Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 38
 26. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR Þriðju tískuvikunni í Djakarta, höfuðborg Indónesíu, lauk í síðustu viku. Hún stóð yfir í átta daga og er þegar orðin einn stærsti tískuviðburður ársins þar í landi. Þegar litið er yfir sviðið má glöggt sjá að þrátt fyrir fjarlægðina við okkur Vesturlandabúana eru tísku- straumarnir alls ekki svo frábrugðn- ir því sem við eigum að venjast bæði hvað varðar úrval í verslunum og hjá íslenskum hönnuðum. Á sýning- unni var mikið um púfferm- ar og rykkt pils auk þess sem fjólublái lit- urinn var ríkj- andi líkt og hér heima. Að þessu sinni urðu þó jóla- litirnir rauður, hvítur og grænn fyrir valinu. - ve Púffermar og rykkt pils Konur vilja nýja kjóla fyrir þessi jól, segir Ruth Einars- dóttir, verslunarstjóri Vero Moda. Pallíettur ráða ríkjum í kjólatískunni auk satínkjóla í silfurlitu, svörtu, fjólubláu og bláu. „Pallíettur eru mjög áberandi fyrir þessi jól en einnig fínlegir kjólar úr satínefni,“ segir Ruth Einars- dóttir, verslunarstjóri Vero Moda í Kringlunni, um það sem hæst ber í kjólatískunni um þessar mundir. Litirnir sem eru vinsælast- ir eru svartur, silfurlitur, fjólu- blár og blár að sögn Ruthar. Hún telur áberandi að konur vilji gera vel við sig og kaupa sér nýjan kjól fyrir þessi jól. Þá sé gott að gera það í Vero Moda þar sem verðið á kjólunum er hagstætt að henn- ar mati. „Mikið er um að mittislína kjól- anna sé há og oft eru notuð belti við þá,“ segir Ruth og bendir á að belt- aúrvalið í versluninni sé mjög gott og töluvert um að belti séu fallega skreytt pallíettum eða silfurlitum göddum. Kjólarnir eru yfirleitt stutt- ir, faldurinn rétt fyrir ofan hné. Við þá kjóla segir Ruth að konur séu í þykkum leggings og falleg- um skóm. „Við erum með eitthvað af skóm, til dæmis rokkaða banda- skó með hæl sem eru mjög vinsælir. Þeir eru í sesarstíl, opnir í tána með þykku hælbandi, en við erum einnig með fallega lakkskó,“ segir hún og bætir við að tískan nú sé kvenleg en einnig nokkuð rokkuð. „Til dæmis er mikið til af grófu og rokkuðu skarti,“ segir hún, sem bæði ungar og eldri konur heillist af. Viðskiptavinir Vero Moda eru á öllum aldri. „Við erum með merkin Only, Vero Moda, Pieces og Object, þannig að hér versla allt frá tán- ingsstúlkum og upp í eldri konur. Ég er með fastakúnna sem eru vel yfir sjötugt,“ áréttir Ruth. Yfir kjól- ana fá konur sér síðan í miklum mæli svokallaða bólerópeysu eða - jakka sem bæði eru til síðerma og hálferma. Rokkaðir fylgihlutir í bland við fínlegt satín Ruth segir fjólubláa litinn vinsælan en auk þess eru pallíettur, satínefni og rokkaðir fylgihlutir í tísku um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ekkert er nýtt undir sólinni og hafa púffermar átt vinsældum að fagna hér heima líkt og í Indónesíu. Indónesíski hönnuðurinn Oka Diputra leikur sér með kunnug- leg form. N O RD ICPH O TO S/A FP ● Í STÆRRI STÆRÐUM Margar konur eru hræddar við jólakjólana, noti þær ekki stærðir 34-40. Það er hins vegar mikill misskilningur að kjólar fari ekki konum sem nota stærri stærðir. Nú fyrir jólin eru hlýralausir kjólar, með góðri brjóstalínu sem falla frjálslega niður á hné eða eru í ökklasídd, mjög vinsælir. Þetta snið mótar líkamann án þess að þrengja að honum; þannig að fela má fellingar líkamans, sem gera mörgum konum lífið leitt en eru að sjálfsögðu bara hluti af fallegum líkama. Það eru ekki allir líkamar eins. Þetta snið dregur oft fram hið besta hjá konum sem nota stærri stærðir en 40. Ermar er oft fallegar með. Eins og jóla- brjóstsyk- ur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.