Fréttablaðið - 13.11.2009, Síða 22

Fréttablaðið - 13.11.2009, Síða 22
22 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Velta: 47,5 milljónir OMX ÍSLAND 6 808 +0,86% MESTA HÆKKUN BAKKAV. GROUP 36,36% ICELANDA. GROUP 10,94% MAREL 1,66% MESTA LÆKKUN EIK BANKI 6,67% ÖSSUR 0,37% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 177,00 +0,00% ... Bakkavör 1,50 +36,36% ... Føroya Banki 135,50 +0,00% ... Icelandair Group 3,55 +10,94% ... Marel 67,30 +1,66% ... Össur 136,00 -0,37% Þýska Merckle-fjölskyldan vonast til að sala á lyfja- fyrirtækinu Ratiopharm leysi það úr skuldaviðjum. Tíu fyrirtæki eru sögð hafa lagt fram tilboð í það, þar á meðal Actavis. Forstjórinn hvorki játar né neitar. Actavis er sagt vera á meðal tíu fyrirtækja sem lögðu fram tilboð í fyrsta útboði í þýska samheitalyfja- fyrirtækið Ratiopharm fyrir viku. Kaupverð er í kringum tveir millj- arðar evra, jafnvirði rúmra 370 milljarða íslenskra króna á gengi krónunnar í gær. Þýski bankinn Commerzbank og Royal Bank of Scotland í Bretlandi sjá um tilboðsferlið en búist er við að salan gangi í gegn á fyrsta fjórð- ungi næsta árs. Blásið verður til annarrar tilboðslotu í næsta mán- uði. Bloomberg-fréttastofan segir að á meðal bjóðenda séu nokkur af umsvifamestu fjárfestingafé- lögum og einkaframtakssjóðum heims á borð við TPG, KKR, Per- mira, Advent International og fjár- festingarbankann Goldman Sachs. Þeir tveir síðasttöldu eru sagðir bjóða saman í lyfjarisann. Þá eru nokkur lyfjafyrirtæki sögð bera víurnar í þýska keppi- nautinn. Þar á meðal eru franska fyrirtækið Sanofi-Aventis, Teva Pharmaceutical frá Ísrael, Mylan frá Bandaríkjunum, kínverska lyfjafyrirtækið Sinopharm Group og Actavis. Ekkert lyfjafyrirtækjanna vildi staðfesta fréttina, að sögn Bloom- berg. Sigurður Óli Ólafsson, for- stjóri Actavis, segir í samtali við Fréttablaðið að fyrirtækið tjái sig ekki um málið. Slíkt sé venja. Ratiopharm er nánast jafnstórt Actavis. Breska dagblaðið Financi- al Times sagði í gær rekstrarhagn- að þess í fyrra hafa numið 190 millj- ónum evra á fyrstu níu mánuðum ársins, sem sé óbreytt staða á milli ára. Þá sé búist við að tekjur muni nema 1,6 milljörðum evra í ár. Til samanburðar nam rekstrar- hagnaður Actavis 267,8 milljónum evra í fyrra og skiluðu tekjurnar 1,5 milljörðum evra. Actavis hefur verið orðað við kaup á nokkrum fyrirtækjum frá því að Novator, félag í eigu Björg ólfs Thors Björgólfssonar, tók það yfir fyrir rúmum tveimur árum. Af þeim varð ekki en um tvö ár eru síðan Actavis keypti síðast fyrirtæki. jonab@frettabladid.is Actavis sagt í baráttu um þýskan lyfjarisa Salan á þýska samheitalyfjafyrirtækinu Ratiopharm er tilkomin vegna gríðarlegra skulda sem eigandi þess, hin þýska Merckle- fjölskylda, situr upp með eftir misheppnaða skortstöðu fjölskylduföðurins með hlutabréf í Volkswagen fyrir rétt rúmu ári. Adolf Merckle er af auðugu fólki kominn og var í 99. sæti yfir ríkasta fólk heims á lista Forbes í fyrra. Hann byggði upp umsvifamikla fyrirtækjasamstæðu á arfi sínum sem teygir anga sína vítt og breitt um Þýskaland. Í fyrra taldi Merckle líkur á að hlutabréf bílaframleiðandans Volkswagen myndu lækka á seinni hluta ársins eftir nær viðstöðulausa hækkun. Ástæðan fyrir því var sú að bílaframleiðandinn Porsche hafði smám saman verið að sanka að sér hlutabréfum keppinautarins. Þegar verðið var komið í hæstu hæðir töldu margir að frekari kaup myndu verða sett á salt. Fleiri voru á sama máli, þar á meðal vogunarsjóðir. Þeir