Vikan


Vikan - 25.02.1960, Blaðsíða 18

Vikan - 25.02.1960, Blaðsíða 18
sér vel. klandur Hrútsmerkið (21. marz—20. apr.): Óvenju skemmtileg vika. Þú munt verða fyrir mörgum skemmtilegum ævintýr- um, einkum mun nýr vinur þinn verða til þess að gera vikuna skemmtilega. Um helgina verður einhver breyting á háttum þínum, og munt þú kunna illa við hana í fyrstu, en þú kemst að því, að sú breyting er samt til bóta. Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí.): Farðu vel með þig í vikunni, því að þér er hætt við veikindum. Stjörnurnar benda einnig á, að þér sé bezt að vera sem mest heima við, svo að það kemur Kona nokkur mun koma þér í talsvert um eða eftir helgina. TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júni): Á miðvikudag mun koma fyrir dálítið einkennilegt atvik, sem kemur þér til þess að breyta öðruvísi en undanfarið. Liklega muntu þá fá duglega ráðningu. Flestum hættir til að vera einum of uppstökkir í vikunni. Vikan virðist annars hentug til kaup- skanar. Heillatala 3. KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): 1 þessari viku er hætt við að þú lifir um efni fram, en þvi munt þú ekki sjá eftir siðar meir. Tilbreytingarleysið hefur farið i taugarnar á þér undanfarið, en úr því rætist eftir heigina. Eitthvert kvöldið mun koma til þin einkennilegur gestur. Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú hef- ur verið óréttlátur gagnvart ástvini þinum, og ef þú vilt halda vináttu hans, verður þú að breyta betur hið skjót- asta. 1 sambandi við barn í fjölskyld- unni kemst allt á annan endann. Ekki er Ijós einn þéttnr. sem lesa má úr stjörnunum. MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Margir munu lenda í skemmtilegu ást- arævintýri í vikunni, en ekki ber samt að binda of miklar vonir við það ævin- týri. Vikan virðist ætla að verða hús- mæðrum einkum til heilla, en ógiftir karlmenn geta lent í ótrúlegustu vandræðum. VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Á laugardag mun að öllum líkindum ræt- ast einn æskudraumur þinn — eða að minnsta kosti eitthvað i þá átt. Það kann annars að vera, að lífið leiki ekki við þér þessa dagana, en stjörnurnar hvetja þig til þess að sýna bjartsýni — þú munt ekki iðrast þess. Heillatala 7. DrekargerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú munt ráðast í stórræði í vikunni, og ráðleggja stjörnurnar þér eindregið að hlusta ekki á ráðleggingar fjölskyldu þinnar í þeim efnum. Þér mun berast skemmtileg gjöf í vikunni, en gjafarinn er ein- ungis að reyna að koma sér í mjúkinn hjá þér. BogmaÖurinn (23. nóv—21. des.): Sköp- unargáfa þin mun fá að njóta sín í vik- unni svo um munar. Þú munt verða „potturinn og pannan" í einhverju, sem þú og kunningjar þínir hafa á prjón- unum. En þú mátt fyrir alla muni ekki bregð- ast trúnaðartrausti þeirra. Kvöldin verða mjög skemmtileg. Heillalitur grátt. GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Þú munt kynnast manni (eða konu) í vik- unni, sem er að vísu ekki eins og fólk er flest, en þið munuð bindast sterkum vináttuböndum. 1 samkvæmi kemur dá- lítið leiðinlegt atvik fyrir, sem varpar skugga á næstu daga, en taktu það ekki nærri þér. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Það sem þú hefur unnið að undanfarið, gengur ekki eins vel og til var ætlazt. Reyndu að fara öðruvísi að. Einhver i fjölskyldunni lendir í einhverju klandri, og munt þú eitthvað verða við það riðinn. Annars lofa stjörnurnar skemmtilegri viku. Heillatala 5. Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þú skalt forðast allt óhóf í vikunni, eink- um neyzlu áfengis — ella munt þú lenda lr /nM í mestu vandræðum. E'inn morgun í vikunni, munt Þú verða fyrir leiðinlegu óhappi, en seinna i vikunni mun þetta óhapp ein- mjtt verða til þess að færa þér mikla hamingju. "0 9 O § € i 9 © © 9 © © © & © 9 Q 9 9 9 9 9 Q 9 9 9 n © © — Já, en elskan mín, — ég las það í stjörnuspánni í Vikunni, að þessa viku ætti maður að vera mjög nærgætinn við samstarfsfólkið. — Rúnar Guðmundsson. Helene Falke og Cliristin Person eru mjög kunnar í Svíþjóð um þessar mundir. Þær kynna þátttak- endur í spurninga- keppni í sænska sjón- varpinu, — mjög spennandi keppni, þar sem vinningurinn er tíu þúsund sænskar krónur. Þær eru annars sýningarstúlkur að atvinnu, mjög óspilltar og elsku- legar, eins og myndin ber með sér. Helene — til vinstri — er 21 árs og nýgift, en Christin er 18 ára og lausbeizluð ennþá. Nætur- vaktirnar verstar Hann stóð og stjórnaði umferðinni á horn- inni á Hverfisgötu og Snorrabraut. Það var tekið að rökkva, og norðanbeljandinn af Esjunni sópaði rusli eftir gangstéttunum og feykti þvi framan i kuldabláa vegfarendur. Við sáum, að þetta var Rúnar Guðmunds- son, og vegna þess að umferðin var fremur strjál þetta síðdegi, þá lét hann til leiðast að tala við okkur uppi við húsvegginn. Rúnar er úr Flóanum, — nánar til tekið frá Hurðarbaki í Villingaholtshreppi. Hann er einn þeirra frægu glímumanna, sem komu hver á eftir öðrum úr þessum hreppi, sáu og sigruðu á kappmótum. Rúnar var glímu- kóngur Islands í þrjú ár: 1950, 1951 og 1953. Þar fyrir utan varð hann skjaldarhafi Ár- manns í tvö ár. Nú er Rúnar lögregluþjónn nr. 74. Hann er búinn að vera við þetta starf í níu ár og kann vel við sig i því. — Við höfum heyrt, að lögregluþjóns- starfið sé fremur illa launað. —• Það má ltannski segja, að svo sé. Það eru þó hlunnindi, að okkur er séð fyrir bún- ingum einu sinni á ári, og það nægir oftast. — Þetta er sennilega ein af dekkri hlið- unum við þetta starf, að standa við um- ferðastjórn í kalsa. — Það mundi ég nú segja, að væri ekki. Mér finnst næturvaktirnar verstar. Þá erum við á götunni til kl. þrjú cftir miðnætti, en síðan eru hafðir bílar í eftirliti, það sem eftir er nætur. — Engir Ijósir punktar þá? — Félagsskapur okkar lögregluþjóna er það, sem ég met mest við starfið, það mundi ég segja, að væri sólskinsbletturinn. Það er mikils virði að eiga góða starfsfélaga. — Og þið vinnið á vöktum, er ekki svo? — Þrískiptum vöktum. Maður er á sömu valctinni í hálfan mánuð. Flestum líkar bezt við morgunvaktina. Hún er fremur róleg, og maður er laus fyrir klukkan eitt. Það er mjög gott fyrir þá, sem hafa eitthvað að starfa fyrir sjálfa sig. — Margir í aukavinnu? — Já, aðallega við skemmtistaðina. Ég Framh. af bls. 33.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.