Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Side 36

Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Side 36
KYNNING Á FÉLÖGUM EIGINKIIENNA MEISTARA Eins og fram kemur í grein á öðrurn stað hér í blaðinu um 36. Iðnþingið, önnuðust Kynningar- klúbburinn Björk og Klúbbur eiginkvenna málara- meistara sérstaka dagskrá fyrir maka iðnþingsfull- trúa. I>ar sem ekki er ólíklegt, að lesendur Tímaritsins hafi áhuga á að fræðast nánar um stárfsemi þessara og annarra félaga eiginkvenna ineistara þykir rétt að kynna þau lítillega í blaðinu. Hér fer á eftir stutt viðtal við Magneu Karlsdótt- ur, formann Kynningarklúbbsins Bjarkar, svo og grein eftir Svövu Ólafsdóttur, formann Klúbbs eig- inkvenna málarameistara, þar sem þær gera nokkra grein fyrir starfsemi félaganna. Þá er ennfremur stutt frásögn af starfsemi Kvenfélagsins Hrundar í Hafnarfirði. Kyn n ingark lúbburinn Björk Hugmynd að stofnun kveníelags meðal eigin- kvcnna itúsasmiða er ekki alveg ný. Meistarafélag húsasmiða er orðið 22 ára og það mun hafa verið einhvern tíma á fyrsta áratug þess félags að þeirri hugmynd skaut upp að stofna kvenfélag, þó ekki yrði að veruleika þá. Kynningarklúbburinn Björk var stofnaður 26. nóvember 1974 og voru stofnendur 48 eiginkonur iiúsasmiða. í tilefni þess að Björk bauð fram mikilsverða að- stoð við síðasta Iðnþing íslendinga, þótti ritnefnd tímaritsins rétt að fá ofurlítið meira um félagið að vita og átti viðtal við formann klúbbsins, frú Magn- eu Karlsdóttur. Magnea sagði okkur að hvatinn að stofnun klúbbsins hefði verið sá, að sumum þeirra, sem fylgdust með starfi Meistarafélagsins hefði fundist, að eiginkonur meistaranna þekktust of lítið. Hvattar af Meistarafélaginu réðust ])ær síðan í stofnun klúbbsins cins og áður kemur fram. I 2. gr. samþykkta segir: l'ilgangtir klúbbsins er: Að skapa kynningu meðal eiginkvenna félaga í Meistarafélagi húsasmiða og stuðla að auknu félags- lífi. Fundir eru 4—5 á ári og eru vel sóttir og þá gjarn- an fléttað saman gamni og alvöru. Félagskonur kynna sjálfar ýmsa fræðslu og eru þá einnig með skemmtiatriði, þá eru og aðfengin fræðsluerindi, sýnikennsla og fleira. Þegar frú Magnea var spurð hvað valdið hefði því að þær svo fámennur félagsskapur hefði boðið Landssambandi iðnaðarmanna hina mikilsverðu að- stoð í sambandi við Iðnþing, sem hlaut að krefjast mikils af þeirn, svaraði hún: „Þegar við, sem höfum átt þess kost að vera geslir á Iðnþingi íslendinga úti á landsbyggðinni og orðið aðnjótandi allrar þeirrar gestrisni sent þar hefur mætt okkur, þá hljótum við að spyrja á hvern hátt við gætum goldið lyrir, þó í litlu væri. Það var þetta sjónarmið sem réð gerðum okkar, og ánægja okkar varð mikil þegar í Ijós kom Itve þátttaka klúbbkvenna og almennur áhugi á að gera eitthvað var mikill. Við stóðum heldur ekki einar að þessu, eiginkon- ur málarameistara voru einnig með og síst skyldi gleyma þátttöku Reykjavíkurfélaganna í Meistara- sambandi byggingarmanna sem tóku að sér að greiða kostnaðinn. Hal'i svo konum þingfulltrúa lík- að dagsrkáin og haft af henni einhverja ánægju, þá er okkar ánægja tvöföld." Við þökkunr sjrjallið og óskum klúbbkonum og félaginu velgengni á komandi árum. í stjórn Bjarkar eru: formaður Magnea Karlsdótt- ir, ritari Helga Þorsteinsdóttir, gjaklkeri Sigfríður Marinósdóttir, varaform. Sigurbjörg Sigurjónsdóttir og meðstj. Guðrún Sveinsdóttir. Klúbbur eiginkvenna málarameistara Klúbbur eiginkvenna málarameistara, skammstaf- að K.E.M., var stofnaður á 40 ára afmæli Málara- meistarafélagsins, þann 26. febrúar 1968. Undirbún- ingsfundur var haldinn 9. sama mánaðar með hvata- mönnum, sem höfðu iullan hug á slíku félagsstarfi, meðal eiginkvenna sinna. Það hafði vissulega líka 36

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.