Vikan - 10.12.1959, Qupperneq 35
JOLAGJAFIR
Til jólagjafa
Iíven- og karlmannsúr, stofu-
kluklcur, eldhúsklukkur, velcjara-
klukkur, skákklukkur.
Nivada
Tissot
Roamer
Alpina
Terval
Kienzle
Junghans
Mauthe
Smiths
Úrval af gjafavörum|
hentugum til jólagjafa
ÚRVIDGER6IR
fljótt og vel af liendi leystar
Póstsendum um allt land
Magnús E. Baldvinsson
úra og skartgripaverzlun
Laugavegi 12 - Sími 2 28 04
—sa
'Oerndið heimiliy<kr....
Farið varlega með eldinn. Jólatrén eru bráðeldfim. Ef
kviknar'í jólatré, þá kæfið eldinn með því að breiða yfir
hann. Setjið ekki kertaljós í glugga eða aðra staði, þar
sem kviknað getur í gluggatjöldum eða fötum.
Qleðileg fól,
Jarsœlí komandi ár.
BRUNABÓTAFELAG ÍSLANDS
Skrifstofur: Laugavegi 105.
Símar: 14915, 16 og 17.
HJÁKONA LÖGMANNSINS.
Framhald af bls. 25.
— Ég óska þér þeirrar vtlgengni, sem þú átt
skilið, sagði hann og rétti mér langa, vel hirta
höndina.
Þetta var aðeins fáum klukkustundum fyrir
játninguna.
Ég beið orðsendingarinnar frá Viviane í tvær
langar vikur. Hún hafði lofað að hringja heim
til mín strax og hún hefði rætt við hann. Hún
var búin að pakka saman eigum sínum. Ég líka.
Við ætluðum að fá okkur herbergi á hóteli þar
til við fengjum íbúð, og ég hafði þegar fengið
vinnu hjá lögfræðingi nokkrum, sem löngu síðar
hlaut illan endi lífdaga.
Ég þorði ekki að hringja til hennar daginn
eftir, en sagði Pauline hvað gera skyldi, ef hún
hringdi í mig, og fór sjáifur til að standa vakt
fyrir framan húsið hennar.
Það var ekki fyrr en þrem dögum seinna, að
ég komst að því hjá föður mínum, að Andrieu
hefði fengið slæmt kast, og verið í rúminu nokkra
daga. Hvað það snertir, er ég enn sömu skoðunar
og ég var fyrir tuttugu árum. Ég held, að þegar
kona er orðin höfuðástæða lifsins hjá karlmanni,
sé hann líklegur til alls, til þess eins að halda
henni, hugleysis, skítmennsku, grimmdar, eða
hvers sem vera skal.
Loksins fékk ég bréfmiða:
„Ég verð á Grand, Augustin bryggjunni á
fimmtudagsmorgun klukkan tíu“.
Hún kom þangað klukkan hálftvö með föggur
sínar í leigubíl. þótt Andrieu hafi krafizt þess, að
hún tæki bifreiðina þeirra.
Fyrstu dagarnir okkar voru gleðisnauðir, en
Viviane náði sér fyrst, og var fundvís á ánægju-
aukana í hinu nýja lífi sínu.
Það var líka hún, sem fann okkur íbúð, og
sem gróf upp meðal fyrra kunningjafólks síns,
fyrsta skjólstæðing minn.
— Þú munt sjá það seinna, þegar þú ert orð-
inn efnilegasti lögfræðingurinn í París, hve hlý-
lega við hugsum til þessarar íbúðar, sagði hún.
Andrieu hafði krafizt þess, að hún skildi við
hann á þeim forsendum, að hann hefði brotið
af sér í hjónabandinu. Vikur liðu án þess að við
fréttum nokkuð af skilnaðarmálinu, en einn
morgunn í marz birtu blöðin fregnina:
„Andrieu lögmaöur varö fyrir slysi í fjall-
göngu.“
Það var tekið fram, að hann hefði farið að
heimsækja son sinn á heilsuhælið og notað taeki-
færið til að fara í fjallgöngu. Þar hafði hann
hrapað, og líkið fannst ekki fyrr en eftir tvo
daga. Framliald í nœsta blaöi.
VIKAN
35