Fréttablaðið - 13.11.2009, Síða 72
13. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
HANDBOLTI Markvarsla Harðar
Flóka Ólafssonar tryggði Akur-
eyri 25-24 sigur gegn Stjörnunni
á heimavelli í gær. Hörður varði
26 skot, þar af þrjú hraðaupphlaup
og þrjú víti auk tveggja skota í síð-
ustu sókn Stjörnunnar sem hefði
þar getað tryggt sér stig.
Fyrri hálfleikur var jafn framan
af en í stöðunni 5-5 skoraði Akur-
eyri fimm mörk í röð. Stjörnumenn
börðust þó vel til baka og staðan
var 13-12 í leikhléi. Stjarnan komst
yfir í upphafi síðari hálfleiks en
Akureyringar settu þá í fimmta
gír og sigldu fram úr.
Þeir voru fjórum mörkum yfir
þegar skammt var eftir en voru
nálægt því að kasta öruggum sigri
frá sér. Léleg og ótímaær skot,
fáránlegar tvær mínútur og rangar
ákvarðanir urðu til þess en Stjarn-
an sýndi frábæra baráttu með því
að eiga möguleika á stigi miðað við
hvernig leikurinn spilaðist.
„Þetta er bara ekki vottur af
skynsemi eða reynslu hvernig við
gerum síðustu mínúturnar spenn-
andi. Ég er ekki ánægður með það.
Við erum að leiða leikinn en það
virðist vera sem sú staða sé of
þægileg fyrir okkur. Við förum að
spila slakari handbolta og fáum það
svoleiðis í hnakkann að við getum
ekki staðið undir því,“ sagði Rúnar
Sigtryggsson sem var þó ánægð-
ur með sigurinn. „Ég er ánægður
með það þegar menn spila vel en
ekki þegar menn missa það svona
niður,“ sagði Rúnar sem hrósaði
Herði í hástert. „Ég hef ekki séð
hann svona lengi.“
Patrekur Jóhannesson, þjálf-
ari Stjörnunnar, leit á björtu hlið-
arnar. „Þetta var klaufaskapur í
okkur. Við áttum skilið eitt stig og
það er fúlt að ná því ekki en ég er
mjög ánægður með strákana. Við
vorum ekki líklegir þegar það voru
fimm mínútur eftir en við gáfumst
ekki upp og það er mjög jákvætt.
Þetta er á réttri leið hjá okkur,“
sagði þjálfarinn. - Hþh
Akureyri vann 25-24 sigur gegn Stjörnunni í N1-deild karla í handbolta í gær:
Flóki frábær í naumum sigri
ÖFLUGUR Jónatan Magnússon var
markahæstur hjá Akureyri með 7 mörk í
góðum sigri gegn Stjörnunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HANDBOLTI Grótta vann í gær sinn
annan sigur í N1-deild karla á
tímabilinu er liðið heimsótti gríð-
arsterkt lið FH í Kaplakrika.
Leiknum lauk með sex marka sigri
Gróttu, 38-32, eftir að staðan var
jöfn í hálfleik.
Segja má að Gróttumenn hafi
verið sterkari aðilinn í leiknum
lengst af. Það var jafnræði með
liðunum í fyrri hálfleik en þó
var augljóst að FH-ingar voru að
spila langt undir getu. Það sem
hélt þeim inn í leiknum, fyrst og
fremst, var fín frammistaða Pálm-
ars Péturssonar í markinu.
En hafi fyrri hálfleikur verið
slakur hjá FH var sá síðari hrein
hörmung. Varnarleikur liðsins
var í molum sem sást best á því
að Grótta skoraði 22 mörk í síðari
hálfleik. Ekki var sóknarleikurinn
burðugur heldur.
Það skal þó ekki tekið af Gróttu-
mönnum að þeir spiluðu glimrandi
fínan handbolta í gær. Þeir voru
duglegir að nýta sér veikleika
andstæðingsins og galopnuðu vörn
heimamanna hvað eftir annað.
Það hefur háð Gróttumönnum í
vetur hversu illa þeim hefur geng-
ið að klára leiki sína almennilega
en það gerðu þeir svo sannarlega í
gær. FH náði mest að minnka mun-
inn í þrjú mörk en gestirnir gáfu
þá aftur í og unnu öruggan sigur.
„Þessi leikur var skandall frá a
til ö,“ sagði Sigurgeir Árni Ægis-
son, fyrirliði FH. „Menn voru
greinilega ekki tilbúnir enda voru
þeir alltaf skrefinu á eftir, sér-
staklega í vörninni. Sóknarleikur-
inn byrjaði ágætlega en það dugði
hvort eð er ekkert til. Þetta var
einfaldlega mjög lélegt.“
Halldór Ingólfsson, þjálfari
Gróttu, var vitanlega mjög sáttur.
