Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 36
4 föstudagur 13. nóvember
Vera Sölvadóttir og
Magnús Jónsson
eru dúettinn BB & Blake.
Dúettinn varð til árið
2006 en fyrsta platan,
sem heitir einfaldlega
BB & Blake, er þessa
dagana að skríða á
Netið og í búðir. Dúett-
inn ætlar sér að gera
usla á dansgólfunum og
segir að það sé miklu
skemmtilegra að vera í
hljómsveit í kreppu en í
góðæri.
Texti: Dr. Gunni
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
P
latan er miklu fjöl-
breyttar i en það
sem við höfum sýnt
af okkur til þessa,“
segir Magnús Jóns-
son. „Við erum ekkert endilega
í þessu sama poppi og var það
fyrsta sem fólk heyrði með okkur.
Við förum aðeins yfir í eitís-sándið
og trip hopp. Þarna er líka frönsk
kaffihúsastemning í einu lagi. Það
er alltaf verið spyrja mann hvern-
ig tónlist maður er að gera en ég
veit aldrei hvernig tónlist ég er að
gera. Veit það nokkur? Ég fer allt-
af bara út í horn. Vóó … ég er bara
að gera einhverja músík.“
Vera: „Við samt byrjuðum á
því að hugsa, til dæmis: Gerum
hérna eitt diskólag. Og svo breytt-
ist allt í ferlinu og varð eitthvað
allt annað.“
Magnús: „Það var enginn út-
gangspunktur. Við ákváðum bara
að gera lög saman. Við komum úr
ólíkum áttum og erum með ólíkan
bakgrunn. Hún hefur búið mikið
í Frakklandi og hefur gert heim-
ildarmyndir og ég er leikari. þetta
smitast inn í lögin.“
GENGIÐ Á MEÐ HLÉUM
Vera: „Ég var að gera lokaverkefni
í kvikmyndaskóla sem ég var í úti
í Frakklandi. Einhver jólin kom
ég heim og heyrði eitthvert disk-
ólag með Magga sem mér leist vel
á og vildi fá í myndina. Ég spurði
hann bara og þannig byrjaði þetta.
Það varð eiginlega skiptidíll út úr
þessu. Ég fékk lagið en Maggi bað
mig um að syngja inn á lag sem
hann var að gera og vildi hafa á
frönsku. Við fórum svo bara að
senda músík á milli í tölvupósti.“
Magnús: „Við sögðum aldrei: Nú
stofnum við hljómsveit og förum
inn í skúr og teljum í. Þetta hefur
bara gengið á með hléum. Stund-
um hefur hún verið á fullu í sínu
og ég í leiklistinni. Nú þegar platan
er komin verður bandið áberandi
um hríð. Við erum búin að fjölga
í því. Árni Kristjánsson (gítarleik-
ari Silfurtóna og Vonbrigða) og Dj
Hlynur eru orðnir fastir meðlimir
og við erum með fullt af fólki sem
droppar inn á tónleika.“
Útgáfutónleikar plötunnar verða
annað kvöld, laugardagskvöld-
ið 14. nóvember, á Sódómu. „Við
erum með tvö selebritís sem koma
fram með okkur,“ segir Magnús.
„Þá Barða Jóhannsson og Ingvar
E. Sigurðsson. Ingvar er lunkinn
á harmóníkunni og leynir á sér á
hljómborðinu. Og svo eru þarna
líka Jara og Unnur Birna Björns-
dóttir – ekki alheimsdrottning,
heldur rokkari.“
Vera: „Dóttir hans Magga, Hekla
Magnúsdóttir, ætlar líka að koma
fram með okkur. Hún spilar á ter-
amín og er í hljómsveitinni Báru-
járn. Mátti ég ekki segja þetta?“
Magnús: „Ha, jú jú! Ég viður-
kenni það alveg að ég er orðinn 44
ára. Er rokkið alveg ónýtt núna?“
Vera: „Nei nei, Rod Stewart er
miklu eldri en þú.“
JÁRNIN Í ELDINUM
Meðlimir BB & Blake hafa mörg
járn í eldinum. Það er íslenska
aðferðin.
