Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Síða 20
Stig Stefanson, formaður Sœnska iðnsambandsins og forseti
Norrcena iðnráðsins.
Iðnlöggjöfina, reglugerð um heiðursmerki iðnaðar-
manna og erindi útvarpsvirkja.
Framsögumaður í þessum málum var Karl Maack.
Skýrði hann þau sjónarmið, sem fram komu á við-
komandi þingskjölum. Urðu nokkrar umræður um
þessi mál, en þeim var síðan vísað til löggjafar-
nefndar.
Efnahagsmdl og iðnþróun, útflutnings- og
markaðsmál og hinkaup opinberra aðila
Framsögumaður, Þórður Gröndal, fjallaði í fram-
söguræðu sinni um efnahagsmálin almennt og að-
stöðumál iðnaðarins. Þessum málum var síðan vísað
til allsherjarnefndar eftir nokkrar umræður.
Skipulagsmál og Samhcefing tœknistofnana
iðnaðarins
Sigurður Kristinsson hafði framsögu í þessunr
málum báðum, og lagði áherslu á að koma verði
fastara formi á verkaskiptingu sambandsfélaganna
og Landssambandsins. Þessum málum báðum var
síðan vísað til skipulagsnefndar. Þingforseti sleit
síðan fundi, enda lokið kynningu mála og langt
Iiðið á kvöld.
Næsta dag, 9. október, voru nefndarfundir í húsa-
kynnum meistarafélaganna Skipholti 70, Reykjavík,
og stóðu þeir fram yfir hádegi, en þá var fundi lram
haldið í Domus Medica. Fundurinn hófst með því
að þingforseti las upp og kynnti þingfulltrúa hinna
ýmsu lélaga. Það bar til tíðinda, að á meðan kynntir
voru fulltrúar Ffúsgagna- og innréttingaframleið-
enda, gengu fulltrúar Meistarafélags húsasmiða af
fundi í mótmælaskyni við nafngift íelagsins. Var nú
tekið til við afgreiðslu nefndarálita og tekið fyrir
fyrsta málið:
ErincLi útvarpsvirkja til Iðnþings
Framsögumaður Ásgrímur P. Lúðvíksson. Urðu
nokkrar umræður um málið, og var samþykkt fram-
komin tillaga um að vísa málinu aftur til löggjafar-
nefndar. Var nú gert hlé á flutningi mála af mála-
skrá, en Sigurður Kristinsson forseti Landssambands
iðnaðarmanna tók til máls og greindi frá því, að
framkvæmdastjórn Landssambandsins hefði einróma
ákveðið að leggja til, að eftirtöldum mönnum yrðí
veitt heiðursmerki iðnaðarmanna úr gulli:
Adolph Sörensen, múrarameistari, Danmörku.
Gissur Sigurðsson, húsasmíðameistari, Reykjavík.
Stig Stefanson, optikmeistari, Svíþjóð.
Þorgeir Jósepsson, vélvirkjameistari, Akranesi.
Fór fram leynileg atkvæðagreiðsla um þessar til-
lögur. Var því næst tekið að nýju til við afgreiðslu
mála á málaskrá, og tekið fyrir álit löggjafarnefndar
um breytingu á reglugerð um heiðursmerki iðnað-
armanna. F'ramsögumaður var Karl Maack. Var álit-
ið samþykkt samhljóða. Siguroddur Magnússon
hafði framsögu um álit löggjafarnefndar um iðn-
20