Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 60
44 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Nýlega gaf Filmus út Atvinnumenn-
ina okkar á DVD, alla þætti Auðuns
Blöndals um íslenska atvinnumenn
í íþróttum sem voru sýndir á Stöð 2
Sport. En það sem meira er: Atvinnu-
mennirnir okkar eru líka gefnir út á
VHS-spólum. Þetta er að öllum lík-
indum fyrsta VHS-spólan sem hér
kemur út í langan tíma. „Við ákváð-
um bara að gera þetta því við feng-
um svo margar fyrirspurnir,“ segir
Arnar Knútsson hjá Filmus. „Þetta
kom rosalega á óvart því maður hélt
að DVD-ið væri alveg búið að sigra
spóluna. Það er samt ennþá fólk sem
vill frekar gömlu spóluna.“
Spólufólkið notar svipaða rök-
semdafærslu og fólk sem kýs vínyl
fram yfir geisladiska. „Menn segja
að stafræn myndgæði DVD-disksins
séu köld og hörð og finnst vanta þá
mýkt sem VHS-spólan er með,“ segir
Arnar. „Ég get svo sem alveg tekið
undir þetta því sjálfur á ég yfir 25
ára gamlar VHS-spólur og nýt þess
enn að setja þær í tækið.“
VHS-útgáfan af Atvinnumönnun-
um okkar er framleidd í takmörk-
uðu upplagi og kostar aðeins meira
en DVD-ið, enda framleiðslukostnað-
urinn hærri. Spólan er aðeins fáan-
leg í Nexus á Hverfisgötu. „Þeir tóku
þessu fagnandi,“ segir Arnar. „Þar
hafa menn skilning á svona skringi-
legheitum og bera virðingu fyrir
þeim.“ - drg
Atvinnumennirnir á VHS-spólum
MÝKRI MYND Arnar Knútsson með Atvinnu-
mennina okkar á spólu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Útgáfuhóf var haldið í
Eymundsson á dögunum til
að fagna ævisögunni Mynd
af Ragnari í Smára sem Jón
Karl Helgason ritaði. Jón
Karl hefur um árabil rann-
sakað líf Ragnars í Smára,
sem var goðsögn í lifanda
lífi. Hann var áberandi í
íslensku menningarlífi um
áratugaskeið og átti hann
í góðu sambandi við helstu
listamenn þjóðarinnar.
FÖGNUÐU NÝRRI ÆVISÖGU
Útgefandinn Páll Valsson og Þorgerður Agla Magnúsdóttir
fögnuðu ævisögunni um Ragnar í Smára.Rithöfundurinn Einar Kárason og blaðamaðurinn Kolbrún
Bergþórsdóttir voru brosmild.
Ívar Eric og Gunnar Ragnarsson voru á meðal gesta.
Viðar Hreinsson, framkvæmdastjóri Reykjavíkurakademíunnar,
og Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor mættu í útgáfuhófið.
Jón Karl Helgason (til hægri), sem skrifaði ævisögu Ragnars í Smára, ásamt Gunnari
Sigurðssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Sönghópurinn Þrjár raddir klæðist sérhönnuðum kjólum frá fatahönn-
uðinum Birtu Björnsdóttur þegar hann kemur fram á jólahlaðborði í
Turninum í Kópavogi. „Við erum gallharðir aðdáendur og okkur lang-
aði að spyrja hana um þetta. Við bjuggumst við að fá neitun en hún
tók voða vel í þetta og sérsaumaði fyrir okkur allar,“ segir söngkonan
Kenya. „Við byrjuðum á jólahlaðborðinu um síðustu helgi. Önnur hver
manneskja spurði okkur hvar væri hægt að kaupa diskinn okkar. Hin
spurði hvar væri hægt að fá þennan kjól,“ segir hún og hlær.
Sönghópurinn gaf fyrir skömmu út sína fyrstu jólaplötu, þar sem
raddirnar eru einu hljóðfærin. „Þetta eru klassísk og ný jólalög, öll í
okkar útsetningum,“ segir Kenya. Á meðal laga á plötunni eru Bráð-
um koma blessuð jólin, Ljósadýrð og Nú er Gunna á nýju skónum. „Við
byrjuðum sem jólatríó en stækkuðum svo í beatbox-hljómsveit. Okkur
fannst flott að gefa út jólaplötu til að fullkomna hringinn.“
Útgáfutónleikar
Þriggja radda verða
haldnir í Salnum í
Kópavogi á sunnudag-
inn klukkan 18 og fást
miðar á Midi.is. - fb
Í kjólum frá Birtu
Í KJÓLUNUM Kenya,
Sandra og Inga Þyri í nýju
kjólunum ásamt beatbox-
aranum Bjarti Guðjónssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
> FÉLL FYRIR CHASE
Kynbomban Shauna Sands
sagði nýlega að hún hefði
verið fyrsta ástin í lífi Gossip
Girl-leikarans Chace Craw-
ford. Þau kynntust þegar
hann var átján og hún 32
ára. „Hann var svo guðdóm-
lega fallegur, ég varð
strax ástfangin,“ sagði
Sands og bætir við
að þau hafi átt í árs-
löngu sambandi.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
9
2
1
3
8
Höfðabakka 9 & Skipholti 19 Sími 577-1300
Í tilefni af
„Thanksgiving“
Í tilefni af þakkargjörðarhátíðinni,
Thanksgiving, sem haldin er hátíðleg
í Ameríku, bjóðum við upp á ekta,
klassíska kalkúnaveislu sem slær allt út.
Grilluð kalkúnabringa
kjöt- og brauðfylling,
maís, eplasalat,
trönuberjasulta og „gravy“.
Verð 2.990 kr.
íslensk hönnun
og handverk
Strandgötu 43 | Hafnarfirði
Sími 565 5454 | www.fridaskart.is
Auglýsingasími
– Mest lesið