Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 70
54 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Margur kvikmyndaáhugamaður-
inn var harmi sleginn þegar Laug-
arásvídeó brann í lok sumars. Þeir
sömu geta nú andað léttar því leigan
mun opna aftur á sama stað.
„Þetta leit hrikalega út og maður
var ansi svartsýnn. Hélt hreinlega
að 23 ára starf væri farið forgörð-
um á einni nóttu,“ segir Gunnar
Jósefsson, eigandi Laugarásvídeós.
„Þetta slapp þó betur en á horfðist
því allavega fjörutíu prósent af dvd-
diskunum eru í lagi. Maður er búinn
að vera að þrífa, pússa og setja disk-
ana í ný umslög í þrjá mánuði núna
og svo náttúrulega bara að panta inn
efni á fullu. Það er verið að koma
húsnæðinu í samt lag og við stefnum
á að opna aftur 12. desember næst-
komandi. Það verður hátíð. Hljóm-
sveitir að spila og snittur!“
Margir tóku brunann nærri sér og
netsíðan Kvikmyndir.is setti söfnun í
gang. „Það söfnuðust nokkrir hundr-
aðkallar sem nýttust vel í endurupp-
bygginguna,“ segir Gunnar. Hann
er viss um að Laugarásvídeó muni
halda sérstöðu sinni og stefnir á að
geta fljótlega staðið undir slagorði
leigunnar og verið með stærsta dvd-
safn landsins.
Það vita færri að Laugarásvídeó
starfrækir útibú í Borgarnesi. „Ég
byrjaði fyrir jól í fyrra að keyra á
Laugarásvídeó-bílnum til Borgar-
ness með fullt af diskum,“ segir
Anna Ólöf Kristjánsdóttir, sem sér
um Borgarnesútibúið. „Við leigð-
um okkur bara íbúð – það var nóg
af tómum íbúðum í Borgarnesi – og
rákum leiguna þaðan til að byrja
með. Vorum með afgreiðslukass-
ann inni í eldhúsi. Leigan var bara
opin um helgar en þetta mæltist svo
vel fyrir að við ákváðum að opna í
varanlegu húsnæði að Borgarbraut
52 og erum búin að vera þar síðan
í mars. Þessi leiga er náttúrulega
eitthvað öðruvísi en leigan í bænum,
með minna úrval, en mikið af diska-
safninu bjargaðist úr eldinum af því
diskarnir voru í Borgarnesi.“ - drg
Laugarásvideó rís úr öskustónni
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
Flestir ljósvaka- og
netmiðlar greindu í
gær frá dularfullum
hópi kvikmynda-
gerðarmanna sem
lét hvorki kulda
né kaldan vind
aftra sér frá því
að skella sér
ofan í Tjörnina í
miðbæ Reykja-
víkur. Svo leynd-
ardómsfull var þessi
sundferð að meira
að segja lögreglan
gat ekki gefið það
upp hverjir voru þar á
ferðinni. Sú fiskisaga
flaug hins vegar hátt að
þetta hefði verið tökulið Skaupsins
og að þarna hafi átt að gera grín að
frækinni björgun Fjölnis Þorgeirs-
sonar sem vissulega var einn af
hápunktum síðasta árs.
Og ný kitla úr kvikmyndinni Bjarn-
freðarson er komin á YouTube.
Myndin er lokapunkturinn í sög-
unum um þetta víðfræga þríeyki;
Ólaf Ragnar, Daníel og Georg
Bjarnfreðarson sem er auðvitað
miðpunktur myndarinnar. Kitlan
gefur nokkuð góða mynd af
söguþræðinum sem
hingað til hefur ekki
öllum verið ljós. Ef
marka má kitluna
flytja þeir Georg og
Ólafur Ragnar inn á
Daníel sem nú virðist
hafa reynt við
læknisfræðina.
Þetta hefur auð-
vitað í för með
sér tilheyrandi
árekstra en
atriðin benda til
þess að þarna
sé á ferðinni
sannkallaður
grínsmellur. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
SLAPP BETUR EN Á HORFÐIST Gunnar Jósefsson opnar Laugarásvideó aftur í desem-
ber. Hann stefnir á að geta boðið aftur upp á stærsta dvd-safn landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Mér finnst veitingastaðurinn
Núðluskálin á Skólavörðustíg
mjög góður. Hitt uppáhaldið
mitt er svo Grænt og grillað á
Selfossi, en þar er hægt að fá
rosalega góða grænmetisrétti.“
Ragnheiður Eiríksdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og prjónakona.
LÁRÉTT 2. hærri, 6. úr hófi, 8. hlaup,
9. stormur, 11. tvö þúsund, 12.
digurmæli, 14. hrinding, 16. drykkur,
17. rjúka, 18. munda, 20. í röð, 21.
steypuefni.
LÓÐRÉTT 1. harmur, 3. skóli, 4.
streitast, 5. angan, 7. formaður, 10.
lítið býli, 13. átti heima, 15. laun, 16.
taumur, 19. frá.
