Vikan


Vikan - 15.12.1955, Síða 29

Vikan - 15.12.1955, Síða 29
„Þetta er pottþétt, þó ég seg'i sjálfur frá.“ „Og hvað eiga verðirnir að gera, þegar þeir uppgötva, að Repola er horfinn? Og eftir á að hyggja: Hvar á herra Repola að dveljast ?“ „Hér inni auðvitað.“ „Og þegar gangavörðurinn sér kvenmanninn í klefanum, hvað á hann þá að gera? Bjóða henni gleðileg jól?“ ,,En þú veist ósköp vel, læknir góður, að hann er harðánægður, ef liann sér tvo fanga í klefanum. Það er ekki beinlínis bjart í þessum skápum ykkar, eins og þú veist. Pat litla er Repola, skilurðu!“ Eg reyndi enn: „Og þegar Repola — það er að segja frú Warren — mætir í matsalnum á jóladagsmorgun . . . Þú ætlast vonandi ekki til þess, að hún láti senda sér morgunverðinn upp í koju, eða er það?“ „Læknir, þetta er eintóm þrjózka í þér! Auðvitað verður hún að fara niður i matsal. En ertu vanur þvi, að verðirnir í þessu pakkhúsi gægist undir húfurnár okkar til þess að dást að fegurð okkar? Ónei, drengur minn! Ef engar eru eyðurnar, þá eru þeir ánægðir." Ég kveikti í sígarettu og horfði út um gluggann. Ég gat ekki gleymt andlitinu á Arthur Warren. Svo dæsti ég: „Og hvenær á þessum skrípa- leik að ljúka?“ „Á annan jóladag, þegar konurnar koma aftur. Fyrr er það ekki hægt.“ Ég sneri mér hægt við og marði sundur sigarettuna í öskubakkanum: ,,Ég þarf fyrst að tala við Pat Warren." Ójú, mikil ósköp, hún vissi um þetta allt! „Það kom til min maður,“ sagði hún. „Þér skiljið, læknir.“ Ég kinkaði kolli; Mike hafði sin sambönd. „Þetta er mjög hættulegt,“ sagði ég vandræðalega. „Þér skiljið, það er ekki nóg með að þetta sé talsvert hættulegt fyrir mig . . . fyrir . . Og þegar ég sá svipinn á andliti hennar: „Ekki svo að skilja, að það skipti öllu máli.“ „Er hann mikið veikur?“ „Já. Já, hann er óneitanlega mikið veikur. Hann virðist alveg vera búinn að leggja árar í bát.“ „Ég verð að komast til hans! Hann þarfnast mín!“ Augu hennar voru kúffull af tárum. „En þetta er alls ekki hættulaust fyrir yður. Þetta er . . . ja, þetta ei' víst hálfgert innbrot. Þér gætuð lent i vandræðum, jafnvel komist undir mannahendur, fengið dóm eða hver veit hvað.“ „Það skiptir ekki máli! Ó, Guð minn góður, það skiptir ekki máli! Auk þess segir þessi Mike . . . Maðurinn sagði, að það væri hreint ekkert að óttast. Hann sagði að þér . . .“ Hún beygði höfuðið og lauk við setn- inguna í hálfum hljóðum: „Að þér vilduð hjálpa manninum mínum." Ég þagði. Ég vissi ekki, hvað ég átti að segja. Loks spurði ég: „Vitið þér nákvæmlega, hvernig þetta er hugsað ?“ „Já, ég á að koma í heimsóknartímanum á aðfangadag. Ég á að halda mig aftast í hópnum. Um fjörutíu metra frá hliðinu eru dyr, sem á stendur: Föngum bannaður aðgangur. Þegar ég er komin á móts við þær . . .“ „Já.“ Ég kinkaði kolli. „En treystið þér yður til að leika hlutverk yðar eftir að . . . inn er komið. Ég vil minna yður á, að fangelsi er býsna óhugnarlegur staðui'. Fangelsi . . . það er eins og það þrýsti að manni úr öllum áttum. Og þarna eru fjórtán hundruð menn, fjórtán hundruð skapbráðir, ofsafengnir menn, og . . . og þér verðið að dvelja þama inni tvær nætur . . . Ég verð hvergi nærri. Og Mike . . . Þegar búið er að læsa hann inni í klefanum sínum, getur hann ekkert gert fyrir yður, hreint ekkert skiljið þér.