Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2009 Stuttir kjólar eru vinsælir í ár og sömuleiðis stílhreinir, að sögn Sigríðar Hafdísar Runólfs- dóttur, verslunarstjóra Next. Jólakjólarnir streyma nú inn í verslunina Next í Kringlunni. „Við erum að fá inn heilmikið af spari- kjólum fyrir jólin. Þessir sígildu kjólar eru engu að síður alltaf eft- irsóttir hjá okkur líka,“ segir Sig- ríður Hafdís Runólfsdóttir, versl- unarstjóri Next. „Stílhreinir kjólar eru vinsæl- ir um þessar mundir, enda auð- velt að dressa þá upp og niður eftir aðstæðum,“ segir Hafdís og lýsir þeim með eftirfarandi hætti: „Sniðið er einfalt og kjólarnir stíl- hreinir, nokkuð þröngir, ermalaus- ir, með hlýrum og stundum stutt- um ermum. Yfirleitt eru þeir ein- litir eða nánast einlitir með örlitlu mynstri. Fyrir jól er mikið um dökka liti, svarta og bleikfjólu- bláa tóna.“ Hún bendir á að Next hafi einn- ig borist sending af peysukjól- um. „Við erum líka með dálítið af mussum því að þær eru alltaf vin- sælar, og svo síða boli,“ segir hún og bætir við að meira sé um lita- gleði í mussunum en sparikjólun- um. „Next er náttúrulega bresk fatakeðja og allt sem í búðinni fæst er í takt við breska tísku í dag.“ Þá kveður Hafdís stutta kjóla eft- irsótta í ár. „Við erum með kjóla sem eru mjög stuttir. Yfirleitt eru þeir fyrir ofan hné. Einstaka kjól- ar eru hnésíðir,“ segir Hafdís og bendir á að þótt kjólarnir séu stutt- ir og skvísulegir henti þeir konum á öllum aldri, allt frá unglings- stúlkum og upp úr, og séu á góðu verði. Í versluninni sé þar að auki að finna sérstaka kjóladeild fyrir litlar skvísur. Um jólin vilja allir skarta sínu fegursta og vera sparilegri en allt árið um kring. Bæði vegna þess að það er gaman að vera í takt við jólatréð og jólaskrautið, glitra í falleg- um kertabjarma og spegla sig í jólatrénu en líka af því að pallíettur og ísaumaðir skrautsteinar eru það allra heit- asta í haust og vetur. Pallíetturnar eru reyndar ekki bara bundnar við hlaðborðin og árshátíðirnar heldur hefur í haust verið leyfilegt að vera í pallíettum við hvað sem er, útsaumuð pallíettustígvél þykja til dæmis mjög við hæfi og einnig treflar, vesti og stuttbuxur með pallíettum, ýmist úr pallíettuefnum eða með nettum mynstrum hingað og þangað. Pallíetturnar eru ekki bara þessar hefðbundnu kringl- óttu heldur líka ferkantaðar og ílangar flísar af spegilgjá- andi skrauti. Semelíusteinarnir eru ekki eins þétt saumað- ir í og áður heldur eru munstrin meira afgerandi og hver einstakur steinn fær að njóta sín. Það ætti því að vera flestum kappsmál að glitra í kapp við ljós og skreytingar þessi jólin. - bb Í haust hefur verið leyfilegt að klæðast pallíettum við hvað sem er. Í kapp við jólaljósin Idolstjarnan Kelly Clarkson tekur sig vel út í smekklega semelíuskreyttum stuttkjól. Pallíettur geta glitr- að fallega eins og hreinustu gersem- ar. Ekki eru allar pallíettur kringlóttar heldur geta þær líka verið ferkantaðar og ílangar eins og flísar. Klassískt á upp á pallborðið Sigríður Hafdís Run- ólfsdóttir, verslun- arstjóri Next, segir íslenskar konur kjósa sígilda kjóla. FRÉTTA BLA Ð IÐ /STEFÁ N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.