Fréttablaðið - 13.11.2009, Side 8

Fréttablaðið - 13.11.2009, Side 8
8 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR 1. Hvað telur Margrét Tryggva- dóttir trufla störf þingsins öðru fremur? 2. Hve mikið fækkaði umferð- arslysum á höfuðborgarsvæðinu á milli áranna 2007 og 2009? 3. Hvers lenskt er liðið sem handboltamennirnir Jóhann Gunnar Einarsson og Daníel Berg Grétarsson leika með nú um stundir? SJÁ SVÖR Á SÍÐU 54 Skrifstofustarf Óskum eftir starfsmanni til almennra skrifstofu- starfa starfi ð felst í símsvörun,reikningsgerð o.f.l. Um er að ræða 100% starf. Vinnutími frá kl. 8-16 virka daga Umsóknum skal skilað á netfang leifur@ ferskar.is eða á skrifstofu félagsins milli kl. 8-16 virka daga Umsóknarfrestur er til 16. nóv. Æskilegur byrjunartími 1. des. MEXÍKÓ, AP Tæplega fjórðungur allra umferðarlögreglumanna í borginni Monterrey í Mexíkó hefur verið rekinn. Aðgerðirnar eru liður í því að útrýma spill- ingu í lögregluliði landsins. Hinir brottreknu lögreglumenn stóðust ekki próf sem lögð voru fyrir þá. Prófin könnuðu líkam- legt og andlegt atgervi mann- anna. Þeir þurftu einnig að gang- ast undir lyfjapróf. 276 lögreglumenn voru reknir eftir prófin og 526 var gert að bæta ráð sitt verulega. 340 lög- reglumenn voru dæmdir hæfir til starfa. Rúmlega eitt hundrað lögreglu- menn í borginni hafa verið rekn- ir vegna gruns um að tengjast skipulagðri glæpastarfsemi. - þeb Þriðja stærsta borg Mexíkó: Ráku fjórðung lögreglumanna EFNAHAGSMÁL „Við tökum þessari hugmynd illa. Þetta myndi leiða til þess að lækka þyrfti lífeyri,“ segir Arnar Sigurmundsson, for- maður stjórnar Landssamtaka líf- eyrissjóða, inntur eftir viðbrögðum við hugmyndum um að leggja á líf- eyrissjóði tímabundinn fjármagns- tekjuskatt. Hugmyndinni hefur verið lýst sem valkosti við að skattleggja inn- greiðslur iðgjalda í sjóðina í stað þess að skattleggja lífeyrisgreiðsl- urnar sjálfar, en sú leið hefur verið sögð erfið í framkvæmd og kalla á mikla uppstokkun á lífeyr- issjóðakerfinu. Í nýjasta tölublaði efnahagsritsins Vísbendingar er reiknað út að tekjur ríkisins af fjár- magnstekjuskatti á lífeyrissjóðina gætu á næsta ári numið 25 milljörð- um króna. „Fjármagnstekjur lífeyrissjóð- anna mynda með öðru grunn- inn undir lífeyrisréttindi,“ árétt- ar Arnar og telur að jafnvel þótt fjármagnsskattur yrði tímabund- inn þyrfti að skerða réttindi vegna hans, að minnsta kosti hvað varðaði lífeyrissjóði á almennum markaði, þótt öðru máli gætti um opinbera starfsmenn vegna samninga þeirra. „Við gerum okkur grein fyrir því að ríkið vantar tekjur, en í þessari leið felst mikil mismunun.“ Gunnar Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Almenna lífeyr- issjóðsins, segir að það veiki lífeyrissjóðina að leggja á þá fjár- magnstekjuskatt og dragi úr getu þeirra til að greiða lífeyri. Hann segir því eðlilegt að menn reyni að verja stöðu lífeyrissjóðanna eins og kostur sé. „Auðvitað líst mér ekki vel á að fara að skattleggja lífeyrissjóð- ina. Af tvennu illu, frekar en að fara að breyta kerfinu, er þetta þó kannski illskárri kostur, svo lengi sem það er tímabundið.“ Gunnar setur þó fyrirvara við hugmyndir um að leggja fjármagnstekjuskatt á lífeyrissjóðina enda vanti alla útfærslu. Þannig sé hluti hagnað- ar við uppgjör lífeyrissjóðanna oft óinnleystur, svo sem vegna veik- ingar krónunnar á þessu ári eða hækkunar á erlendum verðbréf- um. Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar, segir ljóst að allir skattar á lífeyrissjóði séu slæm- ir; kerfið hafi verið til mikilla heilla fyrir Íslendinga og það eigi að umgangast af virðingu. „En almenningur í landinu stendur nú frammi fyrir því að boðaðar hafa verið geysimiklar skattahækkan- ir og því er spáð að kaupmáttur minnki þess vegna um 16,5 pró- sent næsta ár. Með því dregur úr neyslu, atvinnuleysi eykst og end- urreisnin tefst. Hætta er á að fólks- flótti verði mjög mikill. Því leita menn leiða til þess að komast hjá þessu,“ segir hann og bendir á að þótt skattlagning á lífeyrissparn- að sé ekki töfralausn sem búi til peninga úr engu sé kosturinn við fjármagnstekjuskattinn sá að hann komi jafnt við alla eigendur lífeyr- issjóðanna. „Ekki þarf að skerða réttindi, og utanumhald er tiltölulega einfalt. Og þótt bent hafi verið á að lífeyr- issjóðir opinberra starfsmanna séu með ábyrgð eigenda er það annað mál og óháð þeim vanda sem þjóð- in á í núna.