að koma heim þar sem maður
þekkir alla,“ segir Andrea.
sara@frettabladid.is
Kann vel við sig í New York
SKEMMTILEGT OG FJÖLBREYTT STARF Andrea Helgadóttir hefur starfað sem förðunarfræðingur fyrir nokkra helstu hönnuði og
listamenn heims. Hún segir starfið skemmtilegt og fjölbreytt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÖRÐUN FYRIR THREEASFOUR Hér sést
ein fyrirsætan með punktaförðun eftir
Andreu. Munstrinu svipar til þess sem
notað var á flíkurnar sjálfar.
MYND/ELÍSABET DAVÍÐSDÓTTIR
ANDREA OG YOKO Andrea segir Yoko Ono vera indæla en mjög lokaða persónu.
MYND/ELÍSABET DAVÍÐSDÓTTIR
„Þessi Twilight-sería hefur framkvæmt
vampíruæði,“ segir Heiðar Ingi Svansson
hjá Forlaginu.
Vampírubækur Stephenie Meyer, Ljósa-
skipti og Nýtt tungl, hafa selst í um tíu
þúsund eintökum hér á landi í íslenskri
þýðingu. Ljósaskipti hefur selst í átta
þúsund eintökum, bæði innbundin og í
kilju, á meðan Nýtt tungl, sem kom út
á dögunum, er komin í tæplega tvö þús-
und eintök. „Við bjuggumst við því að
þessari bók myndi ganga vel en þetta
er töluvert betra start en hjá fyrri bók-
inni. Svona helmingi betra,“ segir Heið-
ar Ingi um Nýtt tungl.
Heiðar var nýverið staddur á einni
stærstu bókahátíð heims í Frank-
furt og varð þar áþreifanlega var við
vampíruáhugann. „Þetta gerist alltaf í
þessum bransa. Um tíma voru allir að
leita að næsta Harry Pot-
ter og enginn fann hann,“
segir hann og telur að
vampíruæðið sé rétt að
byrja. Býst hann við að
eldri vampírubækur verði
núna endurútgefnar í miklum mæli, höf-
undar fari að semja fleiri vampírusög-
ur og að eldri handrit um vampírur
hljóti frekar náð fyrir augum bóka-
forlaga. Sjálfur býst hann við því að
Forlagið gefi vampírubókmenntum
aukinn gaum á næstunni.
Heiðar segir að konur á öllum
aldri lesi bækur Stephenie
Meyer en meðal unglinga lesi
bæði strákar og stelpur bæk-
urnar. Telur hann að Twi-
light-kvikmyndin sem kom
út í fyrra hafi ýtt verulega
undir bókaáhugann. Önnur
myndin í þessum þríleik er
væntanleg 27. nóvember.
Síðasta bókin kemur síðan
í búðir næsta haust. - fb
Tíu þúsund lesa vampírusögur
TWILIGHT Kvikmyndin Twi-
light var vinsæl. Í nóvember
kemur næsta mynd sem
byggð er á bókinni Nýtt tungl.
> BULLOCK ER PIRRANDI
Leikkonan Sandra Bullock hefur við-
urkennt að hún geti verið pirrandi.
„Ég er ekki auðveld í umgengni. Ég vil
ráða öllu og ég þarf að hafa skipulag
á öllu. Ég verð alltaf að vera með lista,“
sagði hún.