LAUSN
„Ég flækti fótinn í einhverri stól löpp
og hrasaði bara,“ segir Þórhall-
ur Sigurðsson, betur þekktur sem
Laddi. Hann úlnliðsbrotnaði heima
hjá sér og er nú með vinstri hönd-
ina í gifsi. „Ég bar hana fyrir mig
en maður er víst ekki jafn liðugur
og í gamla daga heldur hlunkaðist
ég bara niður með þessum afleið-
ingum.“ Að sögn Ladda tekur brot-
ið sex vikur að gróa og hann þakk-
ar guði fyrir að hann var ekki búinn
að panta sér golfferð eitthvert suður
á bóginn. „Nei, ég ætlaði reyndar
að skoða það, að komast í golfferð
þegar þessari törn lýkur loksins. Ég
verð bara vonandi búinn að ná mér
nógu snemma til að geta farið upp
úr áramótunum.“ Þetta er reyndar
í annað sinn á þessu ári sem Laddi
slasar sig því hann marðist á rif-
beini við tökur á slagsmálasenu
fyrir kvikmyndina Jóhannes.
Og brotið hefði ekki getað komið á
verri tíma því leikarinn er jú önnum
kafinn við að bregða sér í allra kvik-
inda líki í jólasýningunni Skröggur
sem sýnd er í Loftkastalanum. Þar
leikur Laddi öll hlutverkin og því
var ekki hægt að fá neinn staðgeng-
il til að hlaupa í skarðið. „Ég læt
mig bara hafa það, leik þetta með
höndina svona þótt þetta séu tvær
sýningar.“ Til að bæta gráu ofan á
svart er hann einnig veislustjóri á
jólahlaðborði Hótels Sögu um helg-
ina en það er engan bilbug á leikar-
anum að finna, hann hyggst bíta á
jaxlinn og láta sig hafa það.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
leikaranum í gær var hann hins
vegar staddur í tökum á Áramóta-
skaupinu. Og úlnliðsbrotið kom
þar loksins að góðum notum ef svo
mætti segja því hann leikur sjálf-
an forsetann, Ólaf Ragnar Gríms-
son. „Já, gifsið kom ekki að sök þar
heldur passar bara vel við hlutverk-
ið, hann er hvort eð er alltaf í fatla
annað slagið.“
freyrgigja@frettabladid.is
LADDI: LEIKUR FORSETANN Í SKAUPINU
LADDI LÆTUR ÚLNLIÐS-
BROT EKKI STOPPA SIG
BROTNAÐI HEIMA Laddi flækti sig í stóllöpp og setti vinstri höndina fyrir sig með
þeim afleiðingum að hann úlnliðsbrotnaði. Hann ætlar þó að bíta á jaxlinn og leika
Skrögg í Loftkastalanum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Við erum búnir að leggja inn skriflega beiðni
um styrk upp á 300 þúsund krónur fyrir kaupum
á kertum frá Sólheimum í Grímsnesi. Við höfum
fengið staðfestingu á að þeir hafi móttekið bréfið
en þetta virðist eitthvað standa í þeim,“ segir Úlfar
Eysteinsson, matreiðslumeistari á Þremur Frökk-
um. Fréttablaðið hefur að undanförnu fylgst með
Úlfari og félaga hans, Tómasi Tómassyni á Ham-
borgarabúllunni, og mótmælum þeirra við háum
stýrivöxtum Seðlabankans. Þeir ætla ekki að raka
sig fyrr en vextirnir eru komnir niður fyrir tíu pró-
sent en þetta eru vafalítið ein friðsælustu mótmæli
sem sögur fara af.
Nú er hins vegar tími aðgerða runninn upp og
mótmælabræðurnir ætla að klæða sig upp í jóla-
sveinabúning, keyra um Reykjavík á hestvagni og
gefa börnum borgarinnar kerti og spil. Úlfar upp-
lýsir að þeir séu þegar komnir með hestvagninn,
hestinn sem á að draga hann og jólasveinabúning-
ana. „Þá erum við búnir að fá þúsund spilastokka
frá Flugleiðum en okkur vantar styrkinn fyrir
kertunum. Vonandi kemur hann frá Seðlabankan-
um en annars förum við bara einhverja aðra leið,“
útskýrir Úlfar en kokkarnir ætla meðal annars að
heimsækja Barnaspítala Hringsins.
Næsti stýrivaxtafundur Seðlabankans verð-
ur 10. desember ef marka má heimasíðu
bankans en Úlfar er ekki bjartsýnn á að
þeir geti rakað af sér skeggið. Jafnvel
þótt vextir verði lækkaðir niður fyrir
tíu prósentin. „Nei, við ætlum að
leika jólasveina á jólaballi Flug-
leiða í staðinn fyrir spilastokk-
ana og mér skilst að það
sé ekki fyrr en milli jóla
og nýárs.“ - fgg
JÓLASVEINAAÐGERÐIN Úlfar og Tómas ætla að klæða sig
upp sem jólasveinar á annan í aðventu og gefa börnun-
um bæði kerti og spil.
LÁRÉTT: 2. efri, 6. of, 8. gel, 9. rok,
11. mm, 12. grobb, 14. stjak, 16. te,
17. ósa, 18. ota, 20. tu, 21. gifs.
LÓÐRÉTT: 1. sorg, 3. fg, 4. rembast,
5. ilm, 7. forseti, 10. kot, 13. bjó, 15.
kaup, 16. tog, 19. af.
Kokkarnir vilja fá styrk frá Seðlabanka