Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Side 14
verða þá teknar ákvarðanir um hverjar breytingar
teljast nauðsynlegar á núgildandi lögum þessara
sjóða.
Ný iðnaðarlög
Núgildandi löggjöf um iðju og iðnað er að meg-
instofni frá árinu 1927. Það gefur auga leið, að nær
fimmtíu ára löggjöf um svo mikilvæga atvinuu-
starfsemi sem iðnaðurinn er hlýtur að vera í mörgu
ábótavant.
A síðasta Alþingi var samþykkt tillaga til þings-
ályktunar frá Gunnari J. Friðrikssyni um endur-
skoðun þessara laga.
Óskað hefur verið eftir tilnefningu þeirra hags-
munaaðila, sem lög þessi snerta fyrst og fremst, í
nefnd, sem iðnaðarráðuneytið mun skipa til að end-
urskoða gildandi lög um iðju og iðnað. Verður
nefndinni ætlað að hraða störfum svo unnt verði
að leggja lrumvarp til nýrra iðnaðarlaga fyrir Al-
þingi sent fyrst.
Byggingarlög
Til þessa hafa gilt mismunandi lög um byggingar-
mál í þéttbýli og dreifbýli bæði að því er varðar
meðferð byggingarmála og þær kröfur, sem gerðar
eru til bygginga. Eru bein lagaákvæði urn bygging-
armálefni flest orðin gömul og á margan hátt úrelt.
Þeim sem um þessi mál fjalla hefur lengi verið
þetta ljóst og talið æskilegt að úr þessu yrði bætt
með því að setja heildarlög um byggingarmál, sem
giltu fyrir landið allt og lögð hafa verið fyrir Al-
þingi frumvörp þess efnis. Þannig var árið 1924
lagt fram frumvarp til byggingarlaga og árið 19(i7
var lagt fram frumvarp til byggingarlaga fyrir skipu-
lagsskylda staði. Bæði þessi frumvörp dagaði uppi
á Alþingi.
Árið 1973 skipaði lelagsmálaráðherra nefnd til
þess að endurskoða gildandi lög um byggingarmál-
efni og semja frumvarp lil byggingarlaga, sem giltu
fyrir landið allt. Einnig var nefndinni falið að gera
tillögur um breytingu á skipulagslögum, ef hún
teldi það nauðsynlegt í sambandi við endurskoðun
laganna.
Nefndin var skipuð II mönnum frá hinum ýmsu
stofnunum og félagssamtökum, sem um byggingar-
mál fjalla.
Hi'm hefur samið frumvarp til byggingarlaga, sem
ætlað er að ná til landsins alls. Frumvarpið fjallar
um yfirstjórn byggingarmála, almenna byggingar-
reglugerð og byggingarsamþykktir, um byggingar-
nefndir, byggingarleyfi, byggingarstjóra, byggingar-
fulltrúa o. fl.
Frumvarpið verður lagt fyrir það Aljnngi, er nú
kemur saman.
Byggingariðnaður
Byggingariðnaðurinn er svo gildur þáttur í efna-
hagslífi okkar, að 25—30% heildarfjárfestingar á ári
hverju er fólginn í íbúðabyggingum. Hagkvæm
vinnubrijgð og góð nýting Jtess mikla fjármagns,
sem fer til húsnæðismála, er Jlví mikilvæg. Þá er
cinnig rétt að hafa í huga, hvílík áhrif húsnæðis-
kostnaður liefur á lífskjör fólksins í landinu. Og
húsnæðismálin eru þýðingarmikill þáttur í byggða-
Jrróun.
Áætlunardeild Framkvæmdastofnunar hefur að
undanförnu unnið að athugun og áætlanagerð um
íbúðarbyggingar á næstu árum.
Hefur verið unnið að spá um eftirspurn eftir
íbúðum og gerð drög að áætlunum um íbúðabygg-
ingar á landinu frá 1975 til 1985 svo og athugun á
fjármagnsforsendum á Jaessu sviði. Þá er í undir-
búningi athugun á framleiðslugetu byggingariðn-
aðarins.
Athuganir á Jjessum málum hafa leitt í Ijós að
fólksfjöldi í aldursflokkum á aldrinum 20 ára til 34
ára hefur mjög mikil áhrif á eftirspurn eftir íbúð-
arhúsnæði. Það hefur kornið í Ijós, að á árunum
fram til 1985 er talsvert meiri aukning í Jjessum
aldurshópum en nemur aukningu fólksfjöldans í
heild. Þessi Jjróun mun Jjví á næstu árum valda
aukinni eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði frá því sem
verið hefur.
Til að fullnægja eftirspurninni er talið að byggja
Jjurfi að meðaltali 2.400 íbúðir á ári fram til 1986.
Undanfarin ár hafa að meðaltali verið byggðar
1500—1800 íbúðir á ári.
Löggjöfina um húsnæðismál þarf að endurskoða.
Félagsmálaráðuneytið skipaði Jjví í sumar 7 manna
nefnd undir formennsku Ólafs Jenssonar lil þeirra
starfa. Er hér um mjög mikilsvert verkefni að ræða.
Meðal annars er nefndinni falið að kanna leiðir fil
Jjess að lækka byggingarkostnað. El' Jjað tækist að
verulegu marki væri Jjað raunhæfasta kjarabótin
fyrir allan almenning. Einkum kemur hér til greina
verksmiðjuframleiðsla byggingareininga og eining-
arhúsa í stærri stíl en átt hefur sér stað til Jjessa.
Hér Jjarf Jjó margs að gæta: Að um raunverulega
aukna hagkvæmni sé að ræða, að framleiðslan henti
íslenskum staðháttum, livers konar efni er hentugast,
gjaldeyrishliðina o. fl. Þá veltur einnig á miklu, að
slík framleiðsla í verksmiðjum sé tengd þeirri verk-
kunnáttu og þekkingu almennt, sem fyrir er í bygg-
ingariðnaði okkar og áratuga reynslu.
Ég vil hér með biðja Landssamband iðnaðar-
manna að koma á fót, í samráði við nefndina, starfs-
hópi um Jjetta mál.
Opinber innkaup
Miklu fjármagni er ráðstafað af ríkissjóði og op-
14