Fréttablaðið - 13.11.2009, Qupperneq 64
44 13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Tvíburabræðurnir Joel og Benji Madden voru gestir í áströlskum
útvarpsþætti síðastliðinn mánudag og fékk viðtalið nokkuð snubb-
óttan endi þegar Joel Madden, barnsfaðir Nicole Richie, gekk út.
Stjórnendur þáttarins vildu athuga hvort það væri sannleiks-
korn til í því að tvíburar gætu skynjað tilfinningar hvor annars og
ákváðu að leggja próf fyrir bræðurna. Bundið var fyrir augun á
Benji og var Joel sýnd klúr ljósmynd af söngkon-
unni Britney Spears. Benji giskaði á að bróðir
sinn væri pirraður, sem reyndist rétt því Joel
svaraði um hæl: „Ég tel mig vera nokkuð
afslappaðan mann, en þið tveir eruð farn-
ir að fara í taugarnar á mér.“ Stuttu
seinna gekk Joel út og fylgdi Benji
honum eftir. „Oftast umber ég
kjánalega morgunþáttastjórnendur,
en ekki í dag. Ætli ég hafi ekki í fyrsta
sinn hitt Ástrala sem ég kann illa við,“
skrifaði Joel á Twitter-síðu sína seinna
sama dag.
Rauk út í miðju
útvarpsviðtali
MISBOÐIÐ Tvíburabræðurnir Joel og
Benji Madden þoldu ekki kjánalætin í
áströlskum útvarpsþáttastjórnendum.
Kunnugt er orðið er maður sló
bresku söngkonuna Leonu Lewis
þegar hún var að kynna nýja ævi-
sögu sína. Maðurinn var handtek-
inn í kjölfarið og lífverðir fluttu
Lewis á brott. Í viðtali við The
Sun segir söngkonan að hún láti
atvikið ekki hafa áhrif á sig. „Ég
ólst upp í Hackney, þannig að ég
er hörð af mér. Ég mun ekki láta
eitthvað svona hafa áhrif á mig.
Það var alltaf eitthvert vesen
í gangi í hverfinu mínu. Strák-
arnir slógust og það var
mikið um glæpi. Hverfið
mitt hefur eina hæstu
glæpatíðni í land-
inu, þannig að þegar
maður elst upp við
það lærir maður að
passa upp á sjálfan
sig,“ sagði söng-
konan.
Leona Lewis
er hörð
Mariah Carey var gestur í þætti
Larry King í vikunni og þar við-
urkenndi hún að hún hefði eitt sinn
verið í sambandi þar sem hún sætti
andlegu ofbeldi. „Ég var beitt and-
legu og tilfinningalegu ofbeldi í
sambandi. Þetta er skelfileg lífs-
reynsla. Mér fannst erf-
itt að losna úr þessum
aðstæðum því ég var
ekki aðeins gift þess-
um manni heldur var
hann einnig við-
skiptafélagi minn
og réði því öllum
þáttum í lífi mínu
á þeim tíma,“
sagði söngkonan.
Réði ekki
eigin lífi
MARIAH CAREY
Britney Spears
er stödd í Ástr-
alíu þar sem
hún syngur á
þrennum tón-
leikum. Söng-
konan hefur
sætt gagnrýni
fyrir að syngja
ekki, heldur
notast við upp-
tökur, en rukka samt sem áður
hátt verð fyrir hvern miða.
Spears hefur sent frá sér til-
kynningu um málið: „Ég hef
heyrt að sýning mín hafi sætt
gagnrýni. Blaðamenn skrifa að
fólk sé ánægt með tónleikana,
aðrir segja að fólk hafi orðið
fyrir vonbrigðum. Ég kom til
Ástralíu fyrir aðdáendur mína.“
Britney sætir
gagnrýni
BRITNEY SPEARS
Aðalleikararnir í Twilight-seríunni spjölluðu við blaða-
mann Entertainment Weekly í tengslum við frumsýn-
ingu kvikmyndarinnar New Moon, sem margir hafa
beðið spenntir eftir. Þegar blaðamaður spurði Kristen
Stewart út í meint ástarsamband hennar og samleik-
ara hennar, Robert Pattinson, brást hún ókvæða við.
