Vikan - 10.12.1959, Blaðsíða 25
sem stundum nálgaðist t>að, að hún væri gersam-
lega heilluð.
t>ar sem ég var yngsti gesturinn, var ég að sjálf-
sðgðu langt frá henni við borðið, meðan á mál-
tiðmni stóð, en ég fann undarlegt augnatillit hvila
á mér, og þegar kaffið var borið fram, settist
hún við hlið mér í setustoíunni.
Síðar vorum við vön að kalla þetta kvöld
„spurningakvöldið", því að hún spurði mig í þaula
í heila klukkustund, oft nærgöngulla spurninga,
sem ég reyndi að svara, þótt ekki reyndist alltaf
auðvelt.
Andrieu hafði tilhneigingu til að koma fram
við hana eins og barn, sem of mikið hafði
verið látið eftir, fremur en konu sina eða ástmær.
Af nokkrum orðum og setningum, sem hún lét
sér um munn fara, gat ég ráðið, að hún fengi
ekki þá kynferðislegu fulinægju, sem hún hefði
þörf fyrir. '
Leitaði hún hennar hjá öðrum mönnum? Grun-
aði Andrieu hana um græsku?
Ég hef heyrt Philippe nokkurn Savard nefnd-
an — ungan mann, sem um eltt skeið var tiður
gestur hei . a hjá Andrieu, en skyndilega hætti
að koma Þangað. Viviane hafði umgengizt hesta
mikið á bernslruheimili sínu, og um þetta leyti
reið hún út á hverjum morgni, og lagði þá leið
sína inn i Savardskóginn. Ungi maðurinn fylgdi
henni einnig oft í leikhúsið þau kvöld, sem
Andrieu gat ekki farið.
Eftir þetta fyrsta kvöldverðarboð hittumst við
oftar, en kynni okkar voru algerlega saklaus. Með
samþykki manns síns, notaði Viviane mig, sem
yngsta manninn í fyrirtækinu, til að gegna ýms-
um einkaerindum fyrir sig, smávægilegum sam-
kvæmissliyldum, sem alltaf veittu mér aðgang að
herbergjum hennar.
Leikhúsið átti líka sinn þátt í að færa okkur
nær hvort öðru, eða öllu heldur eitt sérstakt
kvöld i leikhúsinu, þegar Andrieu hafði þurft
að vera viðstaddur opinbera móttöku. Ég býst
við, að það hafi verið að undirlagi Viviane, sem
hann bað mig um að fara með henni í leikhúsið.
Var hún Þá þegar farin að gefa mér nánar
gætur? Hafði henni komið til hugar, að láta mig
að einhverju leyti sjá um það hlutverk, sem henni
fannst ábótavant hjá eiginmanninum?
Mér kom þetta ekki einu sinni til hugar þá. Ég
var steini lostinn og átti erfitt með að venja mig
við tilhugsunina að draumar mínir ættu eftir að
rætast. 1 heila viku var ég meira að segja al-
varlega að hugsa um að segja upp á skrifstof-
unni, og hverfa eitthvað burt, til þess að komast
hjá of miklum vonbrigðum.
Ferðalag, sem hann fór til Montreal, þar sem
hann hafði verið kjörinn heiðursdoktor, flýtti við-
burðarúsinni. Hann var fjarverandi tvo mánuði,
í stað þriggja vikna, eins og upphaflega hafði ver-
ið gert r.'ð fyrri, og stafaði seinkunin af slæmu
bronkítis, sem hann fékk i förinni. Ég vissi ekki,
að hann hafði sem ungur maður dvalið þrjú ár
uppi í fjöllunum, þar sem sonur hans var nú.
Viviane bað mig mörgum sinnum að koma með
sér út á kvöldin. Við fórum ekki aðeins í leik-
húsið, sem hún hafði mikla ánægju af, heldur til
kvöldverðar á næturklúbba. Hún hafði sent
bifreiðina sína heim, og það var i leigubifreið, sem
ég hæ.tti öllu og beygði mig yfir hana.
Tveim dögum seinna, þegar þjónusutstúlkan
hennar átti frí, var ég kallaður á hennar fund.
Siðan, þegar Andrieu kom heim, neyddumst vlð
til að hittast i gistihúsi. Ég skammaðist min fyrir
það í fyrstu.
Komst hann að hinu sanna? Eða vissi hann
ekkert til þess dags, þegar hún ákvað að segja
honum allt af létta?
Ég, sem krefst skilyrðislaust nákvæmra stað-
reynda af skjólstæðingum mínum, á nokkuð erf-
itt meo að gefa þær í mínu eigin máli. Árum
saman var ég sannfærður um, að Andrieu hafi
alls ekkert vitað um þetta. Seinna var ég ekki
viss. Síðustu mánuðina hef óg verið að komast
á þá skoðun, að hann hafi vitað allt.
En mig grunaði ekkert þá, og ég hefði áreið-
anlega gert gys að hverjum þeim, sem hefði
ymprað á þvi, að Andrieu vissi um samband
okkar.
Daginn, sem Viviane hafði ákveðið að segja
honum allt, fékk ég honum uppsögn mina, og
undraðist hvernig hann tók henni, hryggur og
hljóður.
Framhald á bls. 35.
— og ég hef til
að bera viljakraft
og lífsorku, sem ég ber
uían á mér, ef svo mætti
oroa það. Þetta er ein mín
sterkasta hlið fyrir réttinum
Aðalpersónur sögunnar:
Gobillot lögmaður
Yvette — hjákona lögmannsins
Viviane — eiginkona lögmannsins
Mazetti — elskhugi Yvette
VIKAN
25