Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 75
FÖSTUDAGUR 13. nóvember 2009 55
GOLF Það hefur vakið athygli
hversu margir kylfingar eru enn
að spila golf þó svo að farið að sé
að styttast í jólin. Nokkur mót eru
reglulega haldin um helgar, meðal
annars í Setberginu, Sandgerði og
Leirunni, og hafa yfir 100 manns
verið að skrá sig á sum mótin.
„Það er ekki bara á þessum stöð-
um. GR hefur opnað Korpuna um
helgar fyrir sína kylfinga og svo
er opið á Hellu nánast allt árið.
Þar var fullbókað um daginn frá
morgni fram á kvöld,“ sagði Stef-
án Garðarsson hjá Golfsambandi
Íslands en Kjölur hefur einnig
verið með mót fyrir sína félags-
menn.
Ekki eru þó allir klúbbar mjög
duglegir að auglýsa opnanirnar
enda vellirnir viðkvæmir og ekki
vinsælt að of margir séu að spila á
þessum tíma árs.
Flestum golfvöllum landsins var
lokað þegar frostakast kom í byrj-
un október. Sú kuldatíð stóð stutt
yfir og hefur oft á tíðum verið
mjög gott veður síðan þá.
Margir voru því afar ósáttir við
lokanirnar og hafa sumir klúbbar
gefið eftir og opnað vellina aftur
þegar veður leyfir. Hermt er að
sum félög séu einnig að opna til
þess að ná sér í aukakrónur í kass-
ann enda hart í ári hjá golfklúbb-
um eins og víða í þjóðfélaginu um
þessar mundir.
„Það eru ekki allir jafn hrifn-
ir af þessum vetraropnunum og
þá kannski síst vallarstjórarn-
ir. Þeir vilja nú ekkert loka völl-
unum bara að ástæðulausu. Ein
af ástæðunum er sveppasýking
sem kemur kannski ekki í ljós
fyrr en næsta sumar. Þegar vell-
irnir koma illa undan vetri verða
kylfingar eflaust lítið kátir og
gleyma því að pressa var frá þeim
á að hafa opið yfir vetrartímann,“
sagði Stefán.
„Vellirnir eru eflaust margir
hverjir í ágætu standi en bleyt-
an er verst. Hún skemmir vellina
mjög mikið,“ sagði Stefán en menn
hafa jafnvel verið beðnir um að
nota tí úti á braut til þess að lág-
marka skaðann á vellinum. - hbg
Íslenskir golfarar hafa notað blíðuna til þess að spila vetrargolf um helgar:
Kylfingar neita að leggja kylfunum
SEIGUR Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari er einn af þeim sem eiga erfitt
með leggja kylfunum strax. Hann er hér í erfiðri stöðu á móti hjá Kili um síðustu
helgi. Hann lét sig ekki muna um að stíga í vatnið og upp úr skurðinum fór kúlan.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BOX Mike Tyson á yfir höfði sér
kæru um líkamsárás eftir að
hann kýldi ljósmyndara á flug-
velli í Los Angeles.
Ljósmyndarinn fékk skurð á
ennið og var fluttur á sjúkrahús
þar sem gert var að sárum hans.
Lögfræðingur Tysons hefur
sagt að ljósmyndarinn hafi gert
sig líklegan til að elta skjólstæð-
ing sinn inn á salernið á flugvell-
inum þegar átökin áttu sér stað.
Tyson vill því líka kæra ljós-
myndarann.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Tyson kemst í kast við lögin en
hann var fangelsaður árið 1992
fyrir nauðgun og fékk svo að
dúsa í sólarhring í fangelsi í Ariz-
ona árið 2007 eftir að kókaín
fannst á honum. - esá
Mike Tyson:
Kýldi ljósmynd-
ara kaldan
MIKE TYSON Er enn með líf í hnefunum.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Stephen Ireland, leik-
maður Manchester City, segir að
brotthvarf Elanos frá félaginu
hafi haft góð áhrif á Robinho en
þeir síðarnefndu eru báðir Bras-
ilíumenn.
Robinho hefur verið sterklega
orðaður við Barcelona en City
hefur hafnað þeim orðrómi og
segir að Robinho sé ánægður hjá
félaginu.
Ireland sagði svo við enska
fjölmiðla að Elano hefði haft
slæm áhrif á Robinho.
„Það er ekki ætlun mín að
vera harðorður gagnvart Elano
en brotthvarf hans hefur reynst
vera blessun fyrir Robinho.“
„Þeir voru mikið saman eins
og þeir væru í klíku og maður sá
ekki mikið til Robinhos. En hann
er breyttur maður í dag og lætur
sig félagið miklu varða.“
„Hann virðist mjög ánægður,
sem og fjölskylda hans.“ - esá
Stephen Ireland:
Baunar á
Brassann Elano
Sturtuhaus, barki og festing
3.490