“ „Ég er ekkert hrædd.“ Ég stóð á fætur: „Jæja, frú Warren, en þér verðið að muna, að ég hlýt að visa frá mér allri ábyrgð.“ Hún fylgdi mér fram í ganginn og greip svo fast í hendina á mér, að mig kenndi til: „Þér gerið hvað þér getið fyrir hann, læknir.“ „Þér megið treysta þvi. Og á meðan ég man: Þér verðið að hreinsa af yður naglalakkið mjög vandlega. Ég þarf annars ekki að taka það fram; þér vitið það eins vel og ég. Svo er það annað. Ég held þér verðið . . . þér verðið . . .“ Hún brosti: „Hafið engar áhyggjur af því, læknir. Hárið skal ekki koma upp um mig.“ Hún stóð í dyrunum og horfði á eftir mér, þegai' ég gekk niðui' götuna. Ég fann hvernig augu hennar eltu mig. Þegar ég kom að horninu, lyfti hún hendinni í kveðjuskyni. Þessi aðfangadagur var lengi að líða. Ég stóð við gluggann í skrif- stofunni og keðjureykti. Klukkan þrjú komu konurnar inn um hliðið. Pat Warren gekk aftast i hópniun. Hún var í brúnni regnkápu og með klút á höfðinu. Hún gekk hiklaust upp stíginn og hvarf fyrir húshornið. Andar- taki síðar heyrðist mikið háreysti; fangarnir. sem höfðu staðið skammt frá hliðinu, voru komnir í hörkuslagsmál, og verðir þustu að úr öllum áttum til þess að skakka leikinn. Svo heyrðist fótatak i ganginum og dyrunum var hrundið upp og Mike birtist slcælbrosandi í gættinni. Pat var fyrir aftan hann. Mike skaut henni innfyrir, benti á skjalaskápinn og sagði: „Fötin. Þau eru þarna fyrir aftan.“ ,,Auðvitað,“ muldraði ég. „Þú sérð fyrir öllu.“ Mike hló glettnislega framan i Pat: „Sjá.umst seinna.‘-‘ sagði hann og fór. Ég leit á úrið mitt. Klukkan var sjö mínútur yfir þrjú. Framhald á blaðsíðu 38. eftir D. C. Peattie. SKÆRASTA stjarnan, sem nokkru sinni hefur skinið, var jóla- stjarnan. Hún skein skærar en Jupiter, Venus eða Sírius. Þessi bjartasta stjarna allra stjama hefur orkað á ímyndunar- afl manna í nærri tvö þúsund ár. Það er því ekki að undra, þó að stjörnufræðingamir hafl verið spurðir um það, öldum saman, hvaða óvenjulegir fyrirburðir í gangi himintunglanna hafi verið hér á seiði. Var þetta samruni margra reikistjama, s%m bar svona undursamlega birtu? Var það lialastjarna á sinni ákveðnu leið um geyminn ? Var það loftsteinn? Var það svipleiftur? Eins og við vitum geta stjörnufræðingamir sagt fyrir um myrkva sólar og tungls, hvenær halastjöraur birtast, um sam- mna reikistjama, nákvæmlega upp á dag, stund og mínútu, jafn- vel hundruð ára fram i tíniann. Eins geta þeir sagt okkur frá því, þegar slik náttúrufyrirbrigði gerðust á liðnum tímum. Þess- vegna er líka jafn auðvelt fyrir þá, að fara svo langt aftur í tímann, að þeir geti virt fyrir sér hvelfingu næturhiminsins, 25. desember fyrir eitt þúsund níu himdmð fimmtiu og fimm árum. Þetta geta stjörnufræðingarnir gert, en sagnfræðingarnir geta ekki upplýst þá um það, hvaða dag Kristur hafi raunvemlega fæðst. Samkvæmt frásögn Lúkasarguðspjalls var Jesús „hér um bil þrítugur, þegar liann byrjaði.