Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 2
2 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR Margrét, tókstu karlana í nefið? „Menn hafa að minnsta kosti snýtt sér minna í dag en í gær.“ Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyf- ingarinnar, las þingmönnum pistilinn fyrir að taka of mikið í nefið, sem hún segir að setji ljótan blett á þingstörf. BRUSSEL, AP Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, boð- aði í gær til leiðtogafund- ar Evrópu- sambandsins 19. nóvember næstkomandi, þar sem leið- togarnir eiga að velja í tvö ný embætti, forseta leið- togaráðsins og utanríkisfulltrúa. Meðal þeirra sem helst þykja koma til greina eru Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Wolfgang Schüssel, fyrrverandi Austurríkiskansl- ari, og Paavo Lipponen, fyrr- verandi forsætisráðherra Finn- lands. Í gær staðfesti svo David Mili- band, utanríkisráðherra Bret- lands, að hann sæktist ekki eftir embætti utanríkisfulltrúans. - gb Styttist í forsetakjör ESB: Reinfeldt boðar leiðtogafund STJÓRNSÝSLA „Brýnt er að fá kostn- að vegna boðsferða í Elliðaárnar fram í dagsljósið þannig að borgar- fulltrúum gefist hér eftir tækifæri til að greiða allan kostnað vegna boðsferða sem þeir þiggja úr eigin vasa,“ segir Ólafur F. Magnússon í fyrirspurn í borgarráði í gær. Ólafur vill fá svör um kostnað borgarinnar og fyrirtækja hennar af boðsferðum kjörinna fulltrúa í Elliðaárnar og hverjir þeirra hafi farið til veiðanna árin 2006 til 2009. Eins og fram hefur komið á Reykja- víkurborg árnar í heild fráteknar í fimm daga á besta tíma. Þess utan hefur Orkuveitan úr tveimur dögum að spila á svipuðum tíma fyrir æðstu menn fyrirtækisins. „Vegna þess moldviðris sem borg- arfulltrúar VG hafa þyrlað upp vegna þessa kostnaðar er brýnt að fá kostnað vegna boðsferða í Elliða- árnar skýrt fram í dagsljósið þannig að borgarfulltrúum gefist hér eftir tækifæri til að greiða allan kostn- að vegna boðsferða úr eigin vasa ef þeir á annað borð vilja þiggja slík- ar boðsferðir,“ segir í fyrirspurn Ólafs. Að sögn Ólafs er Elliðaármálið hluti af stærra samhengi sem meðal annars lýtur að óþarfa ferðalögum borgarfulltrúa á kostnað borgarbúa. Varðandi Elliðaárnar segist hann sjaldan hafa farið þar til veiða á boðsdögum borgarinnar. „Ég hafði farið lítið undanfarin ár þar til ég varð borgarstjóri árið 2008 og fékk að opna árnar. Þá fékk ég veiðigleð- ina að nýju,“ segir hann. Í borgarstjórn í síðustu viku sagði Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, að málið snerist um fleira en peninga og veiðileyfi. „Þetta er spurning um það hvort við viljum halda for- réttindum okkar. Hvort okkur þyki það við hæfi að kjörnir fulltrúar og valdir embættismenn njóti þessara forréttinda. Að hæst launaða liðið í borginni taki frá marga bestu dag- ana í einni bestu laxveiðiá lands- ins fyrir sig á kostnað borgarbúa,“ sagði Þorleifur. Ólafur vill ekki ganga svo langt að afnema alla veiðidaga borgarinn- ar í Elliðaánum. Til dæmis sé vert að halda í þá hefð að fyrrverandi borgarstjórar veiði saman í einn dag. Þeir eigi hins vegar að borga kostnaðinn sjálfir. „Dagur í Elliðaánum er draumur í dós sem borgarfulltrúar hefðu gott af að kynna sér frekar en að fara í dýrar ferðir til útlanda,“ segir Ólaf- ur, sem kveðst vilja meira gegn- sæi í þessu máli nú vegna hræsni sem einkenni málið. „Þetta mál er upphaflega dregið fram af borgar- fulltrúum sem allir sem einn eru á bólakafi í ferðafylleríi fjórflokks- ins.