Vikan


Vikan - 25.02.1960, Blaðsíða 25

Vikan - 25.02.1960, Blaðsíða 25
GRAND HÓTEL IN frægasta mynd Grétu Garbo var Grand Hotel, sem Metro-kvikmyndafélagið gerði ár- ið 1932, en af öðrum kunnum leikurum i myndinni má nefna Joan Grawford, Wallace Beery og Jean Hersholt. Nú hefur ])ýzkt kvikmyndafélag framleitl nýja útgáfu af þessari mynd, og að því er sagt er, mun árangurinn fara fram úr djörfustu von- um. í niörgum þýzkum borgum hefur myndin hrund- ið öllum metum síðari ára i aðsókn. Grand Hotel er I.yggð á skáldsögu Vicki Baum, en hún fjallar um örlög margra persóna, sem af tilviljun verða á vegi liver annarrar. Við kynnumst rússnesku dansmeyj- unni Grusinskaju, hinum glæsilega hótelþjóf barón von Gaigern, iðnjöfrinum Preysing, aðalbókhaldar- anum Kringelein og hinni fallegu skrifstofustúlku gistihússins, Lille Flarnrn. Allar eiga sinn drjúga þátl í að spinna örlagavefinn, — en sagan gerist öll á einum sólarhring á hinu glæsilega hóteli. Gottfried Beinhardt, sonur hins kunna leikhússmanns Max Reinhardts, hefur setl myndina á svið, en Ijósmynd- ari er Svíinn Göran Strindberg. UEIUM PACÍEI I þýzkri kvikmi'mi Það er ekki óalgengt, að þeir í Hollywood flytji til sín þekkta leikara frá Evrópu, en að bandarísk stjarna sé ráðin til að leika í þýzkri mynd, — það verður að teljast til nokkurra tíðinda. Stjarnan, sem hér um ræðir, er hin fagra Debra Paget, sein m. a. hefur nýlokið við að leika í Boðorðunum tíu, stórmyndinni eftir Cecil B. De Mille, sem við höfum getið hér áður. Það var leikstjórinn Fritz Lang, sem fékk Debru til að taka að sér hlutverk í Þýzkalandi, og tæplega hefði hann getað valið betur. Hún mun leika í tveim- ur þýzkum myndum, er nefnast Tígurinn frá Eschnap- ur og Indverska grafskriftin. Og Debra virðist vera fædd í hlutverk indversku hofdansmeyjunnar. Hið rétia nafn Debru er Debralee Griffin, og hún er fædd í Colorado í Bandaríkjunum 19. ágúst 1933. Hún var ekki nema fimmtán ára gömul, þegar hún ték í mynd- inni Lög götunnar hjá Fox félaginu. Meðal mynda hennar má nefna Brotnu örina, þar sem hún lék á móti James Stewart, Paradísarfuglinn, Demetrius og gladíaiorana og Reno-bræðurna. Debra er gift söngv- aranum David Street. O. W. FISCIIER hritir réitu nafni Ottó Wilhelm Fischer, er fæddur 1. apríl 1915 og sonur austurríks starfsmanns i utanrikisþjónustu. Aðeins tvítugur kom Ottó fyrst fram á sviðinu í Vín, en hann hafði næstum ncð helmingi hærri aldri, þegar nafn háns var orðið vel þekkt. Það var í þýzkum kvikmyndum, srm Fischrr fékk sitt bezta tækifæri, enda hefur hann Ieikið í fjclmörgum þeirra. Hlutverk vor Gaigerns baróns h'ýtur að vera óskahlutverk leikarans, því að hann er sem fæddur til að leika þennan hættulega hótelþjóf, sem kann skil á því að nota sér vinsældir sínar hjá veika kyninu til að ná því, sem hann ætlar sér. „Dönsk Marilyn” Stúlkuna á myndinni hér til hægri kalla Danir sína „Marilyn Monroe", — en hún heitir annars Judy Gringer og er fædd í janúar 1941. Judy gekk í ballettskóla Kon- unglega leikhússins, en varð að hætta þar, sjálfri sár og ættingjum til mikilla leiðinda, vegna þess að „fæturnir þoldu ekki hina miklu áreynslu“, að því er hún segir sjálf. En þetta voru þó ekki endalokin á dansferli hennar, því að hún réðst í dansflokk Ritu Clair og hefir get- ið sér nafn sem dansmær með þeim flokki. Einnig hefur hún fengið litil hlutverk í kvikmyndum. Michele Morgan í hinu fræga hlutverki Garbó. Preysing talar yfir hausamóíunum á bókhaldara sínum.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.