Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Side 6
Herra iðnaðarráðherra,
virðulegu iðnþingsfulltrúar, góðir gestir.
Ég býð yður öll velkomin til setningar 36. lðn-
Jtings íslendinga. Ég flyt meistarafélögum í bygg-
ingariðnaði í Reykjavík, Kynningarklúbbnum Björk
og Klúltbi eiginkvenna málarameistara Jtakkir fyrir
að undirbúa og standa fyrir dagskrá fyrir maka
þingfulltrúa. Einnig færi ég starfsfólki góðar Jrakkir
fyrir allan undirbúning þinghaldsins.
Frá Jrví að síðasta Iðnþing var baldið, bafa fjórir
fyrrverandi iðnþingsfulltrúar látist, Jreir Tómas
Vigfússon, Jón E. Ágústsson, Hclgi Hermann Ei-
ríksson og Guðjón Scheving.
Tómas Vigfússon húsasmíðameistari lést 1. febr-
ar 1974. Hann var athafnamaður og mjög vandvirk-
ur, enda eftir honum sóst til vandasamra verka.
Vegna forustuhæfni hlóðust á hann fjölmörg störf,
ckki eingöngu fyrir samtök iðnaðarmanna, heldur
og einnig opinber störf og forysta í umfangsmiklum
framkvæmdum. Hann var í forystu í félagasamtök-
um iðnaðarmanna um áratuga skeið. Elann átti sæti
í stjórn L.I. í 22 ár, eða frá 1947—1969. Hann var
sæmdur heiðursmerki iðnaðarmanna úr gulli 1962
og kjörinn heiðursfélagi 1970. Verk hans verða
seint metin sem vert er, en munu geymast í minn-
ingunni um góðan félaga og forustumann.
Jón E. Ágústsson málarameistari lést 27. mars
1974. Hann var mikill félagsmálamaður og tók
virkan þátt í félagsmálum sinnar iðngreinar, átti
um áratuga skeið sæti í stjórn Málarameistarafélags
Reykjavíkur. Þá átti hann sæti í stjórn L.I. urn 7
ára skeið og var þar sem annars staðar hinn trausti
og raungóði félagi.
Helgi Hermann Eiríksson verkfræðingur lézt 10.
október 1974. Þegar hann kom heim frá nárni sínu
gekk hann lil móts við iðnaðarmenn á sviði félags-
rnála. Hann varð skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík
og tók virkan þátt í nrótun samtaka iðnaðarins á
frumstigi. Hann var með í forystu um stofnun L.I.
og varð hinn sjálfkjörni leiðtogi og forystumaður
um tuttugu ára skeið, jafnframt því sem liann tók
virkan þátt í opinberum málurn. Hann var sæmdur
heiðursmerki iðnaðarmanna úr gulli 1949. Kjörinn
heiðursfélagi 1952.
Guðjón Scheving málaramcistari lést 9. október
1974. Hann var fæddur í Vestmannaeyjum, lærði
málaraiðn í Reykjavík, en fluttist aftur til Vest-
mannaeyja og stundaði þar iðn sína. Hann var frum-
kvöðull og stofnandi margra félaga. Mest af starfs-
orku sinni helgaði hann Iðnaðarmannafélagi Vest-
mannaeyja, var formaður þess í meir en aldarfjórð-
ung, hann var fulltrúi þess á mörgum Iðnjringum.
Hann var kjörinn heiðursfélagi í félagi sínu og
6