Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 74
54 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR FÓTBOLTI Sá leikreyndi kappi Þór- hallur Dan Jóhannsson gat ekki haft skóna lengi á hillunni því hann segir meiri líkur en minni á að hann spili með Haukum áfram í efstu deild næsta sumar. „Ég fór á æfingu í gær og það var virkilega gaman. Svo er ég bara svo vitlaus að ég kann ekki að hætta,“ sagði Þórhallur og hló dátt. „Ég er að melta þetta en það eru meiri líkur en minni á að ég haldi áfram.“ Þórhallur verður 37 ára í desem- ber en segir ekki hægt að hætta því hann sé í svo góðu formi. „Ég er búinn að vera að hlaupa 60-80 kílómetra á viku síðan tíma- bilinu lauk. Er farinn að hafa mjög gaman af því að hlaupa. Ég er í rauninni í betra formi en ég var í þegar ég hætti. Svo er fólk mikið búið að setja pressu á mig að halda áfram. Ég get eiginlega ekki skor- ast undan því að vera með Hauk- um í efstu deild og hjálpa til við að gera þá að stóru félagi,“ sagði Þórhallur. Hann verður þó ekki mikið á æfingum á næstunni því hann leggst undir hnífinn á mánudag vegna þrálátra meiðsla í ökkla. „Ég var í raun meiddur í allt sumar. Það var eitt best geymda leyndarmálið í boltanum í sumar að ég gat ekki sparkað. Varð að láta mér nægja stuttar innanfótar- sendingar. Ég réði ekki við meira og varð að vera skynsamur,“ sagði Þórhallur en beinflís verður tekin úr ökklanum á honum. Búist er við að hann geti sparkað aftur í bolta í lok janúar. Þórhallur spilaði síðast í efstu deild með Fram árið 2005 en það ár féll Fram úr deildinni. „Þá tók ég mér frí í eitt ár og var eiginlega hættur. Andri þjálf- ari bað mig árið 2007 að taka eitt ár í viðbót og það ár er eiginlega enn í gangi,“ sagði Þórhallur, sem ætlar ekki að endurtaka leikinn frá því 2005. „Nei, við skulum rétt vona að ég fari ekki að falla aftur. Mér líst annars vel á liðið og mikl- ir reynslumenn komnir inn. Veitti ekki af enda er ég 37 ára og næst- elsti maður ekki kominn með jaxla.“ Næsta ár verður stórt hjá Þór- halli því eftir að tímabilinu lýkur heldur hann til Bandaríkjanna að takast á við mikla áskorun. „Ég var búinn að lofa mér því að hlaupa maraþon fyrir fertugt. Ég er að falla á tíma og ég hef því ákveðið að hlaupa í New York- maraþoninu í nóvember. Það verð- ur frábært,“ sagði Þórhallur Dan Jóhannsson og bætti við að hann færi ekki út að hlaupa í dag fyrir minna en tíu kílómetra. henry@frettabladid.is Ég kann ekki að hætta Þórhallur Dan Jóhannsson spilar væntanlega áfram með Haukum næsta sum- ar þrátt fyrir yfirlýsingar um annað. Hann segist vera í frábæru formi og hefur tekið stefnuna á að hlaupa New York-maraþonið í nóvember á næsta ári. KANN EKKI AÐ HÆTTA Þórhallur Dan Jóhannsson mun væntanlega reima aftur á sig skóna og spila með Haukum í efstu deild að ári. FRÉTTABLAÐIÐ/XX FÓTBOLTI Enska dagblaðið Daily Mirror heldur því fram í dag að Rafa Benitez, stjóri Liverpool, vilji fá Roman Pavlyuchenko til félagsins þegar félagaskipta- glugginn verður opnaður um ára- mótin. Pavlyuchenko er sagður vera óánægður í herbúðum Totten- ham og hafa enskir fjölmiðlar fullyrt að hann muni fara fram á að verða seldur frá félaginu við fyrsta tækifæri. Fernando Torres, sóknarmað- ur Liverpool, hefur átt við erfið meiðsli að stríða og David N’Gog hefur ekki þótt standa undir væntingum þegar hann hefur fengið tækifærið hjá Benitez. Liverpool er einnig orðað við Rafael van der Vaart í sömu frétt og þá hefur Benitez einnig verið sagður áhugasamur um að fá Carl- ton Cole, leikmann West Ham. Fram kemur í The Sun í dag West Ham muni fara fram á tut- tugu milljónir punda fyrir Cole, sem skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið fyrir ári. - esá Roman Pavlyuchenko: Orðaður við Liverpool PAVLYUCHENKO Hefur ekki fundið sig hjá Spurs. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES SUND Michael Phelps tókst að ná sér í silfur á heimsmeistaramót- inu í 25 metra laug þar sem hann hefur átt afar misjöfnu gengi að fagna. Hann varð annar í 200 metra fjórsundi en var meira en tveim- ur sekúndum á eftir sigurvegar- anum, Darian Townsend. Áður mistókst honum að kom- ast í úrslit í bæði 100 m flug- sundi sem og 100 m skriðsundi. Mótið fer fram í Stokkhólmi en Phelps mætti þar fúlskeggj- aður til leiks, sem gefur til kynna að hann sé ekki alveg í sínu besta formi. Hann hefur einnig viðurkennt að hann hafi ekki verið að æfa jafn stíft og áður. Phelps keppir einnig í gam- alli gerð af sundbúningi þar sem þeir nýju verða ólöglegir frá og með næstu áramótum. Þjálfari Phelps vill að hann venjist því að keppa í gamla búningnum áður en keppni á bandaríska meist- aramótinu hefst. Phelps mun einnig keppa á heimsbikarmóti í Berl- ín um helgina og svo á móti í Manchester um miðjan næsta mánuð. - esá Michael Phelps: Nældi í silfur á HM MICHAEL PHELPS Ekki upp á sitt besta á HM. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES 5.390 KR. Á MÁNUÐ I Í 3 MÁNU ÐI FYRIR KRE DITKORTH AFA VISA FRÁBÆRT ÁSKRIFTAR TILBOÐ Á AÐEINS laugardag kl. 02:00 Manny Pacquiao – Miguel Cotto Box laugardag kl. 15:50 Brasilía - England Vináttulandsleikur laugardag kl. 17:50 Lúxemborg - Ísland Vináttulandsleikur laugardag kl. 19:50 Randy Couture – Brandon Vera UFC laugardag kl. 20:20 Portúgal - Bosnía Undankeppni HM - umspil sunnudag kl.18:00 Children’s Miracle Network Classic PGA mótaröðin íþróttaveisla um helgina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.