Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 60
40 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is Auglýsingasími – Mest lesið „Ég er nú þegar komin í það. Ég fór í jólaskapið þegar ég var að velja lögin á diskinn minn,“ segir Sigga Beinteins, spurð hvort hún sé komin í jólaskap. Hún hefur í nógu að snúast á næstunni því hvert jólaverkefn- ið á fætur öðru er að líta dagsins ljós. Fyrst ber að nefna nýja jólasafnplötu, Jólalögin mín, sem hefur að geyma öll helstu jóla- lög Siggu ásamt nokkrum nýjum. Þar má nefna Nei, nei, ekki um jólin, Það eina sem ég vil og Litli trommuleikarinn. „Ég var allt- af með þennan disk í huga en það er mjög stutt síðan ég ákvað að gera hann. Þetta var ákveðið á föstudegi og hann var kominn út á fimmtudeginum á eftir,“ segir Sigga. „Ég var fyrst að hugsa um að láta þetta bíða en svo hugsaði ég, nei, og kýldi á þetta.“ Sigga heldur ferna jólatónleika í kirkjum á næstunni, sem er nýlunda hjá henni því hingað til hefur hún einbeitt sér að dans- leikjum. „Ég hlakka rosalega til en þetta er líka smá stress. Ef maður er á tónleikum þarf maður virkilega að vanda sig og sýna hvað í manni býr.“ Henni til halds og trausts verða hljóðfæra- leikararnir Grétar Örvarsson og Matthías Stefánsson. Að auki verður Sigga önnum kafin við söng á jólahlaðborðum Hilton-hót- elsins frá og með 21. nóvember ásamt Dadda diskó. - fb Sigga í sannkölluðu jólaskapi SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓTTIR Sigga Beinteins er að gefa út nýja jóla- safnplötu og heldur ferna jólatónleika í kirkjum á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Jólatónleikar Siggu: Keflavíkurkirkja 20. nóv. Hveragerðiskirkja 22. nóv. Stykkishólmskirkja 29. nóv. Grafarvogskirkja 10. des. Listamaðurinn Etienne de France er maðurinn á bak við Íslandslest- ina, eða Iceland Train, sem visir. is fjallaði um fyrir stuttu. Íslands- lestin er ekki raunverulegt fyrir- tæki í eigu almennings heldur listaverk sem Etienne vann fyrir sjónlistahátíðina Sequences sem fram fór í byrjun nóvember. „Þetta er útópísk hugmynd um hlut sem gæti orðið. Íslandslest- in er ímyndað fyrirtæki en þetta er sett upp sem um raunverulegt fyrirtæki sé að ræða, þannig að þetta er blanda af fantasíu og raun- veruleika. Mig langaði að prófa að gera fyrirtæki og auglýsingaher- ferð í kringum það og sjá hvernig fólk brygðist við því. Þar að auki er lestin sjálf mjög freudískt tákn þannig að það má segja að verkið sé mjög táknrænt á mjög margan hátt,“ útskýrir Etienne, sem segist hafa heillast af markaðsaðferðum nútíma stórfyrirtækja. Etienne hannaði vefsíðu í kring- um hið ímyndaða fyrirtæki auk þess sem hann kynnti það í gegn- um Fésbók, en á vefsíðunni getur fólk einnig lagt brautartein og fylgst með framkvæmdunum sjálf- um. „Ég veit ekki hvað fólki finnst um verkið, þetta er mjög ólíkt því að sýna í hefðbundnu galleríi. Nú hafa tæp þrjú þúsund manns þegar heimsótt síðuna, sem þykir nokkuð gott miðað við að um listaverk sé að ræða,“ segir Etienne að lokum. - sm Íslandslest útópísk hugmynd ÍSLANDSLESTIN Etienne de France er listamaðurinn á bak við verkið Íslands- lestina sem var gert í tengslum við Sequences. MATGÆÐINGUR Rósa Guðbjarts, bæjarfulltrúi og matgæðingur, hefur sent frá sér matreiðslubók. