Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.11.2009, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 13.11.2009, Qupperneq 10
10 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR SAMFÉLAGSMÁL „Hvaða lífsgildi eiga að vera okkur leiðarljós í þróun samfélagsins?“ Þannig verður spurt á þjóðfund- inum í Laugardalshöll á morgun. Í framhaldinu verður rætt um meg- instoðir samfélagsins, eins og vel- ferðar- og menntakerfi, atvinnu- skapandi umhverfi, regluverk og fleira og með hvaða hætti hægt er að endurmóta þær í samræmi við lífsgildin sem lögð hafa verið til grundvallar. Mat aðstandenda þjóðfundar- ins er að í endurreisnarstörfum síðustu mánaða hafi – hugsan- lega óhjákvæmilega – verið horft þröngt á aðkallandi verkefni og unnið innan þröngs tímaramma. Þjóðfundurinn gefi hins vegar færi á að lyfta umræðunni upp úr einstökum viðfangsefnum, horfa lengra fram og hlusta á visku þjóðarinnar án þess að hún komi í gegnum síu stjórnmálaflokka eða hagsmunasamtaka. Standa vonir þeirra til að út úr fundinum komi sameiginlegt gildismat og framtíð- arsýn, auk ótal hugmynda um end- urreisn Íslands. Undirbúningur hefur staðið þrotlaust síðustu vikur og mán- uði og hefur fjöldi fólks komið að verkinu. Allir utan einn vinna í sjálfboðavinnu en verkefnið nýtur stuðnings margra, einkaaðila og opinberra. Fundinum er ætlað að ná athygl- inni af smáatriðum og skamm- tímalausnum og yfir á framtíðar- sýn þjóðarinnar. Horfa á hærra og lengra og búa til raunverulega umræðu um framtíð Íslands – eins og segir í upplýsingum. Vonir standa til að niðurstöð- ur þjóðfundarins liggi fyrir strax annað kvöld eða snemma á sunnu- daginn og getur fólk kynnt sér þær á thjodfundur2009.is. bjorn@frettabladid.is DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir að ganga berserksgang gegn lög- reglu. Manninum er gefið að sök að hafa á Hellissandi í september valdið óspektum á almannafæri sökum ölvunar. Hann hafi opnað og reynt að opna hurðir á lögreglu- bifreiðum, barið með höndunum á ytra byrði lögreglubifreiðar og stuttu síðar hrifsað einkennishúfu af höfði lögreglumanns. Þá er maðurinn ákærður fyrir að hafa skömmu síðar ráðist með ofbeldi að öðrum lögreglumanni, sem var við skyldustörf, með því að skalla hann í andlitið svo hann hlaut sár á neðri vör vinstra megin og bólgnaði mikið. Loks er manninum gefið að sök að hafa eftir þetta, í lögreglubif- reið á leið frá Útnesvegi að lög- regluvarðstofunni í Ólafsvík, ráð- ist með ofbeldi og hótunum að lögreglumanni og ítrekað reynt að skalla hann. Lögreglumaðurinn náði að víkja sér undan höggunum. Þá hafði maðurinn í frammi hótan- ir um að valda lögreglumanninum líkamstjóni síðar og fá til þess aðra menn til liðs við sig. Maðurinn játaði fyrsta lið ákærunnar þegar málið var þing- fest, en neitaði sök í hinum tveim. - jss LÖGREGLAN Manninum er gefið að sök að hafa ráðist bæði á lögreglubíla og lögreglumenn. Maður á þrítugsaldri ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni: Gekk berserksgang gegn lögreglu SKRAUTLEGIR LAMPAR Þessa dagana stendur yfir í Suður-Kóreu ljósahátíð mikil, og hafa lampagerðarmenn keppst við að útbúa