Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 86
58 31. október 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabla-
> Alexander leitar að nýju félagi
Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson er á förum frá
þýska félaginu Flensburg. Samningur hans við félagið
rennur út næsta sumar og hann ætlar ekki að framlengja
hann. Alexander hefur lítið fengið að spila með Flens-
burg í vetur en þjálfari liðsins, Per
Carlén, spilar nær eingöngu á syni
sínum, Oscar. Við það er íslenski
landsliðsmaðurinn ósáttur enda
telur hann sig hafa meira fram að
færa en að sitja á bekknum. Hann
segist kannski losna í janúar
og ætlar að nýta EM vel til
þess að minna á sig.
Eyjamaðurinn Atli Jóhannsson hefur ákveðið að ganga í herbúðir
Stjörnunnar en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Garða-
bæjarliðið í gær. Atli er uppalinn hjá ÍBV en hefur leikið með KR
síðustu þrjú tímabil og fastlega var búist við því að hann myndi
framlengja samning sinn við Vesturbæjarliðið þrátt fyrir
að hafa ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu þar síðasta
sumar.
„Það var vissulega áhugi fyrir hendi hjá KR, jafnvel
alveg fram á síðasta dag, en það dæmi gekk á
endanum ekki upp. Ég var ágætlega ánægður
með síðasta sumar með KR en hefði ef til vill
viljað fá fleiri tækifæri með liðinu. En svo
fór sem fór í þeim málum og því var ekkert
annað í stöðunni en að tala við önnur lið. Ég
er bara sáttur við að vera búinn að fá lend-
ingu í mín mál og núna getur maður farið að
einbeita sér að einhverjum öðrum málum,“
segir Atli en mörg lið voru á höttunum eftir
honum, þar á meðal uppeldisfélagið ÍBV.
„Ég vissi af áhuga annarra félaga og ég er mjög
þakklátur fyrir það. Nokkur þeirra settu sig í samband
við mig og ÍBV var vissulega eitt þeirra. Ég og konan erum
hins vegar búin að koma okkur vel fyrir í Árbænum og við
vorum því búin að ákveða að vera þar áfram. Því kom í raun
og veru aldrei til greina að fara til Vestmannaeyja núna. Maður
veit samt aldrei hvað gerist í framtíðinni,“ segir Atli.
Stjörnumenn voru spútniklið síðasta sumars í Pepsi-deild-
inni og Atli er vongóður um að liðið geti haldið áfram á sömu
braut næsta sumar. Atli viðurkenndi jafnframt að þjálfarinn
Bjarni Jóhannsson hefði haft mikið að segja með ákvörðun
hans að ganga í Stjörnuna.
„Ef menn ná að halda leikmannahópnum saman og bæta
aðeins við hann eru jákvæðir tímar fram undan í Garðabænum,
það er ég viss um. Ég heillaðist af spilamennsku liðsins í sumar
og Bjarni vildi líka ólmur fá mig til liðsins. Það hafði óneitanlega
mikið að segja,“ sagði Atli að lokum.
ATLI JÓHANNSSON: GEKK Í GÆR Í RAÐIR STJÖRNUNNAR OG SKRIFAÐI UNDIR TVEGGJA ÁRA SAMNING
Það eru jákvæðir tímar fram undan í Garðabæ
FÓTBOLTI Ljóst er að reynslu-
boltinn Ingvar Þór Ólason mun
ekki leika með Fram næsta
sumar. Samnningur Ingvars Þórs
við Fram átti að renna út um
áramótin en félagið hefur til-
kynnt að það muni ekki bjóða
honum nýjan samning.
„Ég var bara að
heyra af þessu í dag
[í gær] og verð nú að
segja að þetta kom
mér dálítið í opna
skjöldu. Það kom mér
á óvart að Fram hafi
ekki viljað kreista eitt
ár í viðbót út úr manni.
Það hljóta annars að
vera einhverjar góðar
ástæður fyrir þessu
og þetta var ekki gert
í neinum leiðindum.
Það er hins vegar
ljóst að það er mikil reynsla farin
með mér Auðuni Helgasyni og
Paul McShane,“ segir hinn 37 ára
gamli Ingvar Þór.
