Vikan - 10.12.1959, Page 4
I. verðlaun
I kassi af úrvalseplum frá
SILLA & VALDA
2. verðlaun
Skór á dömu eða herra frá
SKÓBÚÐ REYKJAVIKUR
*
Klippið miðann út og sendið, merkt
pósthólf 149.
Nöfnin eru, talið frá vinstri:
1..................................
4.
5.
6.
7.
8.
10.
11.
12.
13.
Ný verðlaunakeppni
Fern góð verðlaun
Hyað er að sjá, — 13 jólasveinar í halarófu og Grýla gamla f broddi fylkingar? Jú, þeir munu
víst vera á ferli um þessar mundir, blessaðir, Gliggagægir, Hurðaskellir, Faldafeikir, Giljagaur,
Stekkjastaur, Kertasníkir, Pottasleikir og Ketkrókur og hvað þeir nú heita allir saman. En hvað
er að tarna? Eru þessi andlit ekki kunnugleg? Það skyldi nú ekki vera, að þið hefðuð séð þau
á sviði í Þjóðleikhúsinu? Jú, við skulum slá því föstu, — þetta eru allt saman kunnir leikarar.
Þeir hafa bara fklæðzt jólasveinagervi, og þrautin er í því fólgin að þekkja andlitin. Þið skuluð
skrifa nöfnin á þeim á listann hér til vinstri og klippa út eða búa til nýja lista, ef þið viljið ekki
skemma blaðið. Þið skuluð telja frá vinstri, og lausnir verða að hafa borizt Vikunni fyrir 20. des-
ember. Þá verður dregið úr réttum lausnum, og fjórir hljóta vinningana, sem eru:
1. Eplakassi frá Silla & Valda.
2. Skór á karl eða konu frá Skóbúð Reykjavíkur í Aðalstræti.
3. Sjálfsævisaga Kristmanns, ísold hin svarta. B ikfellsútgáfan gefur út.
4. Kassi með þremur skemmtilegum spilum til dægradvalar frá Verzlunarfél. Festi.
Hér er til nokkurs að keppa, jólagjöfin upp í hendurnar rétt fyrir jólin. Jafnt fyrir unga sem
gamla, karla sem konur. Ef verðlaunin lenda úti á landsbyggðinni, getum við að vísu ekki ábyrgzt,
að þau komist í tæka tíð fyrir jól, þar sem samgöngur eru oft stopular. En þá koma þau alla vega
fyrir nýárið.
#
lll ||| ,i{ ■f
f