Vikan - 15.12.1955, Blaðsíða 30
WISKÆTÆ
eftir Hallgrím Pétursson,
sneð nútímamyndskreytingu
Afbragðsmatur er ýsan feit
ef hún er bæði fersk og heit,
soðin i sjóarblandi.
Líka prísa ég lúðutraf.
Lax og silungur bera þó af
hverskyns fisk hér á landi.
Langan svangan
magann seður,
soltinn gleður.
Satt ég greini.
IJldin skata er iðra reynir.
]Vlorkinn hákarl, sem matar hníf,
margra gerir að krenkja líf.
Ríkismenn oft það reyna.
Um háfinn hugsa húskar meir.
Hann í eldinum steikja þeir.
Brjósk er í staðinn beina.
Hlýrinn rýri,
halda menn
af honum renni
hræðileg feiti.
En rauðmagi er bezti rétturinn heiti.
Karfinn feitur ber fínan smekk.
Fáum er spáný keilan þekk.
Upsinn er alls á milli.
Þorskurinn, sem í þaranum þrífst,
þrefaldur út úr roðinu rífst.
Frá ég hann margan fylli.
Þorskinn, roskinn,
rifinn, harðan,
rétt óbarðan
ráð er bezta
að bleyta í sýru á borð fyrir presta.
Myndirnar eru teknar í fiskverkunarstöð Bæjar-
útgerðar Reykjavíkur — og kynni sálmur séra
Hallgríms að hafa orðið nokkuð á aðra lund, ef
hann hefði mátt kynnast vinnubrögðum þar.
Stefán Nikulásson tók myndirnar.
30