“ gar@frettabladid.is Segir laxveiðiumræðu vera moldviðri frá VG Ólafur F. Magnússon segir borgafulltrúa VG hafa þyrlað upp moldviðri vegna veiðidaga Reykavíkurborgar í Elliðaánum. Hann vill kostnaðinn upp á borðið svo að borgarfulltrúum „gefist hér eftir tækifæri“ til að greiða hann sjálfir. ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Samkvæmt gamalli hefð hóf borgarstjóri veiðar í Elliðaánum í júní í fyrra. Ólafur F. Magnússon veiddi svo aftur í ánum í júlí á boðsdögum sem fráteknir eru fyrir Reykjavíkurborg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÖRYGGISMÁL Stjórnstöð Landhelg- isgæslunnar hafði í gær samband við risaolíuskipið Urals Star sem tilkynnti ekki um ferðir sínar við landið eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Að undanförnu hefur stjórnstöðin haft samband við fleiri skip þar sem skipstjórum þeirra er ekki kunnugt um tilkynninga- skyldu þegar siglt er um lögsögu landsins. Skipið var í gær á siglingu undan Suðausturlandi með 106 þúsund tonn af hráolíu innanborðs og stefndi tólf mílur suður af Dyrhóla- ey en skipið er á leið frá Murmansk í Rússlandi til austurstrandar Bandaríkjanna með olíu til hreins- unar. Þegar haft var samband við skipið var það um 22 sjómílur SA- af Hrollaugseyjum. Var skipstjóri upplýstur um óskir Íslands um að öll skip á leið um lögsöguna upplýsi um ferðir sínar, ekki síst skip af þessari stærð og með slíkan farm. Landhelgisgæslan hefur orðið vör við mikla aukningu flutninga- og farþegaskipa við landið. Stærð þess- ara skipa fer sífellt vaxandi og er því nauðsynlegt að vera Íslending- ar séu viðbúnir óhöppum sem geta orðið á íslenska hafsvæðinu. Grannt er fylgst með skipunum enda afar hættulegur farmur um borð. - shá Landhelgisgæslan þarf ítrekað að hafa samband við skip með hættulegan farm: Risaolíuskip tilkynna sig ekki URALS STAR Skipið er um 115 þúsund brúttótonn, 254 metrar að lengd og 44 metrar að breidd. Farmurinn er 106 þúsund tonn af hráolíu. MYND/LHG VIÐSKIPTI Rúmlega sjö hundruð umsóknir hafa borist Íslandsbanka breytingu á höfuðstól bílalána og bílasamninga í erlendri mynt í verðtryggðar íslenskar krónur frá mánaðamótum, samkvæmt upplýs- ingum frá bankanum. Þrjú hundr- uð viðskiptavinir bankans hafa tekið greiðslujöfnunarúrræði rík- isstjórnarinnar hjá bankanum á sama tíma. Bankinn hóf að bjóða viðskipta- vinum upp á möguleikann sam- hliða úrræðum ríkisstjórnarinn- ar um síðustu mánaðamót. Reiknað er með að höfuðstóll lánanna lækki um 23 prósent að meðaltali. Viðskiptavinum bank- ans býðst sömuleiðis kostur á að breyta verðtryggðum bílalánum í óverðtryggð lán og lækka höfuð- stól lána um fimm prósent. Á bilinu hundrað til 150 umsókn- ir berast bankanum um breytingu á höfuðstól lánanna á degi hverj- um, samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Ingvar Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Íslandsbanka Fjár- mögnunar, segir leiðirirnir henta viðskiptavinum bankans misvel. Sumir sjái sér hag í því að lækka höfuðstólinn með því að nýta úrræði bankans en aðrir horfi til þess að lækka greiðslubyrðina. - jab