sem skrautlegust ljósfæri af því tilefni. NORDICPHOTOS/AFP Rúðuþurrkur NeoForm. Ný þurrkublöð frá Trico NÝ ÚTGÁFA af rúðuþurrkum frá KÆRUMÁL Persónuvernd hefur hafnað kæru manns sem vildi banna Fjármálaeftirlitinu (FME) að skoða tölvupóst sinn. Kærandinn starfar hjá fyrir- tæki, sem FME hefur til rann- sóknar vegna gruns um brot á ákvæðum laga um birtingu inn- herjaupplýsinga. Kærandinn vildi að Persónuvernd stöðvaði FME í að skoða póstinn þar sem honum hefði sjálfum verið neit- að um að vera viðstaddur skoð- unina. Í niðurstöðu Persónuverndar kemur fram að skoðun póstsins hafi verið liður í rannsókn FME á lögbroti sem getur varðað sekt- um eða fangelsi allt að tveimur árum. Vegna þessa hafi Persónu- vernd ekki valdheimildir til þess að stöðva skoðun FME á póstin- um. - pg Innherjamál í rannsókn: Vildi stöðva skoðun FME á tölvupósti Samfélagið krufið og skilgreint upp á nýtt 1.500 manns er stefnt til þjóðfundar í Laugardalshöll á morgun. Spurt verður um lífsgildin og meginstoðir samfélagsins endurmótaðar. Færa á þjóðfélagsum- ræðuna úr þröngum farvegi stjórnmála og hagsmuna og horfa fram á veginn. ■ 1.200 fundarmenn voru valdir handahófskennt úr þjóðskrá og 300 fulltrú- um stofnana og samtaka er boðið til fundarins. ■ Fundarmönnum verður raðað á níu manna borð. Borðin verða 162. ■ Rætt verður um lífsgildi og endurmótun meginstoða samfélagsins með kerfisbundnum hætti. ■ Úr á að verða framtíðarsýn byggð á skýrum grunngildum. Skilgreina á nauðsynlegar áherslur, markmið og verkefni til að tryggja skilvirkan farveg fyrir breytingar og aðgerðir sem ráðast þarf í. ■ Gengið er út frá því að þátttakendur skuldbindi sig til þess að taka mark á niðurstöðum og fylgja þeim eftir. ■ Áætlaður kostnaður við þjóðfundinn er 27 milljónir. Fjölmargir aðilar; ríkis- stjórn, sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklingar, hafa lagt sitt af mörkum. Ríkisstjórnin lagði verkefninu til sjö milljónir króna. Hópurinn sem stendur að baki fundinum kallar sig Mauraþúfuna. Í honum eru Þorgils Völundarson, Guðjón Már Guðjónsson, Halla Tómasdóttir, María Ellingsen, Lárus Ýmir Óskarsson, Bjarni Snæbjörn Jónsson, Svandís Svav- arsdóttir, Gunnar Jónatansson, Haukur Ingi Jónasson, Sigrún Þorgeirsdóttir, Ólafur Stephensen, Benjamín Axel Árnason, Guðfinna Bjarnadóttir og fleiri. MAURAÞÚFAN Fólk hefur varið degi og nótt í undirbúning þjóðfundarins sem fram fer í Laugardalshöll á morgun. Framkvæmdastjórnin hittist á fundi í hádeg- inu í gær og fór yfir stöðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FRAMKVÆMD ÞJÓÐFUNDARINS PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas, forseti Palestínu- stjórnar, gæti hæglega setið áfram í embætti ótímabundið þrátt fyrir að hafa lýst því yfir að hann ætli ekki að bjóða sig fram í kosningunum í janúar. Kjörstjórn Palestínustjórnar lagði nefnilega til í gær að hætt yrði við kosningarnar. Abbas þarf þó að gefa samþykki sitt til þess, en þarf þá heldur ekki að hætta við að hætta við framboð til að geta setið áfram. Engin von virðist til þess að friðarviðræður við Ísraela geti haldið áfram á næstunni. Nicol- as Sarkozy Frakklandsforseti