Miðjumaðurinn baráttuglaði
hefur leikið með Fram síðasta
áratuginn eða svo og var til að
mynda valinn besti leikmaður
liðsins í lokahófi félagsins í
lok sumars. „Þetta er spurn-
ing hvort maður leggi skóna
á hilluna eða leiti á önnur
mið,“ segir Ingvar Þór
og viðurkennir að nokk-
ur lið séu búin að hafa
samband. - óþ
Fram ákvað að semja ekki við Ingvar Þór Ólason:
Kom mér á óvart
INGVAR ÞÓR Er óviss hvort hann
hætti eða finni sér nýtt lið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VÍNLANDSLEIÐ 6 - S: 533 3109
ECCO GOLFSKÓR
Á FRÁBÆRU VERÐI
Úr sumarlínunni 2009 - Tilvalin jólagjöf
30% afsláttur af öllum golfskóm
OPIÐ MÁN.-FÖS. 11 - 18 · LAU. 11 - 16 · SUN. 12 - 16
Ecco Casual Cool
E-38543 55613
Kvennskór
Verð með afslætti:
10.495kr.-
Ecco Casual Pitch
E-38883 53582
Kvennskór
Verð með afslætti:
13.296kr.-
Ecco Casual Cool II
E-39404 53582
Herraskór
Verð með afslætti:
11.196kr.-
Iceland Express-deild karla
KR - Grindavík 84-82
Stig KR: Stig KR: Semaj Inge 21, Fannar Ólafsson
17, Tommy Johnson 13, Brynjar Þór Björnsson 11,
Finnur Atli Magnússon 10, Jón Orri Kristjánsson
5, Ólafur Már Ægisson 5, Skarphéðinn Ingason 2.
Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 21, Þor-
leifur Ólafsson 20, Páll Axel Vilbergsson 15, Ómar
Sævarsson 12, Arnar Freyr Jónsson 7, Ármann
Vilbergsson 3, Ólafur Ólafsson 2.
Hamar - Tindastóll 80-68
Stig Hamars: Marvin Valdimarsson 25, Andre
Dabney 16, Svavar Pálsson 9, Viðar Hafsteinsson
9, Páll Helgason 9, Oddur Ólafsson 8, Ragnar
Nathanaelsson 4.
Stig Tindastóls: Svavar Birgisson 17, Friðrik
Hreinsson 15, Michael Giovacchini 12, Helgi Rafn
Viggósson 9, Axel Kárason 6, Amani Bin Daanish
6, Hreinn Birgisson 3.
Keflavík - Snæfell 90-76
STAÐAN
Njarðvík 4 4 0 343-282 8
Stjarnan 4 4 0 349-291 8
KR 4 4 0 378-325 8
Keflavík 4 3 1 355-286 6
Snæfell 4 2 2 328-292 4
Grindavík 4 2 2 334-307 4
ÍR 4 2 2 345-323 4
Hamar 4 2 2 318-327 4
Breiðablik 4 1 3 316-351 2
Tindastóll 4 0 4 320-397 0
Fjölnir 4 0 4 270-349 0
FSu 4 0 4 274-400 0
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Boltinn heldur áfram að
rúlla í ensku úrvalsdeildinni en
alls fara níu leikir í deildinni fram
í dag. Stórleikur dagsins er viður-
eign erkifjendanna í norðurhluta
Lundúna er Arsenal tekur á móti
Tottenham.
Harry Redknapp tók við Totten-
ham á síðasta tímabili og náði að
koma liðinu úr botnsæti deildar-
innar upp í miðja deild þegar tíma-
bilinu lauk. Hans fyrsti leikur með
félaginu var einmitt gegn Arsen-
al á útivelli en þeim lauk með 4-4
jafntefli.
„Mér finnst að við séum að nálg-
ast þá,“ sagði Redknapp. „Arsen-
al spilar glæsilega knattspyrnu
en það gerum við líka. Okkar leik-
mannahópur er nægilega sterkur
til að standast hvaða liði sem er
snúning. Við stefnum því óhikað
að því að vinna leikinn.“
Tottenham hefur reyndar ekki
unnið Arsenal í deildarleik und-
anfarin tíu ár en það gæti breyst í
dag. Liðin eru bæði með nítján stig
í 3.-4. sæti deildarinnar en Arsenal
á að vísu leik til góða.
