Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Blaðsíða 48

Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Blaðsíða 48
anna og finna á 'hvaða sviðum um tvíverknað gæti verið að ræða, svo og finna málefni, sem samtökin sinna ekki, en meðlimir þeirra gætu haft áhuga á. Ekki er gert ráð fyrir neinni verulegri breytingu á félagsuppbyggingunni í Danmörku á næstunni. Framkvæmdastjóri Sænska iðnsambandsins gerði, að beiðni finnska framkvæmdastjórans, grein fyrir þróuninni í þessum efnum í Finnlandi. Þar hefur verið sett á fót nefnd með fulltrúum flestra atvinnu- greinasamtaka landsins, bæði þeirra sem að iðnað- armálum vinna og annarra. Ennfremur hafði ver- ið gerður samningur milli fjögurra iðnaðarsamtaka ttm samruna þeirra í ein samtök og skyldi hann ganga í gildi þann F janúar ] 976. Eru þetta sam- tök finnska skógarhöggsiðnaðarins, málm- og skipa- smíðaiðnaðarins, samtök meðalstórra iðnfyrirtækja og iðnrekendafélagið. Ein samtök, Finnska iðn- sambandið (systursamtök Landssambands iðnaðar- manna) verða utan þessa sambands og stafar það af ólíkri uppbyggingu og mismunandi aðferðum við álagningu aðildargjalda þessa sambands og hinna. Elins vegar hefur verið gerður samstarfs- samningur milli þess og iðnrekendafélagsins, þann- ig að tengslin milli þessara samtaka verða tryggð. í Noregi hafa gamlar umræður, sem ekki leiddu til árangurs árið 1970, um samruna Norska iðnsarn- bandsins og iðnrekendafélagsins, verið teknar upp aftur. Árið 1974 var skipuð nefnd, sem saman- stendur af fulltrúum frá þessum samtökum, ásamt fulltrúa frá Norska vinnuveitendasambandiriu og ennfremur fulltrúa frá „Vinnuveitendasambandi handiðnaðarins", sem er cins konar sjálfstæð deild innan Norska vinnuveitendasambandsins. Þegar stjórnarfundurinn var haldinn, hafði náðst sá árangur, að samkomulag hafði verið gert milli vinnuveitendasambandanna og iðnsambandsins um verkaskiptingu samtakanna. Ennþá vantaði nokk- uð á að hugmyndin um samruna iðnsambandsins og iðnrekendafélagsins gæti orðið að veruleika, en fulltrúi iðnsambandsins á fundinum dró ekki dul á að hann teldi það æskilegt. (Þegar Jretta er skrif- að hefur verið gerður samningur um ákveðið sam- starf þessara samtaka á næstu þremur árum. Verð- ur á tímabilinu ákveðið hvort, og þá með hvaða hætti, samtökin skuli sameinast. Verður tekin aí- staða til þessa samkomulags á næsta aðaliundi sam- takanna). I Svíþjóð hefur komið til lals að Sænska vinnu- veitendasambandið og iðnrekendaféíagið samein- uðust í einu sambandi, en al því hefur ekki orðið. Ennfremur hafa fleiri möguleikar um einföldun á uppbyggingu atvinnurekendasamtakanna verið til umræðu og m.a. aukin samvinna Sænska iðnsam- bandsins og verslunarsamtakanna svo og iðnrek- endafélagsins. Þessar viðræður hafa ekki leitt til verulegs árang- urs. Eins og lram kom í frásögninni af sænska iðn- þinginu hér að framan, vilja forsvarsmenn Sænska iðnsambandsins fara hægt í sakirnar varðandi sam- runa samtakanna, þótt þeir séu sammála urn nauð- syn verkaskiptingar og samvinnu. Leggja þeir sér- staka áherslu á, að því aðeins sé hægt að minnast á samruna, að tryggt sé að hagsmunum einstakl- ingsfyrirtækja og lítilla fyrirtækja sé ekki gert minna undir liöfði en áður. Af íslands hálfu var lögð fram skrifleg skýrsla um samstarf Landssambandsins og aðiklarfélaga þess, Vinnuveitendasambands íslands og Félags ísl. iðnrekenda. Skýrt var frá viðleitni til aukinnar verkaskipting- ar milli aðildarfélaga Landssambandsins annars vegar og Landssambandsins hins vegar. Ennfremur var gerð grein fyrir samstarfi Landssambandsins og Félags ísl. iðnrekenda, svo og verkaskiptingu þess- ara samtaka og Vinnuveitendasambandsins. Nokkra athygli vöktu upplýsingar um reglubundna sanr- vinnu framkvæmdastjóra Landssambandsins og Félags ísl. iðnrekenda, svo og samstarfsnefnd þess- ara samtaka, sem í eiga sæti forseti og formaður samtakanna ásamt framkvæmdastjórunum. Þegar fulltrúar allra landanna hiifðu lokið grein- argerðum sínum, hófust umræður. Voru menn á einu rnáli um, að þar sem hér væri á ferðinni svo mikilvægt og áhugavekjandi umræðuefni og tími væri naumur til frekari umræðu, væri rétt að ræða það fljótlega aftur á stjórnarfundi. Var ákveðið að það skyldi gert og þess óskað að hvert land skilaði skriflegri greinargerð um það. Auk þessa rriáls var aðeins eitt mál á dagskrá. Fjallaði það um endurskoðun á starfsemi og end- urskipulagningu Alþjóða iðnsambandsins (IGU). Silg Stefanson, forseti Sænska iðnsambaridsins, sem á sæti í nefnd sem vinnur að þessu viðlangs- elni, gerði grein fyrir starfi nefndarinnar og stöð- unni í þessu ntáli. Ákveðið var að stefna að því að Norðurlöndin stæðu saman að álitsgerð um þetta elni og um það yrði ljallað á næsta stjórnarfundi, sem gert var ráð fyrir að yrði haldinn í sambandi við næsta þing alþjóðasamtakanna, sem halda átti í Genf í Sviss. Þar sem Landssamband iðnaðarmanna hefur lít- inn þátt tekið í starfi þessara samtaka, þótti ekki ástæða til að fulltrúar héðan færu á þann fund og af sömu ástæðu er ekki ástæða til að tíunda fyrir- bugaða breytingu á samtökum þessum hér. Fleiri mál voru ekki tekin fyrir á fundinum, en að honum loknum skoðuðu íslensku fulltrúarnir húsakynni Sænska iðnsambandsins og kynntu sér starfsemina þar. 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.