Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 58
38 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Leikhúsin eru að gíra sig
upp fyrir jólatraffíkina og
sá siður virðist vera orðinn
fastur í jólahaldinu að fara
á sýningar sem tengjast
efni jólanna. Frumsýn-
ingarnar eru á næsta leiti:
minnst tvær í næstu viku.
Ein þekktasta jólasaga allra tíma
er án ef Jólaævintýri (Christmas
Carol) eftir Charles Dickens, en
hún er margkunn hér á landi og er
nýkomin út á bók á vegum bóka-
félagsins Uglu í þýðingu Karls
Ísfeld, skreytt myndum úr upp-
haflegu útgáfunni, en sagan kom
út 19. desember 1843. Sagan segir
frá hinum fégráðuga Ebenezer
Scrooge og viðskiptum hans við
drauga nokkra á jólanótt. Sagan
hefur verið mörgum kvikmynda-
leikstjóranum efniviður mikill og
eru til margar kvikmyndir byggð-
ar á sögunni og margir þekktir leik-
arar túlkað Scrooge, þeirra á meðal
George C. Scott, Bill Murray, Kels-
ey Grammer og Patrick Stewart.
Einnig mun glæný teiknimynd þar
sem enginn annar en Jim Carrey
túlkar Scrooge líta dagsins ljós
næsta vetur. Sagan er af mörgum
talin mikilvæg áminning um hinn
sanna jólaanda og hefur heillað
kynslóð eftir kynslóð í meira en 150
ár. Hér á landi hefur hún einu sinni
lifnað á sviði hjá Leikfélagi Akur-
eyrar 1985 en þá fór Árni Tryggva-
son með hlutverk nirfilsins.
Nú er hins vegar komið að einum
ástsælasta leikara íslensku þjóð-
arinnar að túlka Skrögg sjálfan í
glænýrri íslenskri leikgerð á þess-
ari þekktu sögu Dickens. Þórhallur
Sigurðsson (Laddi) mun leika Eben-
ezer Scrooge í Loftkastalanum og
er frumsýning áætluð 21. nóvember.
Sýningin er einleikur og mun Laddi
fara með öll hlutverkin í uppfærsl-
unni en hún er um 70 mínútur að
lengd og verður flutt án hlés. Miða-
sala er hafin. Leikgerðina gera Jón
Gunnar Þórðarson, Egill Antonsson
og Sindri Þórarinsson en tónlist og
hljóðmynd skipa veigamikinn sess í
þessari metnaðarfullu uppsetningu.
Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðar-
son. Sama dag verður frumsýning
í Borgarleikhúsinu: það eru trúð-
arnir úr hinni merkilegu sviðsetn-
ingu á Dauðasyndunum sem takast
nú á við sjálft jólaguðspjallið í sýn-
ingunni: Jesús litli. Við erum stödd
í Palestínu á því herrans ári núll.
Rómverjar hafa sölsað undir sig
landið og Heródes er settur land-
stjóri. Þegar spyrst út að frelsari
muni fæðast í landinu kemur til-
skipun frá honum um að myrða
skuli öll sveinbörn, tveggja ára og
yngri. Ljótt er það. Hver fæðir eig-
inlega barn inn í slíkt ástand?
Leikstjórinn Benedikt Erlings-
son hefur hemil á trúðunum eftir
bestu getu og söngkonan Kristjana
Stefánsdóttir töfrar fram himneska
tóna með hjálp trúðsins Bellu.
pbb@frettabladid.is
Scrooge og Jesús á svið
LEIKLIST Laddi og trúðar verða áberandi í jólasýningum stóru leikhúsanna en þeir
frumsýna í næstu viku. MYND LOFTKASTALINN
Í dag er boðað til málþings í Rauða
húsinu á Eyrarbakka sem helgað
er „Alþýðufræðslu á Íslandi í 120
ár“ en elsti starfandi barnaskóli á
landinu er á Bakkanum. Þar mun
leiða saman hesta sína undir stjórn
Ólafs Proppé, fyrrverandi rektors,
einvala lið manna sem mun fara
yfir málið í sem víðustu samhengi.
Fulltrúi frá farskólanum ríður á
vaðið og síðan verður smám saman
farið í gegnum söguna til dagsins
í dag, ræddar breytingar og nýj-
ungar og velt fyrir sér hvernig
þessi saga og menning verði best
varðveitt fyrir komandi kynslóð-
ir. Stofnun skólasöguseturs Íslands
í framtíðinni og landshlutaseturs
verður rædd með tilliti til varð-
veislu. Sérfræðingar frá mennta-
og menningarmálaráðuneytinu
með ráðherra í fararbroddi mæta á
svæðið og fræðimenn frá Háskóla
Íslands og Kennarasambandinu
verða þar. Ræddir verða ýmsir
möguleikar á varðveislu og mætir
fulltrúi Nýsköpunarmiðstöðvar
Íslands til leiks, svo og hönnuðir
safna og setra.
Meðal þeirra sem flytja erindi
á málþinginu eru Jón Hjartarson,
forseti bæjarstjórnar Árborgar
sem stendur fyrir þinginu, Loftur
Guttormsson, Ólöf Garðarsdóttir,
Sigurjón Mýrdal, Eiríkur Jónsson,
Katrín Jakobsdóttir, Herdís Egils-
dóttir, Helgi Skúli Kjartansson,
Kristín Á. Ólafsdóttir og Eiríkur
Þorláksson. Ekki verður aðeins
varpað kastljósi á sögu alþýðu-
fræðslunnar heldur einnig rætt
hvernig beri að varðveita þá sögu
og kynna hana almenningi með
safnarekstri eða sýningarhaldi.
Þingið er öllum opið en það hefst
kl. 10 og er áætlað að því ljúki í eft-
irmiðdaginn. Það er öllum opið.
Alþýðufræðsl-
an er 120 ára
MENNTUN Guðmundur Finnbogason,
frumkvöðull í mótun alþýðufræðslu á
Íslandi.
2009
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16
Boðið er upp á leiðsögn um sýningar.
Gerðubergi 3-5
111 Reykjavík
Sími 575 7700
Netfang: gerduberg@reykjavik.is
www.gerduberg.is
Laugardaginn 14. nóvember kl. 14-15
Út í kött! Dansleikhús fyrir börn
Lýðveldisleikhúsið – www.this.is/great
Aðgangseyrir: Kr. 1.500
Sunnudaginn 15. nóvember kl. 14-15
Tóney í Gerðubergi
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Nemendur úr Sæmundarskóla og Listdansskólanum
koma fram og hljómsveitin Rússíbanarnir taka
nokkur lög. Umsjón: Guðni Franzson, tónlistarmaður.
Ókeypis aðgangur!
Óreiða
Sýning Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur sem unnin
er upp úr og undir áhrifum frá skáldverkum Kristínar
Marju Baldursdóttur um listakonuna Karitas.
Laugardaginn 14. nóvember kl. 14
Í gegnum tíðina
Verið velkomin á opnun sýningar Sigurbjargar
Sigurjónsdóttur í Boganum.
Postulínsmyndir og munir, vatnslitamyndir og pastel-
og olía á striga eru meðal þess sem fyrir augu ber.
Svanurinn minn syngur
Ljóð og líf skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur.
Vissir þú... að í Gerðubergi er
frábær aðstaða fyrir veislur, fundi,
ráðstefnur og námskeið?
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið