Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 66
26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
GÓÐAR
FRÉTTIR
Frídreifing verður áfram á höfuðborgarsvæðinu, suðvestur-
horninu, Akranesi, Reykjanesi, Akureyri, í Borgarnesi og Árborg.
Nú verður Fréttablaðið líka aðgengilegt í öllum öðrum
landshlutum og fæst í lausasölu á kostnaðarverði.
Þeir sem hafa áhuga á að fá blaðið til sölu á kostnaðarverði
vinsamlegast hafi samband við Pósthúsið í síma 585 8300.
Hér færðu Fréttablaðið á kostnaðarverði:
Nú er Fréttablaðið
aðgengilegt hringinn
í kringum landið.
Ásbyrgi Verslunin Ásbyrgi
Bakkafjörður Mónakó
Baula Verslun
Blönduós N1
Potturinn og pannan
Dalvík N1 – Olís
Egilsstaðir N1
Eskifjörður Shell skáli
Kría veitingastaður
Fellabær Olís
Hella Olís
Hellissandur Hraðbúð N1
Shell
Húsavík N1 – Olís – Shell skáli
Hvolsvöllur N1 – Söluskálinn Björk
Höfn N1 – Olís
Ísafjörður N1
Kópasker Búðin Kópasker
Hrísey Eyjaljósið
Neskaupstaður Olís
Ólafsfjörður Olís
Ólafsvík N1 – Olís
Patreksfjörður Grillskálinn Patreksfirði
N1
Raufarhöfn Verslunin Urð
Reyðarfjörður N1 – Olís – N1
Rif Umboð Shell / Tandur
Sauðárkrókur N1 – Shell skáli
Hlíðarkaup
Siglufjörður Olís
Skagaströnd Olís
Staðarskáli N1
Stykkishólmur Bónus – Olís – Bakarí
Stöðvarfjörður Brekkan veitingastaður
Víðigerði Verslunin Víðigerði
Vík N1
Vopnafjörður N1
Þórshöfn N1
Allt sem þú þarft...
Hægt er að fá Fréttablaðið sent
frítt í tölvupósti á morgnana
eða nálgast það á Visir.is.
Patreksfjörður
Bakkafjörður
Hrísey
Grundarfjörður
Grundarfjörður Hrannarbúð
HANDBOLTI Haustið hefur verið
annasamt hjá handboltaþjálfaran-
um Degi Sigurðssyni. Hann er nú
á sínu fyrsta tímabili sem þjálf-
ari þýska úrvalsdeildarfélagsins
Füchse Berlín auk þess sem hann
hefur áfram sinnt starfi þjálfara
austurríska landsliðsins.
Austurríkismenn eru nú að und-
irbúa sig af fullum krafti fyrir
Evrópumeistaramótið í handbolta
sem haldið verður þar í landi í
janúar næstkomandi. Ísland er
einmitt með Austurríki í riðli þar
sem Dagur mun mæta mörgum af
sínum gömlu félögum í landslið-
inu.
„Jú, það hefur verið nóg að
gera,“ segir Dagur í léttum dúr.
„Það er líka spilað þétt þessa dag-
ana og því í nógu að snúast. Það
hefur gefist lítill tími fyrir lands-
liðið en ég var þó með liðið í heila
viku þegar við spiluðum á æfinga-
móti í Linz.“
Vann Serdarusic í fyrsta leik
Þar báru Austurríkismenn sigur
úr býtum og unnu til að mynda
sterkt lið Slóvena í fyrsta leik liðs-
ins undir stjórn Noka Serdarusic,
fyrrum þjálfara Kiel.
„Ég tel að liðið sé á ágætisróli.
Við eigum okkar vandamál eins
og öll önnur lið en helst er það að
við erum ekki með jafn sterkt lið
og önnur í okkar riðli. Markmiðið
er auðvitað að komast upp úr riðl-
inum en hvort það er raunhæft
get ég ekki fullyrt um. Austurríki
er með lakasta liðið á pappírnum
en á móti kemur að við verðum á
heimavelli og það getur vel unnið
með okkur,“ segir Dagur.
Upphaflega samdi Dagur um að
stýra liðinu fram yfir EM en þó
svo að því verkefni sé ekki lokið
vilja forráðamenn austurríska
handboltasambandsins halda Degi
sem landsliðsþjálfara.
