Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 62
42 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR Rithöfundurinn Huldar Breiðfjörð hefur sent frá sér bókina Færeyskur dans- ur. Í tilefni af því var haldið útgáfuhóf í Eymundsson við Skólavörðustíg. Fær- eyskur dansur fjallar um ferðalag Huldars til Fær- eyja og segir frá kynnum hans af þessum frændum okkar sem hafa veitt Íslend- ingum kærkomna aðstoð í kreppunni. Boðið var upp á færeyskt öl í hófinu auk þess sem Huldar las upp úr bókinni. Færeyskum dansi Huldars fagnað Huldar Breiðfjörð ásamt kollega sínum, Hallgrími Helgasyni. Huldar las upp úr bók sinni í hófinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Gyrðir Elíasson, Bragi Ólafsson og dóttir hans, Liba, auk útgefandans Páls Valssonar voru á meðal gesta. Leikstjórinn Börkur Gunnarsson og Breki Pálsson voru á staðnum. Rithöfundurinn Mikael Torfason og útvarpskonan Ragnhildur Magnúsdóttir voru í góðu stuði. Kristján Loðmfjörð, Tinna Guðmundsdóttir og Ólína Ugla mættu í Eymundsson. Samkvæmt tímaritinu Life & Style hefur Eddie Cibrian nú þegar stigið feilspor og hald- ið fram hjá þjóðlagasöngkon- unni LeAnn Rimes. Rimes og Cibrian hófu samband sitt fyrr í sumar, þau voru þá bæði gift og vakti samband þeirra mikla athygli slúðurtímarita hið vestra. Nú segir Life & Style að Cibri- an sé enn við sama heygarðs- hornið og á hann að hafa verið að hitta Scheana Jancan á laun síð- ustu vikur. Jancan þessi er hvað þekktust fyrir að hafa verið í stuttu sam- bandi með söngv- aranum John Mayer. „Eddie er farinn að hitta Scheanu reglu- lega. Hann seg- ist aðeins vera með LeAnn vegna athyglinn- ar sem því fylgir og ætlar að slíta samband- inu innan skamms,“ hafði tíma- ritið eftir heimildar- manni. Svikarinn svikinn SVIKIN LeeAnn Rimes var eiginmanni sínum ótrú, nú situr hún í eins súpu. „Þessi bók er mín gífuryrtasta. Hún er alla vega miklu orðljót- ari en síðasta skáldsaga,“ segir Eiríkur Örn Norðdahl, sem hefur sent frá sér sína þriðju skáldsögu, Gæska - told you he was softer. Bókin fjallar um stjórnmálafólk í íslenskum samtíma þar sem krónan er orðin verðlaus og allt er í lamasessi. „Ég var búinn að skrifa stærstan hluta af bókinni vorið 2008 en sá ekki fram á að klára hana fyrir haustið,“ segir Eiríkur Örn, sem þurfti að skrifa megnið af bókinni upp á nýtt eftir að kreppan skall á. „Bókin gerist í hálfgerðum ótíma og í hálfgerð- um hysterískum heimi. Kreppan kemur ekki svo mikið við sögu en ég þurfti að gera ráð fyrir henni. Sagan gerist öll á einu eilífu sumri, á nokkrum dögum fyrir hina fallegu byltingu og nokkr- um dögum eftir hana.“ Þrátt fyrir að hafa byrjað á bók- inni áður en kreppan skall á seg- ist hann ekki hafa séð vandræðin fyrir frekar en hver annar. „Ég hef reyndar ágæta skoðun um að það sé vanmetið hve mikið fólk var búið að sjá þessi ósköp fyrir. Kreppur koma og kreppur fara, það hefur gerst þúsund sinnum á síðustu tveimur öldum. Ég geri ráð fyrir því að það verði komin önnur eftir fimmtán ár.“ Þrjú ár eru liðin síðan síðasta skáldsaga Eiríks kom út, Eitur fyrir byrjendur. Kemur hún ein- mitt út í Þýskalandi á næsta ári. Eiríkur flutti nýlega til Svíþjóð- ar eftir að hafa búið í Finnlandi í tvö ár. Hann á sænska kærustu og þau eiga saman þriggja mán- aða son. Eiríki líður vel í Svíþjóð og finnst ágætt að vera ekki á Íslandi að kynna nýju bókina. „Á meðan maður er ekki í jólabóka- flóðinu með áhyggjur af því að það sé ekki fjallað nógu vel um mann og það komi ekki nóg af dómum, þá er lífið ekkert nema tóm hamingja,“ segir hann. - fb Gífuryrt skáldsaga EIRÍKUR ÖRN NORÐDAHL Þriðja skáldsaga Eiríks Arnar Norðdahl fjallar um stjórn- málafólk í íslenskum samtíma. www.facebook.com/graenaljosid FRUMSÝND 6. NÓVEMBER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.