Fréttablaðið - 13.11.2009, Blaðsíða 34
2 föstudagur 13. nóvember
núna
✽ fylgist vel með
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Arnþór Birkisson Ritstjóri Anna M.Björnsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
helgin
MÍN
S jaldan hefur sést vinsælli kjóll en Emami-kjóllinn sem
gerði allt vitlaust fyrir um tveim-
ur árum. Það sem er einstakt við
kjólinn er að hann var hægt að
nota á fjölmarga mismunandi
vegu svo að í raun var hann marg-
ar flíkur í einni. „Vegna gífurlegra
vinsælda kjólsins var ráðist í nýja
línu sem er byggð á sömu hug-
mynd og kjóllinn, það er hægt að
nota hana á marga vegu,“ útskýrir
Brynjar Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri Emami. Línan er hönnuð
sem fyrr af Steinunni Garðars-
dóttur í samstarfi við fatahönnuð-
ina Lindu Árnadóttur og Ásmund
Ásmundsson. „Það var krefjandi
verkefni að hanna margar fjölnota
flíkur en línan hefur vakið mikla
athygli erlendis þar sem hún hefur
verið sýnd undanfarið.“ Ný versl-
un undir nafninu Emami verður
opnuð um helgina á Laugavegi 66
og í tilefni þess verður fimmtán
prósenta afsláttur alla helgina.
„Á föstudagskvöldið verður hald-
in vegleg tískusýning og opnun-
arteiti en svo verður búðin opin
bæði laugardag og sunnudag.“
Brynjar bætir því við að Emami-
fatnaðurinn henti vel tíðarandan-
um í dag. „Það er auðvitað hag-
kvæmt að geta keypt sér eina flík
sem getur breyst í svo ótal marg-
ar útgáfur.“ - amb
Emami færir út kvíarnar
NÝ BÚÐ Á LAUGAVEGI
LEIKARAPARIÐ Demi Moore og
Ashton Kutcher voru ástfangin að
sjá á góðgerðarballinu „Gentlemen‘s
Ball“ í New York í síðustu viku.
Nýja línan Meðal fatnaðar er að finna toppa,
buxur og yfirhafnir.
Níu hönnuðir ætla að selja vörur sínar á hag-
stæðu verði í svokallaðri PopUp Verzlun, sem
skýtur upp kollinum í fjórða sinn á laugar-
daginn. Í þetta sinn er það að Bankastræti
14, á efri hæð, í sama húsnæði og Nakti
apinn var til húsa. Meðal hönnuða má
nefna: Sunnu Dögg Ásgeirsdóttur með
barnaföt, Aaron Charles Bullion með
herraskyrtur, Eygló Margréti Lárusar-
dóttur með kvenföt, og Elvu Dögg Árna-
dóttur með hekluð hálsmen og kvenföt.
Verslunin verður opin á laugardaginn frá
klukkan 11 til 20. - hhs
Peysa frá Sonju Bent
Sonja Bent og átta aðrir hönnuðir
selja vörur sínar á hagstæðu verði
í PopUp Verzlun í Bankastræti.
Pop-up búð!
Krefjandi verkefni Steinunn Garðarsdóttir, yfirhönnuður Emami, og Bjarni Garðarsson eigandi ásamt verslunarstjóra nýju
verslunarinnar.
Sjá dagskrá
á skessan.is
fjölskyldan saman
STEINGRÍMUR GAUTI INGÓLFSSON , NEMI OG
BARÞJÓNN Á KAFFIBARNUM
Ég er að spá í að vera menningarlegur og fara í leikhús á laugardaginn. Annars
verður oft lítið úr helgunum mínum því ég læt alltaf plata mig í eitthvert svínarí
sem endar undir morgun. Svo er reyndar Kaffibarinn sextán ára um helgina
og það er eiginlega dónalegt að mæta ekki í afmælið.
Þórunn Högna með nýjan
þátt
Innanhúss-
galdrakonan og
ofurskvísan Þór-
unn Högnadótt-
ir sem áður var
hluti af Innlits-
Útlits þríeykinu
á Skjá Einum
ásamt Arn-
ari Gauta og Nadíu Banine er að
byrja með nýja þætti nú í desem-
ber. Þættirnir verða sýndir á sjón-
varpsstöðinni ÍNN og munu, líkt og
Innlit-Útlit, fjalla um heimili og hús-
búnað. Munurinn er þó sá að í nýja
þættinum fjallar Þórunn um ódýr-
ar og sniðugar lausnir fyrir heimilið
ásamt því sem hún fókuserar á ís-
lenska hönnun og framleiðslu.
Skírnarveisla á Boston
Þegar skíra á barn láta flestir
sér duga að dekka borð með
hvítum dúk, baka eina krans-
aköku og skella lítilli dúkku í vöggu
ofan á. En ekki tónlistarmaður-
inn Gísli Galdur og Kristín Kristj-
ánsdóttir, kona hans. Dóttur þeirra
og frumburði verður gefið nafn á
sunnudaginn. Í tilefni af því verð-
ur slegið upp veislu á skemmti-
staðnum Boston, þangað sem fjöl-
skyldu og vinum þeirra er boðið að
koma að fagna nýju nafni. Tilefnið
er reyndar tvöfalt en Kristín átti af-
mæli á fimmtudaginn og fagnar því
þrítugsafmæli sínu samhliða nafn-
gjöf dóttur sinnar.
Tískufrík af karlkyni ættu ekki að láta sig vanta í fjögurra ára
afmælisveislu Gyllta kattarins.
Samhliða afmælisveislunni verð-
ur nefnilega ný herradeild vígð.
Það, segir Viktoría Hermanns-
dóttir aðstoðarverslunarstjóri,
er gert til að bregðast við bráða-
fataskorti karlmanna borgarinn-
ar. „Það virðist ekki fást mikið af
fötum fyrir stráka á almennilegu
verði hérna. Við verðum með
mikið úrval fyrir þá, bæði not-
aðar og nýjar vörur. Boli, peysur,
gollur, skyrtur, jakka – allt sem
herramenn vantar!“
Eftir sem áður verður kvenfata-
úrvalið gott og eru jólavörurnar
teknar að streyma í hús. Afmæl-
inu verður fagnað í versluninni á
morgun, laugardag, á milli klukk-
an tvö og sex. Sigríður Thorlacius
söngkona mætir og tekur nokkur
lög af nýju plötunni sinni, Anna
Rakel þeytir skífum og léttar
veigar verða í boði. - hhs
Ný herradeild og afmælisveisla:
Gyllti kötturinn bjargar strákunum
Í Gyllta kettinum Aðstoðarverslunar-
stjórinn Viktoría Hermannsdóttir býst
við mikilli gleði í fjögurra ára afmælis-
veislu kisa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
þetta
HELST
Teknódýr á NASA
Teknó goðsögnin Umek verður á
NASA á laugardagskvöldið en þar
verður til húsa árshátíð Techno.is.
Umek þessi er þekktasti plötu-
snúðurinn og vinsælasti tónlistar-
maðurinn innan danstónlistarinnar
í Slóveníu og byrjaði að þeyta skíf-
um árið 1993.
Umek náði þá heimsfrægð í hinum
stóra techno heimi þegar hann gaf
út smáskifuna “ Lanicor”.
Lætin hefjast á miðnætti og miðar
kosta 2000 krónur í forsölu.