ÚR BANKANUM Sjö hundruð við- skiptavinir Íslandsbanka hafa sótt um breytingu á erlendum bílalánum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þúsund manns hafa sótt um breytingu á lánum sínum hjá Íslandsbanka: Allt að 150 umsóknir á dag FRÉTTABLAÐ- IÐ Á MÁNU- DAG Sagt var frá laxveiði borgarfull- trúa í Ellið- ánum fyrr í vikunni. naði ókn élag- tins- vanta i. ósent ninu ma i á þrjú ð bæta r gri aldurs- i og viðhald r i LM STJÓRNMÁL Meirihluti Sjálfstæði s- flokks og Framsók narflokks í borgar stjór n vísaði frá tillögu full - trúa Vinstr i grænna u m að fimm veiðidagar Reykjavíku rborgar í El l- iðaánum yr ðu leigðir S tangaveiðif é- lagi Reykja víkur eins o g aðrir veið i- dagar í ánu m. Að því er fram kemu r í bókun Þorleifs Gu nnlaugsson ar, borgar- fulltrúa VG , áskilur R eykjavíkur - borg, sem eigandi Ell iðaánna, sé r rétt til að ráðstafa ve iði í ánum í fimm daga á hverju sum ri. Það jafn- gildi sextíu veiðileyfu m í ánum á besta tíma. Orkuveita Reykjavíku r hefur umsj ón með Elli ðaánum, se m eru leigðar út til Stang aveiðifélag s Reykjavíku r. Stjórn Or kuveitunna r fyrir sitt ley ti vísaði á R eykjavíkur - borg þegar þar var lag t til að legg ja af umrædd a veiðidaga . Meirihlutin n í borgarst jórn vísaði í samkomu lag Orkuve itunnar og Stangaveið ifélags Re ykjavíkur. „Borgarfu lltrúum er í sjálfsva ld sett hvort þ eir þiggja u mrætt boð um veiði í E lliðaánum. Með hliðsjó n af því og þe irri umsögn sem borist hefur frá St angaveiðifé lagi Reykja - víkur er til lögunni vís að frá,“ sag ði í frávísun artillögu m eirihlutans sem samþy kkt var með átta atkvæð - um gegn se x. Fulltrúi VG sagði fráví sun meiri- hlutans ósk iljanlega þa r sem meir i- hluti stjórn ar Orkuvei tunnar hef ði vísað til s amnings R eykjavíkur - borgar og O rkuveitunn ar frá 2001 þar sem bor gin áskildi s ér rétt til að ráðstafa fim m veiðidög um í Elliða - ánum. „Þarna ví sar hver á annan í þeim augl jósa tilgan gi að þæf a málið og fi rra sig áby rgð,“ segir í bókun Þorl eifs, sem k veður veiða r borgarfullt rúa og emb ættismann a í Elliðaánu m vera bar n síns tíma og sjálfsag t eiga rætu r að rekja t il þess tíma þegar borg arfulltrúar fengu mun lægri laun en í dag. „Nú er öld in önnur o g enginn borgarfull trúi er me ð laun und ir 500 þúsun d krónur á mánuði o g ættu þeir þ ví að geta b orgað fyrir sín veiðiley fi sjálfir. Í s vari Stanga - veiðifélags ins segir að undanfari n ár hafi mu n færri fen gið en vilja ð veiðileyfi í ánum veg na mikilla r eftirspurn ar,“ bókar Þorleifur og bendir á að sala v eiðileyfann a myndi fær a borginni peninga á tímum mik illa fjárhag sþrenginga og niðursku rðar. Miðað við v erð Stangav eiðifélags- ins á veiðile yfum til fél agsmanna á besta tíma í fyrra ko stuðu fimm dagar alls um 800 þú sund krónu r. gar@frettabla did.is Borgarstjórn hættir ekki veiði í Elliðaám Reykjavíku rborg mun áfram ráð stafa fimm veiðidögu m í Elliðaá m til borga r- fulltrúa og embættism anna. Mei rihlutinn v ísaði frá ti llögu VG u m að leigja frekar veið ina út til S tangaveiði félags Rey kjavíkur. M álið þæft s egir fulltrú i VG. DAGUR B. EG GERTSSON Ve iddi í boði borgarinnar í júlí í fyrra. ÓLAFUR F. M AGNÚSSON OG VILHJÁLM UR Þ. VILHJÁ LMSSON Á ei num veiðidag a borgarinnar í júlí