Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Page 42

Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Page 42
NORIUEN SAMUINNA Dagana 11. og 12. nóvember 1974 var 17. norræna iðnþingið haldið í Oslo. Af íslands hálfu sóttu þingið Sigurður Kristinsson, forseti Landssambands iðnaðarmanna, Sigurvin Snæbjörnsson, bygginga- meistari og Þórleifur Jónsson, framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna. Ola Frost, múrarameistari, forseti Norræna iðn- ráðsins, setti þingið með ræðu og ræddi um þýð- ingu norrænnar samvinnu fyrir iðnaðarsamtökin í aðildarlöndunum. Hann benti á, að með sam- vinnu gætu Norðurlöndin haft mun meiri áhrif á gang heimsmálanna, heldur en ef þau berðust hvert fyrir sig. Hann nefndi nokkur raunhæf dæmi um áhrif norrænnar samvinnu og benti á, að innan Norræna iðnráðsins ætti sér ekki síður stað virk samvinna, sem oft hefði haft mikla Jjýðingu fyrir iðnaðarsamtök landanna. Þá ávarpaði iðnaðarráðherra Noregs, Ingvald Ulveseth, þingið og fjallaði um þróun iðnaðarins í Noregi og áhrif fyrirhugaðrar olíuvinnslu í Norð- ursjó á atvinnulíf landsins. Ræddi ráðherrann af miklum skilningi um vandamál smárra iðnfyrir- tækja. í ræðu hans kom fram, að í Noregi er veru- legur hluti iðnfyrirtækja smáfyrirtæki. Hafa þau umtalsverðan hluta vinnuaflsins í sinni þjónustu. Hins vegar lítur út fyrir að nokkur breyting muni eiga sér stað á þessu og að meirihluti vinnuaflsins muni færast yfir á stöðugt færri og stærri fyrirtæki. Ráðherrann fór nokkrum orðum um vandamál hinna smáu fyrirtækja, sérstaklega með lilliti til launatengds kostnaðar. Þessi fyrirtæki eru yfirleitt vinnuallsfrek og kemur Jressi gjaldaliður því illa niður á þeim. Þá ræddi ráðherrann um þýðingu olíuvinnslunnar fyrir norskt efnahagslíf og ræddi ennfremur í því sambandi um möguleika á nor- rænni samvinnu í orkumálum. Taldi ráðherrann að samvinna ætti að vera möguleg á vinnumark- aðnum og benti á í því sambandi atvinnideysi í Djanmönku, en mikila þenslu á vinnumarkaði í Noregi. Að lokum ræddi ráðherrann sérstaklega um stöðu handiðnaðarins í Noregi. í þessu sambandi ræddi hann meðal annars um iðnaðarlögin (hándværks- loven), sem voru sett til þess að skapa aðstæður til að sjá handiðnaðinum fyrir Jajálfuðu vinnuafli með góða verkmenntun. Taldi hann að Jiegar að á heildina væri litið hefðu iðnaðarlögin haft jákvæð áhrif á þeim árum, sem liðin væru frá endurskoðun þeirra, en lögunum var breytt í ýmsum veigamikl- um atriðum árið 1970. Að lokinni ræðu ráðherrans var gengið til dag- skrár og var lyrsta mál á dagskránni erindi, sem aðalritari norsku sendinefndarinnar hjá Norður- landaráði, hr. Láder Ve, flutti. Fjallaði erindið um Norðurlandaráð og þýðingu Jjess fyrir efnahags- og atvinnulífið. Þetta efni hafði nokkrum sinnum borist í tal á undanförnum Norrænum iðnþing- um og hafði Jní koniið fram nokkur vafi um að Norðurlandarád hefði nókkra Jrýðingu fyrir at- vinnulíf landanna. I erindi sínu benti fyrirlesar- inn á nokkur dæmi, sem sanna hið gagnstæða. í þessu sambandi nefndi hann m.a. hinn nýja Norræna iðnaðarsjóð, sem þá var nýstofnaður, sam- eiginlegan vinnumarkað o.fl. Þá gat hann Jress, að þótt nokkur árangur hefði náðst, væri enn meiri Jrörf á frekari samvinnu á liagrænu sviði, og nefndi í því sambandi hugmyndina um efnahagsbandalag Norðurlanda, Jrar sem gert var ráð fyrir sameig- inlegum markaði og jafnri samkeppnisaðstöðu allra Norðurlandanna, sem hann taldi að mjög 42

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.