„Ég veit ekki hvort lið eru að van-
meta okkur en ef þau gera það þá
er það gott fyrir okkur. Við vorum
staðráðnir í að grípa þá í bólinu
ef þeir væru ekki tilbúnir sem
við gerðum mjög vel. Menn lögðu
sig mikið fram og uppskáru sam-
kvæmt því.“ eirikur@frettabladid.is
Gallharðir Gróttumenn
Grótta vann í gærkvöldi glæsilegan útisigur á FH í N1-deild karla, 38-32. FH-
ingar voru langt frá sínu besta sem gestirnir færðu sér óspart í nyt.
HARÐFYLGI Halldór Ingólfsson, spilandi þjálfari Gróttu, gefur ekkert eftir í baráttunni
við varnarmenn FH. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FH-GRÓTTA 32-38 (16-16)
Mörk FH (skot): Bjarni Fritzson 7/1
(12/2), Benedikt Kristinsson 5 (6),
Ólafur Gústafsson 4 (11), Jón Heiðar
Gunnarsson 3 (3), Sigurgeir Árni
Ægisson 3 (3), Örn Ingi Bjarkason 3
(4), Ásbjörn Friðriksson 3 (6), Ólafur
A. Guðmundsson 2 (6), Guðmundur
Pedersen 1 (2), Ari Magnús Þorgeirs-
son 1 (3).
Varin skot: Pálmar Pétursson 13
(40/4, 33%), Daníel Freyr Andrésson
5 (16, 31%).
Mörk Gróttu (skot): Finnur Ingi Stef-
ánsson 8 (10), Anton Rúnarsson
7 (12), Jón Karl Björnsson 7/4 (11/4),
Atli Rúnar Steinþórsson 6 (7), Hjalti
Þór Pálmason 4 (10), Halldór Ingólfs-
son 3 (5), Arnar Freyr Theodórsson
2 (4), Júlíus Stefánsson 1 (1), Ægir
Hrafn Jónsson (1).
Varin skot: Gísli Rúnar Guðmunds-
son 14/1 (42/2, 33%), Einar Rafn
Ingimarsson 1 (5, 20%).
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar eru einir
á toppnum með fullt hús stiga eftir
leiki gærkvöldsins í Iceland
Express-deild karla í körfu-
bolta. Njarðvík vann 89-100
sigur gegn Hamri og
hefur unnið alla
sex leiki sína til
þessa. Stjarnan
tapaði sínum fyrsta
leik í deildinni þegar
Tindastóll kom í heim-
sókn en lokatölur urðu
93-95.
Leikur Stjörnunnar og
Tindastóls var í járnum lengi vel
en gestirnir í Tindastóli leiddu
leikinn 35-38 í hálfleik og 60-68
fyrir lokaleikhlutann. Stjörnu-
menn gerðu heiðarlega tilraun til
þess að stela sigrinum á lokakafl-
anum þar sem Justin Shouse
fór mikinn en allt kom
fyrir ekki og niðurstaðan
var 93-95 sigur gestanna.
Amani Bin Daanish var
stigahæstur hjá Stólunum
með með 26 stig og 12 frá köst
en Shouse var atkvæða-
mestur hjá Stjörnunni
með 38 stig og 11 stoð-
sendingar.
Hamar átti í
fullu tré við Njarðvík lengi vel og
leiddi í hálfleik, 50-45, en gestirnir
tóku svo til sinna ráða í þriðja leik-
hluta og fóru með sex stiga forskot
inn í lokaleikhlutann. Njarðvíking-
ar héldu haus í fjórða leikhlutan-
um og unnu að lokum góðan 89-100
sigur. Magnús Þór Gunnarsson var
atkvæðamestur hjá Njarðvík með
32 stig og 7 stoðsendingar.
Þá fengu Grindvíkingar heldur
betur uppreisn æru í kvöld þegar
þeir unnu 72-104 stórsigur gegn
Blikum en Suðurnesjaliðið hafði
átt erfitt uppdráttar til þessa í
vetur. Nýi leikmaðurinn Darrell
Flake var stigahæstur hjá Grinda-
vík með 21 stig. - óþ
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta í gærkvöldi:
Fyrsta tap Stjörnunnar í deild
TAP Stórleikur Justins Shouse
dugði Stjörnunni ekki til sigurs.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Helgarblaðið:
Heimili og hönnun:
Menning:
Kolbrún Halldórsdóttir í helgar-
viðtali.
Beinta Maria Didriksen og Levi
Didriksen: Levi níu ára er stoð
og stytta tvíburasystur sinnar
sem er með sjúkdóm sem
aðeins fimm manns í heiminum
þjást af.
Íslensk hönnun eins og hún
gerist best. Húsgögn, arkitek-
túr og vöruhönnun í Listasafni
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.
Þrjár óperufrumsýningar í maí.
Mest seldu bókmenntaverk
Evrópu í fyrra.
Íslenska ímyndin á viðreisnar-
árunum.
Allt um Listahátíðina.