Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Síða 49

Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Síða 49
HIIAD ER AB GERAST í BVGGINGARIDNAHINDM? Nú um nokkurra ára skeið hafa vcrið gefnar út af hálfu þjóðhags- stofnunar (áður Hagrannsókna- deild Framkvæmdastofnunar) svo- kallaðar atvinnuvegaskýrslur. Itera þær nöfn atvinnugreina, Iðnaður, Sjávarútvegur og Verslun. Ekki verður hér rakið innihald þessara skýrslna, sem á margan hátt eru hinar ágætustu, heldur aðeins bent á tvö meginatriði, sem einkurn rýra gildi jreirra upplýsinga, sem þar koma fram. Annað atriði er, að skýrslurnar taka ntjög langan tíma í vinnslu. Iðnaður 1973, sem er nýjasta skýrslan, kom út í júlí 1975, og eru nýjustu upplýsingar um ein- stakar iðngreinar jjví 30 rnánaða gamlar nú Jregar jietla er skrifað í mars 1976. Hitt atrðiði er, að iðnaðarskýrslur þessar ná alls ekki til allra Jrátta iðnaðar og er jtá einkum átt við byggingariðnað- inn. Má í raun telja furðulegt hversu lengi hefur dregist að hag- skýrslugerð í byggingariðnaði sé komið í eðlilcgt horf, eða a. m. k. á svipaðan grundvöll og í öðrum atvinnugreinum, ef haldið er fast við jrá skilgreiningu, að bygging- ariðnaður sé sérstök atvinnugrein, en ekki hluti jsess sem einu nafni nefnist iðnaður. Um byggingariðn- að eru aðeins birtar opinberlega sáralitlar upplýsingar og eru jress- ar helstar: 1. Tölur yfir slysatryggðar vinnu- vikur, sem birtast í Hagtíðind- um 12—15 mánuðum eftir lok jjess árs, sem tölurnar eiga við. 2. Tölur um fjölda rekstrareinda (fyrirtækja) unnar í Þjóðhags- stofnun (Atvinnugreinaskrá). 3. í skýrslum Þjóðhagsstofnunar: Úr Jtjóðarbúskapnum birtast tölur um fjármunamyndun í íbúðarhúsum og byggingum hins opinbera. Hins vegar er ekki aðgreind fjárfesting í bygg- ingum og önnur fjárfesting at- vinnuveganna. í skýrslum Þjóð- hagsstofnunar birtast einnig töl- ur um l'ullgerð hús á landinu í þús m3. Að því er varðar íbúða- byggingar eru birtar tölur um fjölda byrjana og lúkninga, fjölda íbúða í smíðum um ára- mót svo og meðalstærð. Þessar upplýsingar liggja fyr- ir tæpu ári eftir lok jtcss árs, sem tölurnar eiga við. Af jjessu má ráða, hversu örðugt er að gera sér grcin fyrir, hvað í raun er að gerast í jressari atvinnu- grein, enda virðist lítil áhersla lögð á að kanna Jrað af opinberri hálfu. Sést Jretta t. d. greinilega sé litið á skýrslu Þjóðhagsstofnunar útg. október 1975, en Jrar er fjallað um atvinnugreinarnar sjávarútveg, landbúnað, iðnað (undanskilið fiskiðnaður og byggingariðnaður) og verslitn. 1 fáum orðum er síð- an fjallað um byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð ásamt opin- berri ])jónustu o.fl., undir fyrir- sögninni: Aðrar greinar og frarn- leiðslan í heild, en jtar er aðeins getið um aukningu í byggingar- starfsemi og mannvirkjagerð um ákveðinn lumdraðshluta og virðist því eingöngu miðað við fjárfest- ingu í landinu, senr verður að telja næsta vafasaman mælikvarða á stöðu byggingariðnaðarins. Skortir jrar allar upplýsingar um afkomu, þróun kostnaðarjrátta, markaðs- ástand og fjárfestingu í grcininni sjálfri. Virðist þó full ástæða til að athuga slíkt nánar, jrar sem í hlut á atvinnugrein sent hefur innan 49

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.