Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 32
„Ég datt niður á uppskrift að
hekluðum bómullarsmekk um það
leyti sem næstyngsta barnabarnið
mitt fæddist fyrir rúmum tveimur
árum. Fjótlega kom í ljós að hann
reyndist þarfaþing því hann dró
svo vel í sig raka svo ég heklaði
fleiri og enn fleiri, enda lögðu for-
eldrarnir öllum öðrum smekkj-
um.“ Þannig lýsir Guðbjörg tilurð
smekkjanna sem hún er orðin þekkt
fyrir að hekla og hafa dreifst víða.
Bæði hefur hún gefið þá í allar
áttir, meðal annars til barna og
barnabarna samstarfskvenna og
svo eru þeir til sölu á vefsíðunni
http://smekkir.signal.is
Þetta eru ekki matarsmekkir
heldur eru þeir hafðir til hlífðar,
þess vegna allan daginn og það er
sama hvernig þeir snúa. „Tengda-
sonur minn orðaði það skemmtilega
þegar hann sagði að smekkirnir
væru alltaf á réttum stað. Þeir eru
nefnilega hringur. Ef þeir eru orðn-
ir blautir að framan þá færir maður
þann blett bara aðeins út á öxlina,“
segir Guðbjörg.
Þegar jólin 2007 nálguðust var
umrætt barnabarn Guðbjargar að
verða hálfs árs. „Þá fór ég að leita
að jólalitunum í garninu, rauðum og
grænum,“ rifjar hún upp og kveðst
líka hafa svarað óskum og heklað í
stíl við föt barna, einnig hafi hún
verið beðin um skírnarsmekki.
„Þetta er eitthvað sem ég geri
fyrir framan sjónvarpið eða ef ég
sest inn á biðstofu. Ein heklunál og
dokka passar svo vel í veskið og er
þægilegt að láta fylgja sér. Ef ég
fer í heimsókn til vinkonu minnar
á elliheimili og dreg upp heklið þá
segir hún gjarnan. „Ja, þú slærð
nú ekki vindhöggin!“ Hún er svo
ánægð með að ég sé með eitthvað
milli handanna. En mér finnst
gaman að gera þessa smekki og er
líka búin að kenna það mörgum.“
gun@frettabladid.is
Alltaf á sínum rétta stað
Oft vill fatnaður smáfólks verða votur við hálsmálið fyrsta árið í lífi þess. Guðbjörg Ágústsdóttir djákni
heklar smekki sem henta vel til hlífðar. Hún kallar þá slefusmekki.
Smekkirnir hennar Guðbjargar eru í
öllum litum.
JÓLAKORTALISTI er
þarfaþing og ágætt að vera
búinn að fínpússa hann áður
en líður að jólakortatíðinni.
Kúba var opinberlega lýst trúlaust land árið
1962 að ákvörðun kommúnistastjórnar
Kúbu. Árið 1969 ákvað Fidel Castro, forseti
landsins, að stroka jólin út af dagatalinu þar
í landi þar sem hann taldi þau trufla vinnu
við sykurreyrsuppskeruna og hátíðahöld
sem þeim fylgdu. Kúbustjórn bannaði jóla-
tré á almannafæri svo og myndir eða upp-
setningar á fæðingu Jesú nema á stöðum
sem ferðamenn sóttu eins og til dæmis á
hótelum. Árið 1997 tilkynnti Jóhannes Páll
páfi II að hann ætlaði að heimsækja Kúbu
í byrjun árs 1998. Honum til heiðurs ákvað
Kúbustjórn að gefa landsmönnum frí til
að geta haldið jólin hátíðleg áður en hann
kæmi til landsins. Hún lét þess þó getið að
þetta væri undantekning sem ekki væri víst
að yrði endurtekin. Það varð þó úr og í dag
fagna Kúbverjar jólunum líkt og stór hluti
heimsbyggðarinnar. Að kvöldi aðfangadags
mæta þúsundir Kúbubúa á uppreisnartorgið í Havana Risastórum sjónvarps-
skjám er komið fyrir á torginu fyrir utan dómkirkju Havana þannig að fólk-
ið getur fylgst með páfanum flytja messu í Péturskirkjunni í Róm. Samkom-
unni lýkur með því að kirkjuklukkurnar hringja á miðnætti á aðfangadegi og
hringja þannig inn jólin.
Þegar Kastró frestaði jólunum
ENGIN JÓL VORU HALDIN Á KÚBU FRÁ ÁRINU 1969 OG ALLT TIL ÁRSINS 1997.
Heimsókn páfa til Kúbu varð til
þess að aflétta banninu á því
að halda jólin hátíðleg.
Heimagerðar jólagjafir
eru málið í ár. Kökur,
sætindi og prjónaðir
vettlingar eru klassísk-
ar gjafir en einnig er
hægt að búa til aðra
hluti á borð við lík-
amsskrúbb úr epsom-
söltum, sykurreyr og
olíum. Slíkar uppskriftir
má finna víða á vefn-
um.
www.marthas-
tewart.com
„Ja, þú slærð nú ekki vindhöggin,“ segir frænkan við Guðbjörgu Ágústsdóttur djákna
þegar hún dregur upp heklið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur handverksmarkað laugardag--
inn 14. nóvember kl. 11-16 í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11,
2. hæð. Selt verður handverk sjálfboðaliða deildarinnar, sauma- og
prjónavörur, kökur og annað föndur. Einnig verður handverk frá
Mósambík til sölu, skartgripir, box, töskur, batik-myndir og fleira.
Allur ágóði rennur til neyðaraðstoðar innanlands.
NemendurMKíáfangaumsjálfboðiðRauðakross
starf sjá um markaðinn.
Handverksmarkaður
14. nóvember
Smáauglýsingar
Fréttablaðsins
eru einnig á visir.is