Vikan


Vikan - 25.02.1960, Blaðsíða 3

Vikan - 25.02.1960, Blaðsíða 3
er niður i pósthús þaBan sem ég vinn, þá spurði ég símastúlku fyrirtækisins hvort ég mætti ekki leggja íjréfin í póstkassa, sem er hérna rétt hjá. En hún varð þá bara þetta litla reið, hopp- aði eina þrjá metra i loft upp og öskraði síðan i eyra mér, þegar liún kom niður aftur, að það væri vitatilgangslaust að leggja bréf i þessa póstkassa, svo sem hún ákvað, þau kæmust aldrei til skila — og svo kom þriggja stundar- fjórðunga buna, hvar með flutu að minnsta kosti seytján dæmisögur fullyrðingunni til sönnunar, ásamt ýmsu öðru. Og nú langar mig, kæra Vika, að spyrja þig hvort þessir póstkassar eigi að vera manni bara til punts og augnayndis á leiðinni til póst- hússins? Einn með hlaupasting. Hvaða vitleysa. Póstkassarnir eru tæmdir reglulega, og frímerkt bréf, sem í þá eru lögð, komast til skila ekki síður en þau, sem afhent eru í pósthúsinu — enda finnst mér, satí bezt að segja — harla lítið punt í þeim. Þetta stafar því annaðhvort af einhverjum misskilningi hjá símastúlkunni, eða þá að samkomulagið ykkar á milli er ekki sem bezt, hvoru ykkar sem er svo um að kenna, eða kannski báðum. Reyndu að fara skikk- anlega að henni, lagsmaður, og hver veit nema það geti orðið til þess að hún láti póstkassana njóta sannmælis — og þig þá um leið þeirra þæginda, sem þeir hafa að bjóða svo að þú losnir við hlaupastinginn. ERU KONUR FÓTLEGGJAHEITARI EN KARLAR? Kæra Vika. Mig langar til að spyrja þig hvort visindin telja konur heitfengari á fótleggjum en karl- menn, eða, ef svo er ekki, hvort islenzkar — og þá fyrst og fremst reykvískar — séu eitt- hvert sérstakt náttúruundur neðan hnés? Ég •þykist nefnilega vera sæmilega hraustur og heitfengur karlmaður, ég er þar að auki sjó- maður, svo ég ætti að vera vanur nepjunni, en fari það grábölvað, ef ég treysti mér til að leika það eftir reykvísku kvenfólki, að ganga með bera fótleggina eða svo til, úti í hörkufrosti og livaða veðri sem er. Og ég hef oft verið hissa á þvi, að sjá þær i loðfeldi eða þrælfóðraðri kuldaúlpu upp fyrir haus og með svona rúmlega öklaháar og fóðraðar „bomsur“ á fótunum, en svo i næfurþunnum nælonsokkum einum til skjóls þar á milli. Það þyrfti ekki að bjóða mér það — og þess vegna spyr ég. Hvers vegna þurfa þær ekkert til skjóls frá ökla upp að hné, þótt þær séu þrældúðaðar að öðru leyti? Með fyrirfram þökk. Sjóari. Ég get ekki svarað þessu, enda mun engin rannsókn hafa verið gerð á þessu fyrirbæri. Ætli tízkan og vaninn eigi ekki sinn þátt í þessu — og hver er kominn til að segja um það, hvort þær þola þetta, enda þótt þær láti sig hafa það. Við skulum spyrja þær sjálfar — orðið er laust. NAGAR HÚN Á SÉR NEGLURNAR ... Iværa Vika. Hvað á ég til bragðs að taka svo ég losni við þann ósið að naga á mér neglurnar? Ég er kominn á seytjánda ár, og mér leiðist þetta meir en nokkur orð fá lýst. Stelpur, sem ég held hópinn með, hlæja að mér, sem vonlegt cr, og stríða mér, og ég reyni eins og ég mögu- lega get að venja mig af þessu, en allt reynist þýðingarlaust. Ilvað ráðleggur þú? Get ég leit- að til læknis út af svona hégóma? Brigitte. Já, það geturðu, og það er eina ráðið. Við getum að minnsta kosti ekki ráðlagt þér annað, og það er alls ekki neinn hégómi, því að það, sem veldur þessu, sem þú kallar ósið, getur átt sér dýpri rætur en þig grun- ar. Leitaðu læknis og það heldur fyrr en seinna. ¥ I K AN Útgefandi: VIKAN H.F. Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.) Auglýsingastjóri: Ásbjörn Magnússson F ramk væmdast jóri: Ililmar A. Kristjánsson Verð i lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr. 216.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholti 33. Simar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing: Blaðadrcifing, Miklubraut 15, simi 15017 Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Myndamót h.f. J — Vinnukonan er alveg einstök hér á heimilinu. — — hún gerir bókslaflega alla hluti —• Segðu nú það sem þú sagðir um mig í uær — svo konan mín heyri. — — Seinna, Jói — ég er svo upp tekin núna i augnablikinu. — Þið fáið Vikuna í hverri viku. I næsta blaði Ycrður mcðal annars: 4 Stórkostleg verðlaunakeppni og skoðanakönnun. Verðlaunin: Kóngur — eða drottning einn tag. 4 Clark Gable. 4 Afreksmaðurinn Espólín. 4 Gólfteppi úr íslenzkri ull. 4 Að námið verði skemmtilegt starf. 4 Lifrautt blóðið seitlar — rætt við hvassorðan sjoppueiganda um bókmenntir. 4 Spillum við börnunum með dekri? 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.