“ Þetta var á fimmtánda stjómar- ári Tiberiusar, keisara í Rómaborg, en hann kom til rikis árið 14 e. Kr. Þegar sagt er „hér um bil“, þá getur það oltið á nokkr- um ámm, til eða frá, um fæðlngu Jesú. En Lúkas segir okkur líka, að þegar Jesús fæddist, liafi þau Jósef og María verið á ferð í Betlehem, vegna hins mikla manntals, er Agiistus keisari lét taka, vegna almennrar skattgreiðslu í rikinu. Af rómverskum annálum er hægt að sjá, hvenær þetta gerðist, með sagnfræði- legri vissu. Hið kristna timatal, sem miðar allt við Krists burð, varð ekki til fyrr en fimm hundruð árum eftir hans dag. Óná- kvæmni gat því auðveldlega átt sér stað. Það er því möguleiki, að Kristur sé raunverulega fæddur árið 8 f. Kr. En hvað sjá nú stjömufræðingarnir á himninum á því ári, eða á næstu árum á undan og eftir? Hin fræga og bjarta Halleys halastjarna er talin að hafa sézt árið 11 f. Krist, en smærri hala- stjarna á að hafa sézt árið 4 f. Kr. En hinn mikli seytjándu ald- ar stjörnufræðingur, Kepler, kom fram með aðra skýringu. Hann reiknaði út, að reikistjörnurnar Marz, Jupiter og Saturnus koma í Ijós samtímis, eins og ein óvenjulega skær stjama, átta hundmð pg fimmta hvert ár. Og hann reiltnaði út, að þessi samruni stjarn- anna hefði átt að eiga sér stað árið 6 f. Kr. Þannig virðist þá hafa fengizt vísindaleg skýring á sjálfri jóla- stjörnunni, — skýring, sem gerir hana næstum að engu. I fljótu bragði kann svo að virðast, að nokkrum fölva slái á stjörnuna i liinni köldu birtu af skynliyggju vorra tíma. Eg, sem sjálfur er stjömufræðingur að menntun, tel að jóla- stjarnan missi gildi sitt með því að leita til stjörnufræðinnar um skýringar. Því að þessir atburðir í gangi himintunglanna, sem reikna má út og lýsa af slíkri nákvæmni, hefðu átt sér stað, jafnvel þó að Jesús hefði aldrei fæðzt. EN til þess að finna hina guðdómlegu stjörnu mitt á meðal hinna glitrandi eldhnatta liimingcimsins, skuluin við fara aft- ur til guðspjallsins, þar sem segir frá komu vitringanna frá Austur- löndum til Jerúsalem. „Hvar er hinn nýfæddi Gyðingakonugur ? Því að vér höfum séð stjörnu lians austur frá og eru komnir til þess að veita lion- um lotningu .......“ „Þá kallaði Heródes vitringana til sin á laun og fékk hjá þeim glögga grein á því, live lengi stjarnan hefði sézt ......“ „En er þéir liöfðu hlýtt á konunginn, fóru þeir leiðar sinnar. Og sjá, stjarnan, sem þeir höfðu séð austur frá, fór fyrir þeim, þar til hún staðnæmdist þar yfir sem barnið var ..........“ Hvaða stjarna er þá Jietta, sem aðeins vitringar geta séð, og staðnæmist og skín svo bjart á þeim stað, {>ar sem blessunar- ríltasti atburður veraldarsögunnar var að gerast? Hér er ekkert minna en kraftaverk. Og ef þú vilt ekki trúa kraftaverkinu bókstaflega, þá láttu stjörnuna vera tákn hins mikla ljóss, sem birtist á Iiimni mannlífsins, með fæðingu hins kristna kærleika, liinnar kristnu samúðar, hins kristna hugrekkis. Þetta er sú stjarna, sem við getum öll tendrað i hjörtum okkar um jólin og liún verður iijartasta leiðárljósið um skuggadali jarðlifsins. 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.