Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 69
FÖSTUDAGUR 13. nóvember 2009 49
Leikarinn Bruce Willis sagði
í viðtali við Fox News að hann
myndi aldrei leggjast undir hníf-
inn til að viðhalda unglegu útliti.
„Ég er ekki aðdáandi lýtalækn-
inga, en ég þekki marga einstakl-
inga sem notfæra sér hvers kyns
fegrunaraðgerðir til að viðhalda
útlitinu. Þessi bransi veltir háum
upphæðum árlega og þess vegna
reyna þeir allt hvað þeir geta til
að plata fólk út í ýmsa vitleysu.
Ég hef ekki í huga að láta skera í
mig, en það kæmi ykkur líklega á
óvart hversu margir karlleikarar
hafa hugsað um þetta. En mér er
nokkuð sama um útlit-
ið. Ég verð oft hissa
þegar ég er minnt-
ur á aldur minn því
í anda er ég enn 24
ára.“
Vill ekki láta
skera í sig
UNGUR
Í ANDA
Bruce
Willis
hefur ekki
áhuga á
að nýta
sér lýta-
lækningar.
Pamela Anderson lét nýverið þau
orð falla að það væri ekki mögu-
leiki að hún og fyrrverandi eigin-
maður hennar, rokkarinn Tommy
Lee, myndu nokkurn tímann taka
saman aftur. Anderson og Lee
giftu sig árið 1995 eftir að hafa
þekkst í aðeins tvo sólarhringa og
eiga þau saman tvo syni.
„Það er ekki hægt að láta
hryggbrjóta sig trekk í trekk. Ég
er hætt að svekkja mig yfir öllu
sem hann gerir. Hann trúir því
ekki sjálfur að hann sé að gera
nokkuð rangt. Ég segi honum
hvað mér finnst, en ég hef verið
særð af Tommy síðustu tíu árin
og nú er mér farið að standa á
sama. Svo lengi sem strákarnir
eru ánægðir, ég er ánægð og við
erum örugg má Tommy hlaupa af
sér hornin. Ég styð hann í því,“
sagði kynbomban.
Pamela ekki
lengur sár
HÆTT AÐ VERA SÁR Pamela Anderson
segist ekki vera sár út í rokkarann
Tommy Lee.
Tuttugu teiknimyndir hafa verið
tilnefndar sem Óskarskandídatar
á næsta ári og fimm þeirra verða
á endanum valdar í lokahópinn.
Á meðal tilnefndra mynda eru
Up, Coraline, Monsters vs. Ali-
ens, Ice Age: Dawn of the Dinos-
aurs og Astro Boy. Að lágmarki
þurftu sextán teiknimyndir að
vera gjaldgengar til Óskarsins
til að fimm myndir gætu síðan
keppt um verðlaunin. Þetta verð-
ur í fyrsta sinn síðan 2002 sem
fimm teiknimyndir verða í loka-
hópnum. Óskarsverðlaunin verða
haldin í 82. sinn hinn 7. mars. Til-
kynnt verður um tilnefningarnar
2. febrúar.
Tuttugu í
Óskarsslag
UP Teiknimyndin Up er ein þeirra sem munu vafalítið berjast um Óskarsverðlaunin á
næsta ári.
HÁRPRÚÐUR Taylor Lautner þoldi ekki
hárkolluna sem hann bar í New Moon.
Hinn sautján ára gamli Tayl-
or Lautner þurfti að ganga
með síða hárkollu við gerð
kvikmyndarinnar New Moon.
Honum þótti hárkollan heldur
óþægileg og sagðist hafa verið
ánægður þegar tökum lauk og
hann gat loks losað sig við koll-
una.
„Mig klæjaði undan henni,
var heitt og þetta var pirrandi.
Hárlokkar festust í munninum
á mér og það kom fyrir að ég
þurfti að hrækja úr mér hári í
miðjum tökum. Þetta var mjög
pirrandi.
Þegar tökum lauk reif ég af
mér kolluna og henti henni frá
mér; tökuliðið fagnaði með lófa-
klappi. Það var frábær dagur.“
Kollukláðinn
A n d e r
&
Lau
th
A n d e r s e
n
&
Lau
th
A n d e r s e
n
&
Lau
th
A n d e r s e
n
&
Lau
th
A n d e r s e
n
&
Lau
th
e s t a b l i s h e d 1 9 3 4
Herraverzlun sími 551 6811, Laugavegur 7
www.andersenlauth.com
Jakkafatadagar
A n d e r s
&
Lau
th
Það eru tæplega 100 ár frá því
að fyrstu jakkafötin okkar voru
saumuð á klæðskeraverkstæði
Andersen & Lauth í Reykjavík.
Við elskum að gera falleg föt.
20%
afslát tur a f ö l lum
jakka fö tum