í fyrra. FRÉTTABLAÐ IÐ/AUÐUNN ing var frá þingfu mátti Chris topher Hill , sendiherr a Bandaríkja nna, á þönu m milli þing - flokka til að miðla málu m og þrýsta á að lögin y rðu samþyk kt. yrð Kosningar í landinu hugaðar se inni partin n í janúar. - gb og Khaled Sh wa NORDICPHO TOS/AF S ð rnesjame nn og -konur skora á stjórnv öld að gang í K flavík STJÓRNSÝSL A I Gísladóttir , f maður Sam f fyrrverand i er meðal þ ei starf mans a Öryggis- o g Evrópu. Ut styður ums beitir sér f þessu var Embætt meðal þei hlutverk h á málefni Ingibjörg Sólr Sækir u mansa EL S ma að í E he rá h u a h Man N m LEÐJU hreins 100 manns á þjóðfund ember. ðu boðað sti 88 ára. nt mark- jóðarinnar, nd voru út rtaki. Loka ð ar á þriðju- fyrirtækja , mtaka legg ur kisstjórn n hóp á föst u- króna fram - - hhs mu: kn di BARNAVERNDARMÁL Níu ára gam- all drengur, sem var tekinn frá ömmu sinni fyrir nokkrum dögum, fékk í gær að snúa aftur til hennar. Þetta kom fram í frétt- um Stöðvar 2 í gær. Félags- og tryggingamálaráðu- neytið hefur úrskurðað að dreng- urinn skuli dvelja hjá ömmu sinni þangað til forsjármál gegn móður hans verður tekið fyrir. Drengurinn og bróðir hans hafa búið hjá ömmu sinni frá síðast- liðnu hausti. Samkvæmt bréfi ráðuneytis- ins á amman að fara á námskeið á vegum Barnaverndarstofu til að verða fósturforeldri. - þeb Drengur ekki sendur í fóstur: Kominn aftur til ömmu sinnar DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í gær dóm yfir manni fyrir kyn- ferðisbrot gegn barnabarni sínu. Maðurinn var dæmdur í átján mánaða fangelsi. Stúlkan er fædd árið 1994, og er maðurinn sakfelldur fyrir að hafa þuklað á henni fjórum sinn- um á árunum 2005 til 2008. Hér- aðsdómur dæmdi manninn til að greiða stúlkunni 800 þúsund krónur í bætur, og hefur hann þegar greitt henni bætur. Fram kemur í dóminum að brotin hafa haft mikil áhrif á andlega líðan stúlkunnar. Mað- urinn hafi gróflega misnotað aðstæður og trúnaðartraust stúlkunnar. - þeb Afi í átján mánaða fangelsi: Braut gegn barnabarni Lúpina í 30 hektara Landgræðslan hefur lokið við sáningu lúpínufræs í um 30 hektara svæði á Bakkafjöru, að því er fram kemur á heimasíðu Landgræðslunnar. Sáð var til að bæta jarðveg og spara áburð með því að nýta eiginleika lúpínunnar til áburðarframleiðslu. Góð reynsla er af sáningu lúpínu að hausti og nýtist betur en með hefðbundinni vorsáningu. UMHVERFISMÁL TONY BLAIR FÓLK Áttatíu viðburðir hafa verið skráðir á Alþjóðlegu athafna- vikuna sem hefst um land allt á mánudag. Rúmlega hundrað lönd halda vikuna á sama tíma. Markmið vikunnar er að vekja fólk til umhugsunar um gildi nýsköpunar og athafnasemi í samfélaginu. Athafnavikan hefst með því á mánudag að allir bæjarstjór- ar landsins, ráðherrar, formenn stjórnmálaflokka, athafnafólk og fjölmiðlamenn munu fá Athafna- teygju afhenta. Sá sem teygjuna fær setur hana á úlnlið sinn og á að framkvæma eitthvað sem hann hefur látið sitja á hakanum. Að því loknu á að láta hana ganga á milli manna. Hvert verk á að skrá á vefsíðuna www.athafna- teygjan.is þar sem fylgjast má með árangri hverrar teygju. - jab Athafnavika hefst á mánudag: Hægt að skoða dugnaðinn ATHAFNAVIKAN KYNNT Katrín Júlí- usdóttir iðnaðarráðherra fær fyrstu Athafnateygjuna á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.