Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Side 47

Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Side 47
lagasetningu um þetta atriði. Eru neytenclasjónar- mið höfð ofarlega í huga í þessu sambandi, en það er að sjálfsögðu mikið öryggisleysi fyrir neytandann, ef hann hefur litla sem enga tryggingu fyrir því, að sá sem hann skiptir við, hafi þekkingu eða hæfni til að ráða við viðfangsefnið. í þessu sambandi var lögð áhersla á að meistarabréfið væri mikilsverð ábending fyrir neytendur og væri eins konar gæða- merki, sem meistarar ættu að noia. Þá segir í um- sögn stjórnarinnar að ástæða sé til að ætla, að auk- inn áhugi sé nú á þessu máli, og á það bent, að sífellt fleiri félagssamtök hafi gert um það sam- þykktir. Samþykkti þingið að fela stjórninni að vinna ötullega að því, að halda á lofti kröfunni um fag- legar kröfur til atvinnurekenda, og að unnið yrði að samningu rammalöggjafar um löggildingu til starfa. Þá komu frá ýmsum félögum all margar álykt- anir um fræðslumál, og vandamál lítilla og meðal- stórra fyrirtækja við að liafa iðnnema. M.a. kom eftirfarandi fram í þessari ályktun: Það er almennt viðurkennt að þeir sem leggja stund á iðnnám verða í framtíðinni lykilmenn í iðnþróun nútímaþjóðfélagsins. Þess vegna má menntun þeirra ekki staðna. — Laun fyrir ófaglærða eru það há, að freist- andi er fyrir ungt fólk að leiða hjá sér iðn- nám. Því er lagt til að laun vegna iðnnema séu undanþegin launatengdum gjöldum, þannig að hægt sé að skapa æskilegt jafn- vægi í þessum efnum. Þá er bent á, að gjald sem meistarar fá fyrir að hafa nema, sé orð- ið of lágt, enda hafi það ekki breyst lengi. Þar sem skólaæskan er mjög lítið upplýst um verklegt nám, er lagt til að Sænska iðn- sambandið beiti sér fyrir sérstakri fræðslu urn iðnnám í skólurn. Á það var bent, að nemendur sameinaðra framhaldsskóla (gymnasiskoler) fengju ó- nóga verklega kennslu, sérstaklega til hand- iðnaðarstarfa í litlum mæli og meðalstórum fyrirtækjum. Var talið nauðsynlegt að færa verklegu kennsluna meira út til fyrirtækj- anna. Talið var að iðnnám í ýmsum bygginga- greinum væri orðið úrelt og miðaðist ekki við nýjustu byggingaraðferðir. Var samþykkl að leggja til að þetta nám yrði endurskoðað í samráði við viðkomandi félagssamtök. Hér að framan hafa einungis fáar ályktanir ver- ið nefndar, en meðal þeirra sem ekki hefur verið fjallað uin, fjölluðu nokkrar ályktanir um innan- félagsmálefni, svo sem gjald til samtakanna, svæða- skiptingu þeirra o.s.frv. í lok þingsins var Stig Stefanson, optikermeistari endurkjörinn forseti Sænska iðnsantbandsins næstu tvö árin, og hafði hann þá gegnt embættinu í 18 ár. Stjórnarfundur í Norrœna iðnráðinu Daginn eftir sænska iðnþingið, miðvikudaginn 24. september, var haldinn stjórnarfundur í Nor- ræna iðnráðinu. Fundurinn var haldinn í húsa- kynnum Iðnaðarmannafélagsins í Stokkhóhni. Stjórnin er skipuð for.mönnum og forsetum iðn- sambandanna á Norðurlöndum. Að þessu sinni voru formenn Finnska og Norska iðnsambandsins forfallaðir. Norski framkvæmdastjórinn sat fund- inn sem fulltrúi sinna samtaka, en enginn fulltrúi var frá Finnlandi. Auk þeirra stjórnarmanna, sem mættir voru, sátu framkvæmdastjórar iðnsamband- anna fundinn. Eftir að fundargerð frá Norræna iðnþinginu í Oslo 1974 hafði verið samþykkt, var gengið til dag- skrár. Fyrst var rætt um samstarf og samskipti atvinnu- rekendafélaga og félagssamtaka iðju og iðnaðar á Norðurlöndunum og gerðu fulltrúar frá hverju landi grein iyrir ástandi þeirra mála í sínu heima- landi. í öllum löndunum hefur verið rætt all niikið um þetta mál, en vegna þess hve ofarlega það hef- ur verið á baugi í Noregi, kom ósk þaðan um að taka það á dagskrá fundarins. Þessar umræður hafa sprottið út frá því, að menn ltafa farið að velta fyrir sér, hvernig koma mætti í veg fyrir tvíverknað milli sambandanna, og komið hefur í Ijós, þegar grant er skoðað, að þrátt fyrir einhvern málefnaágreining munu sam- tökin í flestum löndunum eiga fleiri málaflokka sameiginlega, heldur en þar sem um ágreining er að ræða. Þess vegna hefur sú spurning vaknað, hvort samtökin næðu e.t.v. betri árangri í starfi sínu með aukinni samvinnu eða jafnvel samruna. Stims staðar hafa umræður leitt til þess að samstarfs- samningar hafa verið gerðir rnilli viðkomandi sam- taka, eða unnið er að því að auka samvinnu þeirra. í Danmörku hafa átt sér stað viðræður rnilli Danska vinnuveitendasamtvandsins, samtaka stór- kaup.manna og Danska iðnsambandsins (Hánd- værksrádet). Hala þær einkum beinst að því að skilgreina ákveðna verkaskiptingu milli samtak- 47

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.