„Ég myndi kannski svara ef fólk væri ekki að gera sér
svona mikinn mat úr þessu öllu. Ég veit að fólk hugsar:
„Jæja, þú kaust að gerast leikari, af hverju hættirðu
ekki alfarið að eiga þér einkalíf? Megum við fá frum-
burðinn þinn líka?“ Ég hef mikið hugsað um þetta og
það er ekkert svar sem ég gæti gefið sem ekki væri
hægt að taka úr samhengi. Ég gæti svarað játandi,
neitandi, ekki sagt neitt eða sagst vera samkynhneigð,
það yrði allt tekið úr samhengi. Ef fólk mundi spyrja
hvort ég væri að hitta Taylor á laun þá mundi ég svara
nákvæmlega eins,“ sagði Stewart.
Stewart neitar að svara
DULARFULL Kristen Stewart hefur aldrei viljað láta
neitt uppi um sitt einkalíf.
HÖRÐ AF SÉR Leona
Lewis ólst upp í
slæmu hverfi í
London.
Hljómsveitin FM Belfast ætlar
í mánaðarlanga tónleikaferð
um Evrópu í febrúar. Ástæð-
an er útgáfa plötunnar How To
Make Friends í Frakklandi í
janúar og um gjörvalla Evrópu
í febrúar. Platan kemur sömu-
leiðis út í Bandaríkjunum og í
Japan í febrúar. „Þetta er það
sem við erum búin að vinna í
lengi. Með hjálp annarra þá
hefur þetta gengið upp,“ segir
Árni Plúseinn, sem er ánægð-
ur með þá dreifingarsamninga
sem hafa náðst erlendis. Hljóm-
sveitin er án útgáfusamnings
sem stendur og verður fróðlegt
að sjá hvort erlendir útsendar-
ar komi ekki auga á hana á Evr-
óputúrnum.
Til Evrópu í mánuð
FM BELFAST Hljómsveitin FM Belfast ætlar
í mánaðarlanga tónleikaferð um Evrópu í
febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Slóvenski plötusnúðurinn Umek
þeytir skífum á árshátíð Techno.
is á Nasa á laugardaginn. Umek
hefur verið starfandi plötusnúð-
ur frá árinu 1993 og er orðinn
mjög virtur á sínu sviði. Hann
vakti fyrst verulega athygli fyrir
að spila á þrjá plötuspilara í einu
auk þess sem hann notaði eff-
ektagræjur á sama tíma. For-
svarsmenn Techno.is hafa reynt
að fá Umek til landsins undanfar-
in fjögur ár og núna hefur hann
loksins þekkst boð þeirra. Auk
Umek spila á árshátíðinni Exos,
Oculus, Óli Ofur og Impulze.
Slóveni spilar
á árshátíð
Í dag gefur hljómplötuút-
gáfan Kölski út fyrstu plötu
Ourlives. Hljómsveitin hef-
ur unnið að því að koma út
plötu síðan 2004 og meðlim-
irnir segja nú þungu fargi
af sér létt.
„Við hlökkum til að geta fylgt
plötunni eftir. Það er nauðsyn-
legt fyrir tónlistarmenn að hafa
efni í höndunum til að kynna og
við erum loksins komnir á þann
stað,“ segir Eiður Ágúst Kristj-
ánsson gítarleikari.
Vildu ekki vera Nickelback 2
Sumir vilja meina að tónlist Our-
lives hljómi eins og tónlist í stiklu
fyrir nýjustu Spiderman-mynd-
ina. Strákarnir gretta sig þegar
ég ber þetta undir þá. Jón Björn
segir að Spiderman-stiklu samlík-
ingin eigi aðeins við fortíð sveit-
arinnar.
