Fréttablaðið - 13.11.2009, Page 79
SAGA OG SAMFÉLAG
Ein besta sagnfræði sem völ er á. Í bókinni fylgist
maður með því hvernig rómantískur maður verður
valdagræðginni að bráð. Nauðsynleg lesning til að
hægt sé að varast einstaklinga af þessu tagi.
– Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur
Ævisaga eins og þær gerast bestar. Spenna og fræði fléttast
saman svo úr verður meistaraverk. Nánast glæpsamlegt
að svo góð bók sé skrifuð um svo vondan mann.
– Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur
Grípandi lesning ... sem dregur upp ógleymanlega
mynd af einu helsta skrímsli 20. aldar.
– Antony Beevor, The Daily Telegraph
Stalín er eins og Hitler persónugervingur hins illa en
jafnframt einn af þeim sem mótuðu heiminn eins og
hann er í dag. Í þessari spennuþrungnu ævisögu sviptir
Simon Sebag Montefiore hulunni af ævintýralegum ferli
skósmiðssonarins frá Georgíu.
Stalín ungi er byggð á umfangsmiklum rannsóknum á
ótrúlegum og áður óþekktum heimildum í skjalasöfnum
frá Moskvu til Georgíu. Stalín ungi er forsaga metsölu- og
verðlaunabókarinnar Stalin: The Court of the Red Tsar. Bókin er
króníka byltingarinnar, forsaga Sovétríkjanna og nærgöngul
ævisaga sem fjallar um hvernig Stalín varð Stalín.
SLENSKIR NASISTAR
Heimsstyrjöldin síðari skóp mörgum manninum
einleg örlög. Svo var um Íslendinga þá, sem segir
frá í þessari bók. Annars vegar voru menn, sem
aðhylltust hugmyndafræði nasismans og
ngu til liðs við Þjóðverja í heimsstyrjöldinni síðari,e
g hins vegar fórnarlömb þýskra nasista sem urðu
að gjalda fyrir samband sitt við þá með lífinu.
Þessi nýja útgáfa bókarinnar er mikið
endurskoðuð og í henni birtast miklar
upplýsingar sem sem nýlega hafa orðið
aðgengilegar í skjalasöfnum.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is