Vera: „Þetta er svolítið kaótískt,
ég viðurkenni það. Maggi er að
leika á fullu svo við æfum á kvöld-
in. Ég er að vinna heimildarmynd
með Þorsteini Joð sem við tókum
upp í Afríku. Hún er um hjón á
Hvolsvelli sem eru komin á eft-
irlaunaaldur. Þau eru með skóla
úti í Búrkína Fasó. Þegar krepp-
an skall á varð erfiðara að fjár-
magna skólann svo þau keyrðu
tvo jeppa rúmlega níu þúsund
kílómetra til að selja þá fyrir skól-
ann. Við eltum þau og vonumst til
að afraksturinn komi í sjónvarp-
ið um jólin. Svo er ég að kenna í
Kvikmyndaskóla Íslands. Og líka
að búa til stuttmynd með vinum
mínum.“
Magnús: „Ég er að æfa fyrir aðra
syrpu af Rétti, sem fer í tökur eftir
rúma viku. Ég er að koma mér í
þann gírinn núna. Ég er svo líka í
Brennuvörgunum í Þjóðleikhúsinu
og svo fer ég norður og leik Frank-
N-Furter í Rocky Horror eftir ára-
mót.“
Vera: „Magnús hefur alltaf verið
góður í sokkabuxum.“
MAGGI GEIMVERA
Magnús er áhugamaður um geim-
verur og samsæriskenningar. Ég
má til með að spyrja hann aðeins
út í það. Vera varar mig við að það
geti tekið langan tíma svo ég bið
um stuttu útgáfuna.
„Aðalatriðið í geimverufræð-
um – exopolitics – er að sálin
er eilíf. Við erum orka. Þetta er
bara millibilsástand, stoppi-
stöð,“ segir Magnús. „það sem
mér finnst merkilegast núna er
að það er enginn að velta áhrif-
um bóluefnisins á svínaflensuna.
Það er rosalega lítil umræða um
það. Allir fjölmiðlar keyra á sömu
fölsuninni. Svo þegar maður les
aðra hlið á málinu eru margir
sem segja: Ekki taka þetta! Bólu-
setningin er stórhættuleg! Það er
kvikasilfur í þessu og ekki búið að
prófa þetta á fólki. Hver segir svo
að þessi svínaflensa sé eitthvað
hættulegri en aðrar flensur? Það
er bara búið að ljúga þessu í haus-
inn á okkur.“
Vera: „Af hverju fórum við að
tala um þetta?“
Magnús: „Nú, þetta er partur af
exopolitics. Þetta er partur af „The
new world order agenda“.
Exopolitics – hvað er nú það?
Magnús: „Það er orð sem rúmar
margt, til dæmis geimverufræði
og Illuminati. Sumir kalla þetta
samsæriskenningar. Ég kalla þetta
„alternative thinking“. Ég er stolt-
ur af því að vera kallaður Maggi
geimvera. Ég er alveg hundrað pró-
sent viss um að við séum geim-
verur. Í alvöru! Þróunarsaga Dar-
wins er bara eitthvað sem er búið
BANDIÐ BYRJAÐI SEM SKIPTI
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n
Uppáhaldsborgin mín:
Vera: Í dag er það New York.
Magnús: Prag.
Land sem langar að heimsækja:
Vera: Japan.
Magnús: Argentína.
Besti árstíminn á Íslandi:
Vera: Sumarið.
Magnús: Veturinn.
Uppáhaldshljómsveit eða tón-
listarmaður:
Vera: Madonna, Jara og David
Bowie.
Magnús: Ég kem með klisjuna:
David Bowie.
Skemmtilegast að gera:
Vera: Að vera til.
Magnús: Að leika tónlistar-
mann uppi í geimnum.
En leiðinlegast:
Vera: Bíða.
Magnús: Ég er of jákvæður til að vita það.
Uppskrift að fullkomnum
sunnudegi:
Vera: Vakna, fara í sund,
fara á hestbak, vera svo
lengi á hestbaki að maður
er að drepast úr hungri og
þarf að borða rosalega
mikið af kjötsúpu. Fara
svo á Annie Hall hafandi
aldrei séð hana.
Magnús: Vakna,
horfa á Esjuna út
um gluggann, fá
sér morgunmat,
fara í Koló, borða
sushi og fara svo á
Silence of the lambs
hafandi aldrei séð
hana.
Vera Sölvadóttir og Magnús Jónsson eru BB & Blake. „Platan er miklu fjölbreyttari en það sem við höfum sýnt af okkur til þessa.“