Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 12
12 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR HEIMSMET Tufiq Daher fær þarna viður- kenningu frá Heimsmetabók Guinness fyrir að hafa búið til stærsta Eiffel-turn heims úr eldspýtum. NORDICPHOTOS/AFP Húsfélagaþjónusta Kaupþings sparar þér tíma og fyrirhöfn Nánar á www.kaupthing.is/husfelag Ekkert mánaðargjald Einföld innheimta Öflugur netbanki Þinn þjónusturáðgjafi Fullkomið rekstraryfirlit Félagatal og greiðslustaða Komdu í viðskipti með húsfélagið þitt. Sendu fyrirspurn á husfelag@kaupthing.com - hringdu í síma 444 7000 eða komdu við í næsta útibúi. Starfsfólk Kaupþings tekur vel á móti þér og veitir allar nánari upplýsingar. ALÞINGI Þingmenn allra flokka eru sammála um að ótækt sé að skera niður fjárframlög til dómstólanna. Fyrirséð er að álag á þá mun auk- ast stórum vegna bankahrunsins og ógjörningur fyrir þá að anna verkefnum við knappari kost en nú er. Rætt var um fjárhagsstöðu dóm- stólanna utan dagskrár á þingi í gær. Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, upplýsti að sér hefðu borist bréf frá Hæstarétti og dómstólaráði þar sem áhyggjum af niðurskurði væri lýst. Á báðum vígstöðvum hefði málum fjölgað mjög á síðustu árum og stórfelld fjölgun blasti við í ljósi banka- hrunsins og tengdra mála. Sagðist hún hafa lagt til að fjár- veitingar til dómstólanna yrðu auknar frá því sem áður var ákveð- ið. Ólöf Nordal, Sjálfstæðisflokki, sem hóf umræðuna, sagði skjóta skökku við að auka framlög til rannsókna, til dæmis til sérstaks saksóknara og saksóknara banka- mála, og skera á sama tíma niður fjárveitingar til dómstóla. Furðaði hún sig jafnframt á þeirri forgangs- röðun ríkisstjórnarinnar að veita 400 milljónir til stjórnlagaþings á meðan staða dómstólanna er bág. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Samfylkingunni, sagði tíu prósenta hagræðingarkröfu ríkisstjórnar- innar í málaflokkum fangelsa, lög- gæslu og dómstóla mistök og kvaðst vonast til að breyting yrði á við meðferð fjárlaga í þinginu. Fjölmargir þingmenn lýstu sig sammála þessu sjónarmiði; Vigdís Hauksdóttir Framsóknarflokki sagði arfavitlaust að skera niður í dómskerfinu, Atli Gíslason VG sagði ekki hjá því komist að efla dómstólana og Birgitta Jónsdóttir Hreyfingunni sagðist styðja aukin framlög til þeirra. Birgir Ármannsson Sjálfstæð- isflokki kallaði bréf dómstólanna til dómsmálaráðherra neyðarkall sem þyrfti að bregðast við. Róbert Marshall Samfylkingunni spurði á hinn bóginn hvert sjálfstæðis- menn ætluðu að sækja peninga til að svara því neyðarkalli. Sagði hann um leið að undarlegt væri að sjálfstæðismenn hefðu nú áhyggjur af málinu þar sem þeir hefðu um árabil farið með málefni dómstól- anna. Ólöf Nordal svaraði því til að holskefla mála hefði komið öllum í opna skjöldu, enginn vegur hefði verið að búa sig undir það. bjorn@frettabladid.is Þverpólitísk sátt um aukin framlög til dómskerfisins Þingmenn allra flokka eru sammála um að niðurskurður til dómstóla sé ótækur. Hæstiréttur og dómstóla- ráð segja mikið álag fram undan. Þingmaður Sjálfstæðisflokks undrast forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. SAMMÁLA Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra og Ólöf Nordal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, eru sammála um að veita beri aukið fé til dómstólanna svo þeir geti sinnt þeim fjölda mála sem fyrirséð er að þeim berist næstu misseri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HEILBRIGÐISMÁL „Þetta er mest selda verkjalyfið og það er frek- ar óheppilegt að það vanti,“ segir Magnús Steinþórsson, rekstrar- stjóri Lyfjavers, en Íbúfen, mest selda verkjalyf landsins hefur verið ófáanlegt án lyfseðils undan- farið frá