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Rósa Guðbjarts hefur gefið út matreiðslubókina Eldað af lífi og sál. Hún segir réttina vera einfalda, holla og góða. „Ég er sífellt að lesa mér til um matargerð og er alltaf að prófa eitthvað nýtt og fikra mig áfram í þeim efnum. Bókin er afrakstur- inn af því,“ segir matgæðingurinn Rósa Guðbjarts, sem hefur gefið út sína fyrstu matreiðslubók, Eldað af lífi og sál. Rósa hefur unnið og skrifað fyrir Gestgjafann síðastliðin tíu ár og segist hafa haft gríðarlegan áhuga á eldamennsku allt frá blautu barns- beini. Aðspurð segist hún hafa haft úr mörgum uppskriftum að velja en ákveðið að hafa það að leiðarljósi að uppskriftirnar væru einfaldar og fljótlegar. „Ég vil ekki hafa hlutina of flókna heldur eiga réttirnir að vera einfaldir, hollir og góðir. Það var ákveðin kúnst að ákveða hvaða uppskriftir ættu erindi í þessa bók en ég hafði áður gert mér grein fyrir því að ég vildi hafa hana hlý- lega með skemmtilegu litasamspili og þannig vann ég úr þessu.“ Hún segir það ekki útilokað að hún gefi út fleiri matreiðslubækur í fram- tíðinni. „Á meðan ég vann að þess- ari bók urðu til nýjar hugmynd- ir þannig að það er ekki útilokað að ég gefi út aðra matreiðslubók á næstu árum. En hvenær það verður er alveg óráðið enn.“ Tveir frændur Rósu sáu um útlitshönnun bókarinnar og tóku að auki ljósmyndirnar sem prýða hana og því má segja að um fjöl- skylduverkefni sé að ræða. „Tveir uppáhaldsfrændur mínir, Magn- ús Hjörleifsson og Björn H. Jóns- son, aðstoðuðu mig í þeim efnum,“ segir Rósa og hlær. Þegar Rósa er innt eftir því hvort hún eigi sér eftirlætisrétt segir hún það vera kjúklinga- bringur fylltar með sólþurrk- uðum tómötum. „Það er líklega sá réttur sem ég hef eldað hvað oftast í gegnum árin og við fjöl- skyldan fáum aldrei leið á honum. Þetta er fljótlegur réttur en alveg afskaplega góður,“ segir Rósa að lokum. RÓSA ELDAR AF LÍFI OG SÁL FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI „Starfsfólk mitt á hárgreiðslu- stofunni Mojo ákvað að gefa mér þessi huggulegheit í afmælis- gjöf,“ segir Nína Kristjánsdótt- ir sem varð fyrir hrekk á 29 ára afmælinu sínu. Nína er annar eig- andi Mojo og lét starfsfólk hennar birta smáauglýsingu í helgarblaði Fréttablaðsins sem í stóð: „Á frí- miða á leik Manchester United- Everton, 21. nóvember. Leita að ferðafélaga. Karlmenn, endilega hafið samband“, en meðfylgjandi var símanúmer og mynd af Nínu. „Síminn byrjaði að hringja um sjöleytið á laugardagsmorgnin- um. Ég skildi ekki neitt hvað var í gangi, en þegar sá fyrsti sem hringdi las upp fyrir mig auglýs- inguna setti ég símann á „silent“, útskýrir Nína brosandi og segir að fjöldi fólks hafi hringt og hald- ið að um fúlustu alvöru væri að ræða. „Þetta var bara sjúkt, ég hélt að fólk myndi fatta að þetta væri bara húmor. Síminn hætti ekki að hringja fyrr en á mánudag og ég hef örugglega fengið yfir 200 símtöl og sms,“ bætir hún við. „Ég hef húmor fyrir þessu því ég er algjört fótboltafrík og er nýkomin að utan af leik Manchester-Sund erland, en ef þetta hefði verið eitthvað annað hefði ég snappað,“ segir Nína og hlær. - ag Fékk yfir 200 símtöl út af hrekk „ALGJÖRT FÓTBOLTAFRÍK“ Nína segist hafa húmor fyrir hrekknum sem starfsfólk hennar á hárgreiðslustofunni Mojo stóð fyrir. > TYLER EKKI HÆTTUR Söngvarinn Steven Tyler seg- ist ekki vera hættur í rokksveit- inni Aerosmith þrátt fyrir orðróm þess efnis. „Ég vil að New York- búar viti að ég er ekki að hætta í Aerosmith,“ sagði hann á sólótónleikum gítarleik- arans Joe Perry. Í síð- ustu viku sagði Perry að leit stæði yfir að nýjum Aerosmith-söngvara en henni hefur sem sagt verið hætt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.