Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 1

Fréttablaðið - 26.11.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Smith & Norlandþjónar þér fyrir jólin. farið á fjöll ● fréttablaðið ● FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR 26. nóvember 2009 — 280. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG Nýtt bókaforlag Málstaður gefur út barnabók og styður afrískar mæð- ur í vanda. TÍMAMÓT 30 KJÓLAR Stílhreint, stutt og klassískt vinsælt Sérblað um kjóla FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG. SIEMENS Smith & Norland bæklingur Fyrir jólin FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG. Apple jólagjafalistinn fylgir Fréttablaðinu í dag Opið til 21 Fögur fljóð Fáklæddar fyrirsætur sýndu und- irfötin frá Victoria‘s Secret. FÓLK 45 KÓLNANDI VEÐUR Í dag verða norðaustan 8-15 m/s, en hvassara við suðausturströndina í fyrstu. Dálítil él norðaustan til en yfirleitt bjartviðri suðvestanlands. Hitinn verður um og rétt undir frostmarki. VEÐUR 4 -2 -2 -1 1 0 MENNTAMÁL Háskóli Íslands verð- ur samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2010 rekinn fyrir jafngildi þeirrar fjárveitingar sem skólinn fékk fyrir sameiningu hans við Kennaraháskóla Íslands. Í byrjun árs 2007 var undirrit- aður samningur við menntamála- ráðuneytið um fjármögnun metn- aðarfullrar stefnu HÍ. Hefur sú stefna kristallast í markmiðinu um að koma skólanum í hóp hundrað bestu háskóla heims. Samningur- inn er afkastatengdur og átti að tryggja skólanum það viðbótarfé sem hann þarfnast til að geta sinnt hlutverki sínu sem menntastofnun í fremstu röð. Samningnum hefur nú verið frestað. Á þessu ári spar- ar það ríkinu 720 milljónir króna. Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, segir að frestun samnings- ins sé áfall ekki síst þar sem skól- inn hefur staðið við öll áfanga- markmið sem í samningnum eru. „Hvað kennsluna varðar þá vorum við hvött til að opna dyr skólans um áramótin. Fjölgaði í skólan- um um fjórtán hundruð nemend- ur sem margir höfðu þá misst vinnuna. Nýnemum í haust fjölg- aði um tuttugu prósent á milli ára. Skólinn er að stækka gífur- lega á meðan við þurfum að mæta miklum niðurskurði. Við leggjum mesta áherslu á að nemendur skól- ans fái þá kennslu sem þeim ber en það eykur byrðar á herðum kenn- ara sem lækka í launum. Hættan er sú að okkur fatist flugið í rann- sóknum og af því hef ég verulegar áhyggjur.“ Kristín hefur jafnframt áhyggj- ur af samstarfssamningum við erlenda háskóla. „Við höfum lagt mikið upp úr því að okkar nemend- ur geti tekið hluta af sínu námi við virtar erlendar stofnanir án þess að borga há skólagjöld. Framlag okkar í þessu samstarfi eru vís- indi og rannsóknir. Með slíkum samningum teljum við okkur vera að stækka íslenska menntakerfið án útgjalda fyrir samfélagið. Þetta samstarf er í hættu.“ Niðurskurður innan skólans er rúmur milljarður króna á þessu ári. Útfærsla niðurskurðar fyrir árið 2010 er í vinnslu og gerir ráð fyrir fjögur til sex prósenta lækk- unum á laun yfir 350 þúsundum króna. Sameiginleg útgjöld og útgjöld fræðasviða verða lækk- uð um fjögur prósent. Þessar for- sendur ásamt sparnaði ársins 2009 jafngilda því að rekstur Kennara- háskólans fyrir sameiningu við HÍ hafi verið þurrkaður út úr bókum ríkisins. Sú skylda er því lögð á herðar stjórnenda að fjármagna rekstur menntavísindasviðs HÍ sem er að stofni til gamli Kennara- háskólinn. Ríkisframlög til Kenn- araháskólans á síðasta rekstrarári hans sem sjálfstæðs skóla var um 1,5 milljarðar króna. - shá Sparnaður hjá HÍ jafngildir rekstri Kennaraháskólans Afkastatengdur samningur Háskóla Íslands við ríkið hefur verið felldur niður. Ríkið sparar 720 milljónir í ár. Áfall segir rektor. Skólinn áætlar að lækka laun yfir 350 þúsundum um allt að 6 prósent árið 2010. ORKUMÁL Íslenskt samfélag sparaði sér 57 milljarða króna árið 2008 með því að nýta jarðhita til húshit- unar miðað við hvað kostað hefði að kynda hús með olíu. Þetta er niðurstaða útreikninga sem Orkustofnun hefur gert. Jónas Ketilsson, jarðhitasérfræðingur hjá Orku- stofnun, segir að miðað við 2% raunávöxtun hafi Íslendingar sparað sér 880 milljarða króna á núvirði frá 1970, með því að kynda hús með jarðhita saman- borið við kostnað af olíukyndingu. „Ef við tökum bara þá orku sem við erum að nýta í dag til húshitunar og yfirfærum á olíu þá fáum við þessar tölur,“ segir Jónas. Jafnvel þótt orkunotkun yrði eitthvað minni ef kynt væri með dýrari orkugjafa eins og olíu eða rafmagni sé sparnaðurinn gífurlegur. - pg Notkun jarðhita til húshitunar hefur sparað 880 milljarða frá 1970: 57 milljarðar spöruðust í fyrra SAMFÉLAGSMÁL Hjálparstarf kirkj- unnar úthlutaði 168 matargjöfum í gær, sem er met ef frá er talin aðstoð um hátíðir. Á miðvikudag- inn í síðustu viku var 116 gjöfum úthlutað, og þótti það þó mjög mikið, að sögn Vilborgar Odds- dóttur hjá Hjálparstarfinu. Auk þess hafa hátt í sjötíu gjafir verið sendar út á land. Vilborg segir að gífurleg fjölg- un hafi orðið hjá þeim á þessu ári. Sem dæmi nefnir hún að í október hafi borist um 880 umsóknir, samanborið við tæpar 200 í fyrra, sem þó þótti mikill fjöldi. „Mín skýring er sú að það er svo ofboðslegur greiðsluvilji hjá fólki. Fólk er að greiða það sem það skuldar og á bara ekk- ert eftir,“ segir hún. Margar fjöl- skyldur hafi ekki nema 30 til 50 þúsund krónur aflögu eftir að hafa greitt sínar skuldir. - sh 168 matargjöfum úthlutað: Metdagur hjá Hjálparstarfinu Vilja halda Degi Austurríska hand- boltasambandið hefur boðið Degi Sigurðs- syni nýjan samning. ÍÞRÓTTIR 50 Þagnameistarinn „Þagnameistarinn lýsir nú eftir opnu og gagnsæju samfélagi. Hann hefur snúizt gegn sjálfum sér,“ skrifar Þorvaldur Gylfason. Í DAG 24 LJÓSAGANGA UNIFEM Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingiskona og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra voru meðal þeirra sem tóku þátt í ljósagöngu UNIFEM í gærkvöldi. Í gær var alþjóðlegur baráttudagur SÞ gegn kynbundnu ofbeldi auk þess sem UNIFEM á Íslandi fagnaði 20 ára afmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.