reyndi þó í gær að hvetja Abbas til að hefja friðarviðræður á ný. Abbas hefur ítrekað sagt að ekki komi til greina að halda áfram friðarviðræðum meðan Ísrael- ar haldi áfram uppbyggingu og framkvæmdum á landtökusvæðum. Benjamín Netanjahú, forsætis- ráðherra Ísraels, hefur sömuleiðis ítrekað neitað að fallast á að stöðva þær framkvæmdir. „Við gerðum það sem ætlast var af okkur,“ sagði Abbas í gær, þegar Palestínumenn minntust þess að fimm ár eru liðin frá því að Jasser Arafat, for- veri Abbasar, lést. „En við horfum upp á Ísraela taka frá okkur land og reisa þar byggðir.“ - gb Palestínustjórn íhugar að hætta við forsetakosningar: Abbas gæti setið áfram SAEB EREKAT Aðalsamningafulltrúi Palestínustjórnar á fundi með utanríkisráðherrum arabaríkjanna í Kaíró. NORDICPHOTOS/AFP BANDARÍKIN Nidal Hasan, sem gekk berserksgang í herstöð í Fort Hood í Texas í síðustu viku, hefur verið ákærður fyrir þrettán morð. Frá þessu var greint í gær. Rannsókn málsins stendur enn yfir og er líklegt að fleiri ákærur bætist við. Hasan er enn á sjúkrahúsi með skotsár. Hann er sagður hafa skotið þrettán manns til bana; tólf hermenn og einn óbreyttan borgara. Tugir til viðbótar særðust og eru tólf enn á sjúkrahúsi. Hasan starfaði sem geðlækn- ir í hernum. Alríkislögreglan telur að hann hafi verið einn að verki og sé ekki hluti af stærra hryðjuverkaneti. - þeb Geðlæknirinn í Fort Hood: Ákærður fyrir þrettán morð FÓLK Íslensk kona, Iðunn Har- aldsdóttir, er í framboði fyrir Einingarlistann í Kaupmanna- höfn í dönsku sveitarstjórnar- kosningunum. Iðunn, sem er 26 ára gömul, hefur sent út kosningabækling á Netinu þar sem hún hvetur Íslendinga með kosningarétt í Kaupmannahöfn til þess að nýta atkvæðisrétt sinn. Enhedslistinn er rauð- grænt framboð og er í ætt við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð hér á landi. Kosningarnar fara fram hinn 17. nóvember næstkom- andi. Kosningar í Kaupmannahöfn: Íslensk kona í framboði VERSLUN „Þetta er pallabúð,“ segir Jón Gerald Sullenberger, sem opnar á morgun nýja verslun, sem heitir Kostur, á Dalvegi 4 í Kópavogi. „Við verðum með fullt af nýjum vörum; kjöt, ávexti, grænmeti, bækur og alls konar spennandi vörur á góðu verði,“ segir Jón Ger- ald. Hann kveðst gera sitt besta til að verða samkeppnishæfur við stóru verslanirnar á markaðnum. „Við erum bara með eina búð og það er erfitt að keppa við risana en við reynum okkar besta.“ Um fjörutíu manns starfa í versluninni og verður opið alla daga frá 11 til 18.30. - pg Ný verslun í Kópavogi: Jón Gerald opnar Kost ALLT KLÁRT Jón Gerald Sullenberger verður með um fjörutíu starfsmenn í nýju versluninni. FRÉTTABLAÐIÐ STEFÁN Fjórir á gjörgæslu 28 manns eru nú á Landspítalanum með svínaflensuna, þar af eru fjórir á gjörgæslu. Þrír sjúklingar voru útskrif- aðir í gær. Þetta kom fram í tilkynn- ingu frá farsóttanefnd spítalans í gær. HEILBRIGÐISMÁL Síðasti fundur bæjarstjóra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir er hætt sem bæjarstjóri í Grindavík. Hún tekur við sem sóknarprestur í Kolfreyjustað- arprestakalli um næstu mánaðamót. GRINDAVÍK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.