“ olikr@frettabladid.is Landssamtök lífeyrissjóða hafna fjármagnstekjuskatti Landssamtök lífeyrissjóða taka illa hugmyndum um fjármagnstekjuskatt. Framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins segir það illskárri kost en að breyta kerfinu með skatti á iðgjöld. VIÐSKIPTI Northern Lights Energy (NLE) og indverski rafbílafram- leiðandinn REVA hafa skrifað undir samkomulag um sölu og markaðssetningu REVA-bíla hér og í Færeyjum. Undirritunin fór fram í sendiráði Indlands í gær. „Í dag eru ellefu rafbílar á land- inu. Við vorum að panta 100 í við- bót, sem við vonum að verði tekið vel þegar þeir koma undir lok næsta árs,“ segir Sturla Sighvats- son, framkvæmdastjóri NLE. Hann segist vongóður um að vel gangi, enda hafi fyrsta pöntunin borist um tuttugu mínútum eftir að tilkynnt var um samninginn við REVA í gær. Gengisþróun ræður nokkru um á hvaða verði bílarnir verða þegar þeir berast, en Sturla segir það vera vel samkeppnishæft. „Þess- ir bílar verða á svipuðu verði og aðrir af sambærilegri stærð, svo sem Yaris-bílarnir frá Toyota.“ Þá áréttar hann að lítið sé að marka þær hugmyndir sem fólk hafi gert sér um rafmagnsbíla til þessa, að þeir séu pínulitlir og litn- ir hornauga í umferðinni. „Þetta eru alvörubílar, með loftpúðum, krumpusvæði, leðursætum og öðru sem við á.“ Nýju REVA-bílarnir voru frum- sýndir á bílasýningunni í Frank- furt í september. Þeir eru fjögurra sæta og þrennra dyra. „Hámarks- hraði er 104 kílómetrar á klukku- stund og hægt er að komast 160 kílómetra á einni hleðslu.“ - óká NLE skrifar undir samning við REVA um sölu og markaðssetningu rafbíla: Fyrsti rafbíllinn pantaður um 20 mínútum eftir undirskrift RAUÐ OG GRÆN REVA Rafbílarnir verða á svipuðu verði og aðrir bílar af sambærilegri stærð, svo sem Yaris-bílarnir frá Toyota. Framkvæmdastjóri NLE segir bílana alvöru; þeir séu með loftpúðum, krumpusvæði, leðursætum og öðru sem við á. GUNNAR BALDVINSSONARNAR SIGURMUNDSSON BENEDIKT JÓHANNESSON UTANRÍKISMÁL Færeyingar þurfa að taka til endurskoðunar sam- skipti sín við erlend ríki og ríkja- sambönd. Færeyska heimastjórnin hefur í þessum tilgangi sett á stofn nefnd sem horfir sérstaklega til sambandsins við Evrópusamband- ið, EFTA og önnur ríki Norður- Evrópu. Þetta kom fram á fyrirlestri færeysku fræðikonunnar Beintu í Jákupsstovu í Norræna húsinu í hádeginu í gær. Beinta er dósent í stjórnmálafræði við Fróðskapar- setur Færeyja og Molde háskóla í Noregi. Nær húsfyllir var á fyrir lestrinum sem var á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskólans, Norræna hússins og ræðismanns- skrifstofu Færeyja á Íslandi. Beinta segir stöðu Færeyja svo- lítið sérstaka sem svæðis með tak- markaða sjálfstjórn en um leið eigin utanríkisstefnu. Utanríkis- ráðuneyti Færeyja var fyrst stofn- að á síðasta ári. „Við komumst kannski í sömu veislurnar, en ekki endilega á sömu fundina,“ sagði hún um stöðu landsins í valda- skipulagi alþjóðlegrar utanríkis- þjónustu. Færeyjar standa fyrir utan alþjóðasamstarf, en Beinta segir ljóst að það gangi ekki lengur. „Við vorum svo smá að við fengum að fljóta með án þess að nokkur tæki eftir, en núna gætu önnur smá- ríki, eða sjálfstjórnarsvæði, farið að benda á fordæmi Færeyja og spyrja spurninga,“ segir hún. - óká FLYTUR ERINDI Beinta hefur fjallað ítarlega um föðurland sitt Færeyjar í störfum sínum í háskólasamfélaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Beinta í Jákupsstovu fjallaði um breytta stöðu Færeyja í samfélagi þjóðanna: Færeysk utanríkismál í endurskoðun SVEITASTJÓRNARMÁL Bolungarvík- urkaupstaður var rekinn með 123 milljóna króna hagnaði fyrstu níu mánuði ársins. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Bolungarvíkur, sem hefur verið lagt fyrir bæjar- ráð bæjarins. Tekjur bæjarins á tímabilinu eru tólf milljónum meiri en gert var ráð fyrir, rekstrarkostnaður er á áætlun og fjármagnsgjöld 18 milljónum lægri en áætlað var. Nettóskuldir bæjarins hafa minnkað um rúmar 100 milljónir og eru nú 970 milljónir króna. - þeb Árshlutauppgjör í Bolungarvík: Hagnaðurinn 123 milljónir DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi í gær mann í átta mánaða fangelsi, þar af sex skilorðsbundna, fyrir fjórar líkamsárásir gegn fyrrum sambýliskonu sinni og börnum hennar. Í eitt skipti réðst hann á hana á meðan hún hélt á ungum syni þeirra. Maðurinn neitaði sök í málinu. Þá lengdi Hæstiréttur skilorð mannsins um helming, úr tveim- ur árum í fjögur ár. Honum er einnig gert að greiða konunni 300 þúsund krónur í bætur, syni hennar 120 þúsund og dóttur hennar 75 þúsund. Hann þarf einnig að greiða allan sakar- kostnað. - þeb Átta mánaða fangelsi: Réðist á fyrrum konu og börn VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.