„Við vorum í ansi miklu kapp-
hlaupi við sjálfa okkur og keyrð-
um okkur áfram á stuttum tíma.
Titill plötunnar, We Lost the Race,
er skírskotun í þetta,“ segir hann
og rifjar upp meiksögu bandsins:
„Við fengum tilboð frá Columbia-
útgáfunni, sem var til sjö ára og
var alveg hrikalegur samningur.
Enda höfnuðum við honum. Við
vorum komnir með alls konar fólk
í kringum okkur sem sá okkur
einmitt fyrir sér sem band sem
myndi spila lagið í stiklunni fyrir
nýjustu Spiderman-myndina.“
Þessar meikþreifingar enduðu
í Kanada í hljóðveri með upp-
tökustjóranum David Bottrill.
„Hann einfaldlega hentaði okkur
ekki. Ég man eftir því þegar við
vorum að taka upp. Í eitt skiptið
leit ég upp og sá einn í bandinu
sem var orðinn náfölur í framan.
Svo stundi hann upp að þetta væri
farið að hljóma skuggalega líkt og
Nickelback.“
„Við gátum bara ekki hald-
ið þessu áfram,“ segir Leifur.
„Dropinn sem fyllti mælinn var
þegar hann varði löngum tíma í
að kenna mér að bera fram orðið
„decision“. Þá tókum við nú bara
ákvörðun um að þetta væri orðið
ágætt.“
Loksins sáttir
Strákarnir segja að það hafi verið
auðveldasta val í heimi að velja
á milli þess að hjakka áfram í að
reyna að búa til handboltarokk
með útlendu bransaköllunum eða
koma heim og gera plötu með
Barða Jóhannessyni, kenndum við
Bang Gang. „Þetta small nú bara
allt þegar við fórum að vinna með
Barða,“ segir Jón Björn. „Hann
tók það besta úr þessu hjá okkur
og við mótuðum þetta saman.“
„Við fundum fljótlega að þetta
var að virka og vorum í fyrsta
skipti alveg hundrað prósent
ánægðir með útkomuna. Það var
frábær tilfinning,“ segir Leifur.
„Við dönsum á línunni á milli
popps og rokks,“ segir Eiður.
„Þetta eru allt saman mjög
útvarpsvæn lög og við erum bara
stoltir af því.“
Strákarnir ætla að verða sýni-
legir á næstunni og kynna plöt-
una á Íslandi. Ekkert sé í kortun-
um með frekara meik en auðvitað
standi hugurinn alltaf til stærri
markaða. Bandið hefur aflað sér
ýmissa sambanda og þau verða
notuð. Í umslagi plötunnar er
gefin upp slóð þar sem hægt er
að sækja níu aukalög, þar á meðal
þrjú sem bandið gerði með David
Bottrill. „Við skömmumst okkar
ekkert fyrir þessi lög en við
gátum bara ekki hugsað okkur að
hafa þau með þessum nýju sem
við gerðum með Barða.“
drgunni@frettabladid.is
OURLIVES DANSAR Á LÍNUNNI
TAPAÐI KAPPHLAUPINU EN VANN SAMT Hljómsveitin Ourlives fann sig loksins eftir
langa leit. Frá vinstri: Jón Björn, Garðar Borgþórsson trommari, Leifur og Eiður.
MYND/LISA ROZE
Tímalaus fegurð
Regenerating krem - náttúrulegar vörur til styrktar húð fyrir 40+
Þú færð Dr.Hauschka vörurnar í Yggdrasil, Fjarðarkaupum, Lyfju Lágmúla og Heilsuveri.
„Ég hef notað þessi
krem reglulega og
mæli hiklaust með
þeim.“ Sirrý
Allar Dr.Hauschka snyrtivörur eru náttúrulegar, án allra
aukaefna og eru unnar úr virkum lífrænum lækningajurtum.