Fréttablaðið - 11.11.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 11.11.2009, Blaðsíða 36
BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar 24 11. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Skrúfaðu niður í þessari bölvuðu apamúsík! Ég er orðinn pabbi minn! Pabbi! Skrifaðu undir efna- fræðiskýrsluna mína! Ha? Af hverju? Fljótur! Fólkið fyrir aftan er að verða brjálað! Hvað á ég að skrifa? En þú... Jón Dalberg... Að ég hafi sýnt þér skýrsluna og þú sért ánægður með þekk- ingu mína á efninu. Flutningaþjónusta með meiru, eftir þínum þörfum. Hey! Hvar fékkstu ís? Þetta er áhugaverð leið til að losna við bróður þinn. Strákar geta ekki staðist neina keppni. VIÐBÚINN, TILBÚINN... AF STAÐ!!! Hjálp Ég er því marki brenndur, líkt og margir fleiri, að rogast með hug- myndir sem hafa þann eina tilgang að upphefja sjálfan mig. Þær krefjast þess að ég taki mér sæti með þjáningabræðr- um mínum á sjónarhóli þar sem við virð- umst nokkru betri en allir aðrir. Ég kalla þá þjáningabræður því venjulega vill það koma fyrir að menn detta af þessum sjónarhóli og það getur verið býsna sárt. Það fékk ég að reyna fyrir stuttu við morgunverðarborðið á kaffihúsi einu í Zújar á Spáni. Á MORGNANA áður en haldið er út á akurinn er gott að sötra þar kaffi og spjalla við bændur. Hef ég sagt þeim ófáa fróðleiksmola um Ísland sem oft eru skreyttir enda um að gera að nýta skáldaleyfið. UM DAGINN sagði ég þeim frá því hvað ég saknaði sjósunds- ins sem við Íslendingar stund- um grimmt í Nauthólsvíkinni. Áttu þeir erfitt með að trúa því að við eyjaskeggjar fleygðum okkur til sunds um hávetur. Taldi ég það ekkert undarlegt að veimiltítulegir land- búnaðarsynir ættu erfitt með að trúa sögum um vaska sjóvíkinga sem hefðu stundað sjósund frá örófi alda. Til dæmis hefði Grettir Ásmunds- son orðið eldlaus í Drangey og heldur en að sleppa því að reykja það kvöldið hafi hann synt nokkra kílómetra til að fá eld. ÞAR SEM nefið var hvort sem er farið að stækka sagðist ég hafa synt nokkur hundruð metra í fyrravetur fyrir eitt koníaksglas. Ég væri nefnilega ekkert svo ólíkur þessum frækna forföður mínum. „En hvernig eiga stráhattastrák- ar eins og þið að trúa svona löguðu sem getið ekki einu sinni unnið úti á akrinum á meðan rignir,“ sagði ég og fann til mín. EN DAGINN eftir var ekki eins uppi á mér typpið. Veimiltíturnar spyrðu hvers vegna ég væri svo rotinpúrulegur. Ég tjáði þeim eins og rétt var að það væri allt rafmagnslaust. Þá væri ekki hægt að hita vatnið og ég yrði alveg ómögulegur þegar ég kæmist ekki í heita sturtu á köldum haustmorgni. VEIMILTÍTURNAR voru hins vegar nýþvegnar eftir kalda sturtu, eitthvað sem afkomandi Grettis hafði ekki treyst sér til að gera. Ég sá svipinn á mér í speglinum við barborðið; ég minnti á kommúnista við fall Berlínarmúrsins eða frjálshyggjumann við fall Glitnis. Fallinn ESKIMOS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.