Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Page 51

Tímarit iðnaðarmanna - 01.01.1975, Page 51
ingariðnaðinum á þessu ári má geta sér til um breytinguna út frá mismunandi forsendum. Mynd 2. Á þessari mynd sést þróun fjár- festingar (fjármunamyndunar) annars vegar í heild og hins vegar í íbúðarhúsnæði frá 1965. Á mynd- inni sést, að fjárfesting í ibúðar- húsnæði liefur allt frá árinu 1965 verið minni hluti af heildarfjár- festingunni en hún var það ár, el undan er skilið árið 1973, en Við- lagasjóðshúsin koma nánast öll á það ár. Er mjög athyglisvert að gera sér grein fyrir því, að á árinu 1973 þegar sérstakt og óvenjulegt átak var gert í byggingu íbúðar- húsnæðis er fjárfesting í íbúðar- húsnæði svijjað hlutfall af heildar- fjárfestingunni og á árinu 1965. Burtséð frá þeim óvenjulegu að- stæðum, sem sköpuðust 1973 má segja að fjárfesting í heild hafi vaxið talsvert hraðar en fjárfesting í íbúðarhúsnæði allt lrá 1969 til 1974, (bilið milli línanna breikk- ar). Sé miðað við árið 1975 mætti t. d. hugsa sér að úr því að 3% samdráttur fjárfestingar í heild veldur 5% minni fjárfestingu í íbúðarbyggingum, þá muni 9.4% frekari samdráttur í fjárfestingu 1976 valda u. þ. b. 16% samdrætti í byggingu íbúðarhúsnæðis. Reynsla fyrri ára sýnir okkur hins vegar svo ekki verði um villst, að fjárfesting í íbúðarhúsnæði fylgir ekki heildarfjárfestingunni í smá- atriðum. Fjárfesting í íbúðarhús- næði virðist vera minnkandi hluti af heildarfjárfestingunni, en það gefur tilefni til að ætla, að áður- nefndur 9.4% samdráttur í heild- arfjárfestingu 1976 valdi sam- drætti, sem næmi að minnsta kosti 16% í íbúðabyggingum 1976 og sennilega mun meiri. Mynd 3. Á þessari mynd er sýnd þróun mannafla í almennum byggingar- iðnaði, auk rúmmetrafjölda íbúð- arhúsnæðis í smíðum við árslok 51

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.