Sjö leikir hefjast klukkan 15 í
dag. Chelsea mætir til að mynda
Bolton og Liverpool fer í heimsókn
til Fulham. Lokaleikur dagsins
verður svo viðureign Manchester
United og Blackburn. - esá
Níu leikir á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag:
Tíu ára bið Tottenham
loksins á enda komin?
ERKIFJENDUR Jermain Jenas og Nicklas
Bendtner í baráttunni. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Baráttuglaðir KR-ingar
unnu flottan sigur á heillum horfnu
liði Grindavíkur í Vesturbænum í
gær. KR leiddi nánast allan leik-
inn og vann með tveimur stigum,
84-82. KR búið að vinna alla fjóra
leiki sínaí deildinni en Grindavík
tapað tveimur af fyrstu fjórum.
Grindvíkingar mættu til leiks án
Bandaríkjamanns en þeir sendu
Bin Daanish til Sauðarkróks á dög-
unum. Þetta var fyrsta heimsókn
þeirra í Vesturbæinn síðan þeir
töpuðu á dramatískan hátt í úrslit-
unum í fyrra.
KR-liðið mætti gríðarlega ákveð-
ið til leiks. Spilaði sterka vörn og
var grimmt í fráköstunum á báðum
endum vallarins. Þeir tóku frum-
kvæðið snemma og leiddu nánast
allan fyrri hálfleik. Tommy John-
son var heitur framan af en síðan
tók Semaj Inge við keflinu en hann
gladdi áhorfendur með glæsileg-
um troðslum og fallegum körfum.
Ungu strákarnir Jón Orri Kristj-
ánsson og Finnur Atli Magnússon
áttu líka góða innkomu.
KR leiddi með fimm stigum
eftir fyrsta leikhluta, 28-23, og
þeir bættu við það forskot fyrir
hlé en þá var staðan 56-48. Grind-
víkingar í nokkrum vandræðum
með sinn leik en þeir Þorleifur
Ólafsson og Brenton Birmingham
drógu vagninn fyrir þá. Páll Axel
var ekki að finna sig eins og svo
oft áður í DHL-höllinni.
Það var engu líkara en KR-
ingar hefðu drukkið eitthvað veru-
lega vont í leikhléi því það var allt
annað KR-lið á vellinum í síðari
hálfleik. Boltinn hætti að flæða
hjá þeim í sókninni og einstakl-
ingsframtakið tók við. Var engu
líkara en leikmenn yrðu hræddir.
Sem betur fer fyrir þá var Grinda-
vík ekki að hitta sérstaklega vel en
þó betur en KR því forskotið hélt
áfram að minnka.
Munurinn sex stig, 68-62, þegar
einn leikhluti var eftir. Svipaður
munur var á liðunum í lokaleik-
hlutanum sem var illa leikinn af
beggja hálfu. Hver klaufamistökin
á fætur öðru litu ljós og leikmenn
virtust ekki höndla spennuna. KR
hleypti Grindavík þó aldrei upp að
sér, sýndi karakter þegar á þurfti
að halda og landaði frábærum og
sanngjörnum sigri.
„Við erum fyrst og fremst
ánægðir með að hafa unnið og
haldið heimavellinum ósigruð-
um,“ sagði baráttujaxlinn, Fannar
Ólafsson, fyrirliði KR, eftir leik en
hann átti magnaðan dag. Spilaði
vel og reif félaga sína áfram.
„Liðið er enn að slípast og við
duttum svolítið niður í síðari hálf-
leik þegar við hefðum átt að gefa
í. Það kann aldrei góðri lukku að
stýra að reyna að verja forskot
en við kláruðum þetta og sýndum
mikinn styrk fannst mér.“
- hbg / - rog
Meistararnir bitu frá sér
Íslandsmeistarar KR sendu sterk skilaboð frá sér í gær er liðið lagði meistara-
kandidata Grindavíkur í Vesturbænum. KR var sterkari aðilinn allan leikinn.
SKILINN EFTIR Semaj Inge fer hér framhjá Arnari Frey Jónssyni í leiknum í gær.
FRÉTTABLÐIÐ/STEFÁN