Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 26. nóvember 2009 19
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 22 Velta: 66,7 milljónir
OMX ÍSLAND 6
784 +0,42%
MESTA HÆKKUN
BAKKAVÖR +12,50%
ÖSSUR +0,38%
MESTA LÆKKUN
ICELANDAIR -1,28%
MAREL -0,48%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 166,00
+0,00% ... Bakkavör 1,35 +12,50% ... Føroya Banki 134,00 +0,00% ...
Icelandair Group 3,85 -1,28% ... Marel 61,90 -0,48% ... Össur 133,50
+0,38%
„Við vildum vera skrefi á undan,“ segir
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, for-
stjóri Saga Capital, um endurskipulagn-
ingu á efnahagsreikningi bankans.
Hann vill ekki tjá sig ítarlega um end-
urskipulagninguna fyrr en að loknum
hluthafafundi en vísar meðal annars til
óinnleiddra reglna Evrópusambandsins
um starfsemi fjármálafyrirtækja sem
kunna að verða samþykktar á Alþingi
fyrir jól og annarra fyrirhugaðra breyt-
inga á regluumhverfi þeirra. Hann
segir þær munu hafa mikil áhrif á
rekstur fjármálafyrirtækja. Starfsemi
Saga Capital haldist óbreytt og rekstur-
inn verði traustari fyrir vikið.
Í endurskipulagningu Saga Capi-
tal felst að þær eignir sem tilheyra
bankastarfseminni verða áfram innan
fjárfestingarbankans en aðrar færðar
í eignarhaldsfélag, sem verður í eigu
hluthafa. Þar á meðal eru eignarhlut-
ir í fjármálafyrirtækjum sem kunna
að draga úr rekstrarhæfi og eiginfjár-
styrkleika hans. Efnahagsreikningur
Saga Capital minnkar við þetta á sama
tíma og dregur úr áhættu í rekstri
hans.
Breytingin skýrist meðal annars af
því að bankanum bar að núvirða vaxta-
ávinning af tæpum helmingi af 19,7
milljarða króna láni sem ríkissjóður
veitti bankanum í mars. Lánið var sam-
kvæmt reglum fært sem tekjur í árs-
reikningi. Slíkt er ekki tekið gilt sem
eigið fé samkvæmt óinnleiddum tilskip-
unum Evrópusambandsins um fjár-
málafyrirtæki. - jab
Ríkislán ekki fært sem tekjur
ÞORVALDUR LÚÐVÍK Saga Capital dregur úr
rekstraráhættunni og stokkar upp reksturinn.
Nokkrir iPhone-farsímar frá
Apple seldust hjá Símanum í gær.
Þetta var fyrsti heili söludag-
urinn en sala á símunum hófst
í verslun Símans í Kringlunni í
Reykjavík síðdegis á þriðjudag.
Ekki liggur fyrir um sölutölur.
Þær munu þó í takt við vænting-
ar.
Ekki fengust upplýsingar um það
hversu margir símar komu hingað
til lands með fyrstu sendingu að
öðru leyti en því að um takmark-
að magn var að ræða. Von er á
fleiri símum með næstu sendingu
á næstu dögum.
Um tvær gerðir ólæstra farsíma
sem styðja við þriðju kynslóð í
farsímatækni er að ræða. Annars
vegar eru þeir átta gígabæta og
sextán gígabæta. Sá minni kost-
ar 124.900 krónur
en hinn 156.900
krónur.
- jab
Nokkrir iPhone
símar seldust
Opið í útibúinu
í Kringlunni
til klukkan 21 í kvöld
Komdu og kynntu þér úrræði
vegna húsnæðis- og bílalána
Að undanförnu höfum við kynnt úrræði með það að markmiði að auðvelda
viðskiptavinum að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál heimilisins.
Má þar nefna höfuðstólslækkun og greiðslujöfnun fyrir einstaklinga á:
• verðtryggðum húsnæðislánum
• erlendum húsnæðislánum
• bílalánum og bílasamningum
Úrræðin henta viðskiptavinum misvel og við viljum hjálpa þér að vega
og meta kosti þeirra og galla. Þess vegna bjóðum við viðskiptavinum að
setjast niður með starfsfólki okkar í kvöld og fara ítarlega yfir þau úrræði
sem eru í boði. Ekki verður opið hjá gjaldkerum.
Allir viðskiptavinir Íslandsbanka velkomnir.HV
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-2
0
8
3
Starfsfólk okkar í Þjónustuverinu
verður einnig við símann til kl. 21
í kvöld. Síminn er 440 4000.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka
hf. hefur verið falið að annast
formlegt ferli um sölu á 49 pró-
senta hlut í Skeljungi og tengdum
félögum.
Söluferlið er opið öllum.
Íslandsbanki hefur þó áskilið sér
rétt til að takmarka aðgang að
söluferlinu, svo sem ef viðskiptin
stangast á við samkeppnisreglur,
að því er segir í tilkynningu.
Félögin eru S fasteignir, Ö fast-
eignir og Birgðastöðin Miðsand-
ur. Þau eru nú í eigu Miðengis,
dótturfélags Íslandsbanka.
Skeljungur var áður í eigu
Uppsprettu, félags Fons, sem að
mestu var í eigu Pálma Haralds-
sonar. Glitnir sölutryggði félagið
síðla árs 2007 og seldi 51 prósents
hlut í félaginu til hóps fjárfesta í
byrjun sumars á þessu ári. Einar
Örn Ólafsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Íslandsbanka, hefur verið for-
stjóri Skeljungs frá í maí. - jab
Afgangurinn í
opið söluferli
ALLT TIL SÖLU Íslandsbanki, áður Glitnir,
hefur átt hlut í Skeljungi í tvö ár.