Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Qupperneq 34

Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Qupperneq 34
því, að starfsemi hafi verið hætt, þótl fyrirtækið sé formlega (lagalega) til enn. En lrvernig sem á þessu stendur, þá væri mikilvægt frá efnahagslegu sjónar- miði, að nánari skýringar fengjust á þessum tölum. Hægt er að ganga feti framar við slíkar athuganir og gera samanburð milli ára á fyrirtækjum innan sömu atvinnugreinar. Slík athugun á fyrirtækjum í flokki 350, málmsmíði, leiddi til eftirfarandi niður- stöðu: Fyrirtæki skráð í flokki 350 skv. slysatr.skrá 1972 269 Fyrirtæki skráð í flokki 350 skv. slysatr.skrá 1973 273 Fyrirtæki starfandi í flokki 350 bæði 1972 og ’73 216 Fyrirtæki, sem iiorfið hafa úr flokki 350 árið 1973 53 Fyrirtæki, sem bæst hafa í flokk 350 árið 1973 57 í atvinnugrein 491, húsasmíði, voru samsvarandi tölur, eins og hér segir: Fyrirtæki skráð í flokki 491 skv. slysatr.skrá 1972 319 Fyrirtæki skráð í flokki 491 skv. slysatr.skrá 1973 328 Fyrirtæki starfandi í flokki 491 bæði 1972 og ’73 211 Fyrirtæki, senr horfið hafa úr flokki 491 1973 108 Fyrirtæki, sem bæst hafa í flokk 491 árið 1973 117 Enda þótt fjöldi fyrirtækja innan beggja undir- greina hafi verið næstum hinn sami árin 1972 og 1973, virðast skipti á fyrirtækjum -hafa verið mikil. 1 málmsmíði var um finrmta hvert og í húsasmíði um þriðja hvert fyrirtæki „nýtt“ árið 1973. Ef þessar tölur eru réttar, þá er hér einnig um mjög fróðlegt, efnahagslegt fyrirbæri að ræða, svo að vert væri að efna til öllu nánari könnunar í því efni. Ú rtak Við tölfræðilega athugun kemur upp sú spurn- ing, hvort taka eigi með öll fyrirtæki, eða hvort unnt muni að ná öruggum árangri með takmörkuðu úr- taki. Heildarathuganir (athuganir, sem ná til allra fyr- irtækja) eru bæði tímafrekar og kostnaðarsamar. Hagnýtar ástæður eru fyrir því, að athuganir, sem fram fara með reglubundnu millibili, ná sjaldan til allra fyrirtækja, sem um er að ræða. Til dæmis er hægt að sleppa öllurn fyrirtækjum undir tiltekinni stærð, ef starfræksla þeirra nemur aðeins takmörkuðum hluta veltu eða atvinnu í við- komandi iðngrein. Við gerð atvinnuskýrslna iðnað- arins í Danmörku sleppa menn til dæmis öllum fyrirtækjum, sem hafa færri en sex starfsmenn. I rekstrar- og efnahagsskýrslum eru neðri mörkin sett við fyrirtæki með 20 starfsmenn. I ýmsum löndum er notast við svonefnd stærðar- flokkuð úrtök. Með því getur t. d. verið átt við, að tekin séu öll fyrirtæki yfir tiltekinni stærð. í næsta stærðarflokki eru t. d. tekin 50% fyrirtækja, í þeim næsta 25% heildarinnar o. s. frv. Með því að beita Jressari úrtaksaðferð, ná menn að jafnaði til 60-80% starfsmannahalds eða veltu með Jrví að taka 20-40% rekstrareininganna. Með því að nota sama úrtak við tvær eða fleiri athuganir, sem fram fara hver af annarri, fá menn samanburðargrundvöll. Heildar- tala iðngreinanna fæst með |>ví að margfalda niður- stöðu úrtaksins með tölu sem byggist á stærð úr- taksins. Með slíkum takmörkunum á úrtökum verður söfnun og úrvinnsla gagna auðveldari, og fljótlegra að birta niðurstöðurnar til hagsbóta fyrir alla, sem þurfa að nota þær í sambandi við ýmsar nauðsyn- legar ákvarðanir. Þegar sú aðferð er viðhöfð á íslandi, að öll fyrir- tæki eru talin með, Jrótt þau skrái ekki nema eina slysatryggða vinnuviku á ári, verður ekki hjá því komist, að Jsað tefji allt í senn — öflun gagna, úr- vinnslu þeirra og birtingu á niðurstöðunum. Vinnuaflsskýrslur Á tslandi er orðið „mannár" notað til að tákna atvinnu (vinnuafl). Mannár er skilgreint sem 52 slysatryggðar vinnuvikur. Grundvöllur útreikninga á vinnuafli í þjónustu fyrirtækis (eða heillar iðn- greinar) er þær upplýsingar, sem vinnuveitendur gefa á launamiðafylgiskjali til skattstofu. Á launamiðafylgiskjali eru dálkar fyrir vikur, vinnustundir og laun. Ef launaútreikningum fyrir- tækis er haganlega fyrirkomið, ætti ekki að vera erf- itt að yfirfæra allar 3 tölur á launamiðafylgiskjalið í lok ársins. Þó er Jrað sagt mjög fátítt, að allir 3 dálkar séu útfylltir. Sé launadálkurinn einn útfylltur, deilir skattstof- an útborguðunr launum með tölu, sem kemur heim við meðaltal vikulauna skv. Jreim kaupgjaklsskrám, sem til eru frá hinum ýmsu iðngreinum. Á kaup- gjaldsskrá eru vikulaunin byggð á samningsbundn- um vinnustundafjölda (nú 40 st.). Sé vinnustundadálkurinn einn útfylltur, deilir skattstofan með 48 skv. reglugerð nr. 7/1964. Árið 1964 var samningsbundinn vinnutími 48 klst. á viku, en er nú 40 klst. Útfylli vinnuveitandi sjálfur dálkinn „virkur" á grundvelli raunverulegrar tölu þeirra vinnuvikna, sem starfsmenn liafa unnið, finnst með því að deila með 52 tala, sem telja má að sýni tölu starfsmanna í ársvinnu. Eftir því hvaða reikningsaðferð er notuð, er hægt að fá útkomu í vinnuaflsdæminu, sem er annaðhvort 20% hærri eða 20% lægri en hið raunverulega ástand. Það er spurning, hvort sú aðferð að notast við launamiðafylgiskjiil og skattstofur er heppileg við gerð vinnuaflsskýrslna. í fyrsta lagi getur hún verið 34
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.