báðum framleiðendum. Magnús segir að þær umbúðir af verkjalyfinu, sem algengast er að fólk kaupi, 400 mg styrkleiki í 30 stykkja umbúðum hafi verið ófá- anlegar, bæði frá Actavis og frá Portfarma, sem selur samheitalyf- ið Íbúprófen. Hann segir að eitt- hvað sé nú til af 600 mg styrkleika, en það er ekki selt án lyfseðils. „Menn hafa getað bjargað sér, það eru til önnur lyf eins og Voltaren og Nabroxen,“ segir Magnús. Hann segir ekki hægt að tengja þennan skort við flensufaraldur- inn enda noti flensusjúklingar frekar hitalækkandi lyf eins og Paracetamol. Hjördís Árnadóttir, hjá Act- avis, segir að tafir hafi orðið á afhendingu lyfjanna frá birgjum. Þess vegna hafi vantað ákveðnar stærðir af pakkningum, sem seld- ar eru án lyfseðils. Málið sé þó að leysast, verið er að dreifa litlum skömmtum til apóteka og fram- boðið verður komið í eðlilegt horf eftir nokkrar vikur. Paracetamol-verkjastílar fyrir börn hafa verið ófáanlegir um tíma í 125 mg styrkleika, að sögn Magn- úsar. Hjördís segir að sá skortur sé úr sögunni því lyfið er komið til landsins og í dreifingu. - pg Skortur á verkjalyfjum hjá framleiðendum: Íbúfen ófáanlegt án lyfseðils VERKJALYF Íbúfen í 400 mg styrkleika hefur verið illfáanlega í apótekum undanfarið. GENF, AP Jarðsprengjur kostuðu meira en 1.260 manns lífið á síð- asta ári, að því er fram kemur í ársskýrslu samtaka sem nefn- ast International Campain to Ban Land Mines. Samtökin segja vinnu við að hreinsa jarðsprengjur úr jarð- veginum hafa gengið vel á síð- asta ári. Undanfarin tíu ár hafi tekist að hreinsa samtals 3.200 ferkílómetra svæði í 90 lönd- um af jarðsprengjum. Þetta er fjórum sinnum stærra svæði en Vatnajökull. Enn er þó eftir að hreinsa álíka stórt svæði í 70 löndum með jarðsprengjum. - gb Hreinsun gekk vel: Jarðsprengjur í sjötíu löndum MÓTMÆLI Fulltrúar Breytenda, ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar, afhentu Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra undirskriftir sem safnað hafði verið á íspinnaprik. Tilgangurinn var að vekja athygli á því að hlýn- un jarðar væri mannréttindamál. Prikunum hafði verið raðað upp í skúlptúr í líki hvirfilbyls, sem tákn um þann vanda sem að jörðinni steðjar sé ekkert að gert. Breytendur krefjast þess að stjórnvöld skilgreini stöðu flótta- manna undan hlýnun jarðar og viðbrögð Íslands við þeim sem hér kunna að leita hælis. - kóp Táknræn afhending: Undirskriftir á íspinnaprikum AFHENDING Fulltrúar Breytenda afhentu umhverfisráðherra undirskriftir á íspinnaprikum í líki hvirfilbyls. UPPLÝSINGATÆKNI Hægt er að senda stolnum eða týndum USB- minnislyklum skipun yfir inter- netið um að eyðileggj- ast, með nýrri tækni sem fyrirtækið Cryptzone kynnti í gær. Tækn- in nefn- ist Sec- ured eUSB og segir í tilkynningu fyrirtækisins að líkja megi þessu við að senda tækjunum „drápspillu“. Notandi eða tæknistjóri getur þá ýmist læst eða eytt gögnum af minnislykli þótt honum hafi verið stolið eða hann týnst, hvar sem hann er síðar settur í samband við nettengda tölvu. Með þessu kveðst fyrirtækið svara kröfum margra fyrirtækja og stofnana um aukið gagnaöryggi. - óká Týndir eða stolnir minnislyklar: Hlýða boði um sjálfseyðingu MINNISLYKILL 78 keyrðu of hratt Tæp 30 prósent ökumanna sem óku um Borgarveg í Reykjavík á miðviku- dag fóru of hratt. Lögreglan mældi hraða í eina klukkustund og keyrðu 78 af 267 ökumönnum of hratt. LÖGREGLUFRÉTTIR Ný efnahagsspá OECD Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) birtir á fimmtudagsmorgun- inn 19. nóvember nýjustu efnahags- spá sína fyrir helstu hagkerfi heims. Jørgen Elmeskov, starfandi aðal- hagfræðingur OECD, kynnir spána á blaðamannafundi í París. EFNAHAGSMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.