fengu lánuð hlutabréf í Volkswagen og seldu á markaði seint í október með það fyrir augum að þrýsta verðinu niður. Það stóð í tæpum 400 evrum á hlut 16. október 2008 en féll niður í 210 viku síðar. En Porsche kom markaðnum á óvart og keypti bréfin sem sjóðirnir og aðrir skortsalar seldu. Við það rauk verðið í tæpar þúsund evrur á hlut á tveimur dögum. Aðgerðirnar skiluðu sér í gríðarlegu tapi skortsala, sem höfðu stefnt að því að kaupa hlutabréfin aftur á mun lægra verði en þeir seldu þau á. Merckle tapaði sjö hundruð milljónum evra, jafnvirði 130 milljarða króna, á viðskiptunum. Hann lenti í miklum vandræðum vegna þessa auk þess sem einu fyrirtæki í veldi fjölskyldunnar tókst ekki að endurgreiða lán sín. Þrýst var á fjölskylduna að selja eignir til að greiða skuldir sínar. Þær hljóða upp á þrjá milljarða evra, jafnvirði 560 milljarða króna og stýra kröfuhafar því að nær öllu leyti í dag. Adolf Merckle framdi sjálfsmorð skömmu eftir síð- ustu áramót. Hann var á 75. aldursári. VANDRÆÐI MERCKLE-FJÖLSKYLDUNNAR FORSTJÓRI ACTAVIS Sigurður Óli Ólafsson vildi ekkert tjá sig um meint tilboð fyrirtækisins í samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ADOLF MERCKLE Fjörutíu einstaklingar eru skráðir í sam- keppni um besta tölvuleikinn sem hófst fyrir viku. Þetta kom fram í máli Erlu Bjarneyjar Árnadóttur, hjá Samtökum tölvuleikjaframleiðenda (IGI), sem standa að keppninni, á ráðstefnu Skýrslutæknifé- lags Íslands um hugbúnaðargerð. Keppnin er öllum opin, þátttaka ókeyp- is og þurfa keppendur ekki að skrá sig til leiks fyrr en þeir skila framlagi sínu. Lokafrestur rennur út í mars á næsta ári. Erla sagði fyrirtækjum í tölvuleikja- geiranum hér fjölga hratt og því erfitt að henda reiður á hversu mörg þau séu. Hún telur þau tíu hér á landi með 625 starfs- menn. Áætlað sé að starfsmönnum í geir- anum fjölgi um 150 til 200 á næstu tólf til átján mánuðum. Þá kom fram í máli Erlu að augu heims- ins hefðu í auknum mæli beinst að íslensk- um tölvuleikjafyrirtækjum. Til marks um það muni um þriðjungur af jólablaði breska tölvuleikjatímaritsins Edge, einu af stærstu tölvuleikjablöðum heims og kemur út í enda mánaðar, verða tileink- að íslenskum leikjafyrirtækjum. Þar af er stór umfjöllun um CCP og nýjasta leik fyr- irtækisins, Dust 514. Á forsíðu blaðsins er skjáskot úr leik CCP í þrívídd en þetta mun vera fyrsta slíka forsíða blaðsins. - jab Risablað fjallar um Ísland Tölvutímaritið Edge birtir viðamikla úttekt um íslensku leikja- fyrirtækin í jólaheftinu í enda mánaðar. Marel hefur undirritað vilja- yfirlýsingu við hollenska fjár- festingarsjóðinn Nimbus um sölu á hollensku einingunni Stork Food and Dairy Systems, sem nú er hluti af Stork Food Systems. Áætlað er að viðskiptum ljúki fyrir árslok, eins og segir í til- kynningu. Stefnt hefur verið að því að selja deildina frá því Marel lauk kaupum ásamt fleirum á hollensku iðnsamsteypunni Stork Food Systems í maí í fyrra. Deildin framleiðir átöpp- unarbúnað fyrir mjólkurvörur og safa og er innan við tíu pró- sent af heildarveltu Marels. - jab Marel selur hollenska deild :: Ásta Kristjánsdóttir í einlægu og opinskáu viðtali :: Elfa Gísladóttir leikkona ræðir um Jón Óttar, Völu Matt, sorgina og söfnuðinn :: Yr 90 hugmyndir að jólafatnaði fjölskyldunnar :: Yr 70 hugmyndir að ottum jólagjöfum Jólakjólar, hátíðarförðun, jóladekur sælkeranna, kökur, karamellur, kakó og margt eira JÓLABLAÐIÐ 132 SÍÐUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.