Tímafrekt að þjálfa tvö lið
„Mér hefur verið boðið að halda
áfram með liðið og ég hef verið
svolítið að teygja lopann. Ég vil
sjá fyrst hvernig hlutirnir þróast
hér og hvort ég treysti mér til að
vera áfram með bæði lið áður en
ég svara. Það þekkist þó vel enda
er ég ekki sá eini sem gerir þetta í
þýsku úrvalsdeildinni. En þetta er
afar tímafrekt og einhvern tímann
verður maður að geta hlaðið batt-
eríin og tekið sér frí.“
Dagur segir að almenn ánægja
sé með gengi austurríska lands-
liðsins. „Þeir eru ánægður með
hvað það virðist vera góður brag-
ur á liðinu. Hingað til hefur aust-
urríska landsliðið ekki þótt merki-
legur pappír en við höfum verið að
standa í sterkum liðum þegar við
spilum vel og erum ef til vill örlít-
ið vanmetnir. En það þarf líka hafa
það í huga að við höfum bara verið
að spila æfingaleiki og allir mínir
leikmenn hafa enga reynslu af því
að spila á stórmótum. Ég veit vel
hvað það getur verið erfitt og mik-
ilvægt að menn séu með hausinn í
lagi í slíkum törnum.“
Hann á þó von á því að svara
Austurríkismönnum fyrir ára-
mót. „Það er svo sem ekkert stress
vegna málsins en ég á von á því að
fá símtal fljótlega þar sem ég verð
væntanlega krafinn um svar.“
Skrýtið að mæta æskufélögunum
Hinn 21. janúar næstkomandi
munu Austurríki og Ísland eigast
við á EM. Dagur getur ekki neitað
því að það verði sérstök upplifun
fyrir sig.
„Ég á marga góða vini í liðinu og
sumir þeirra eru æskuvinir, eins
og Ólafur [Stefánsson] og Óskar
Bjarni [Óskarsson, aðstoðarþjálf-
ari]. Ég ólst upp með þessum strák-
um og það verður sérkennilegt að
mæta þeim í þessum leik.“
En skyldi hann fá samvisku-
bit ef honum tekst að vinna sigur
á íslenska liðinu og jafnvel sjá til
þess að Ísland komist ekki áfram í
milliriðlakeppnina?
„Nei, það held ég ekki. Þetta
snýst fyrst og fremst um að vinna
leikina óháð því hver andstæðing-
urinn er og þeir komast áfram sem
eiga það skilið.“ eirikur@frettabladid.is
Austurríkismenn vilja halda
Degi sem landsliðsþjálfara
Degi Sigurðssyni hefur verið boðið að halda áfram sem landsliðsþjálfari Aust-
urríkis eftir að EM lýkur. Hann er einnig þjálfari Füchse Berlin í Þýskalandi.
Á HLIÐARLÍNUNNI Dagur Sigurðsson stýrir sínum mönnum í Füchse Berlín. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
FÓTBOLTI Breskir fjölmiðlar
greindu frá því í gærkvöldi að
Avram Grant yrði líklega form-
lega tilkynntur sem nýr knatt-
spyrnustjóri Portsmouth en Paul
Hart var sem kunnugt er rekinn
sem stjóri liðsins á þriðjudag. Um
innanbúðarskipti yrði að ræða
þar sem Grant var skipaður yfir-
maður knattspyrnumála hjá Port-
smouth í október. Þá hefur Hart
verið boðið að starfa áfram hjá
félaginu sem tæknilegur ráðgjafi
hjá unglingaliðum þess.
Darren Ferguson og Alan Cur-
bishley hafa einnig verið nefndir
til sögunnar í tengslum við stjóra-
stöðuna hjá Portsmouth en Grant
mun vera efstur á óskalista for-
ráðamanna félagsins.
Hinn 54 ára gamli Grant var
fyrst ráðinn yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá Portsmouth árið
2006 en stoppaði þá stutt við hjá
félaginu og tók við sama hlutverki
hjá Chelsea árið 2007. Grant tók
svo við knattspyrnustjórn Lund-
únafélagsins þegar José Mour-
inho hvarf á braut í september
árið 2007 og stýrði því alla leið
í úrslitaleik Meistaradeildarinn-
ar, til deildarbikarstitils og harðr-
ar titilbaráttu gegn Manchester
United í deildinni.
Grant er reyndar enn að bíða
eftir því að fá atvinnuleyfi á Eng-
landi en samkvæmt heimildum
BBC-fréttastofunnar ætti það að
geta gengið í gegn fyrir helgi. Á
laugardag fær Portsmouth Eng-
landsmeistara Manchester United
í heimsókn á Fratton Park.
Hermann Hreiðarsson leik-
ur sem kunnugt er með Port-
smouth en félagið er sem stendur
í botn sæti deildarinnar. - óþ
Portsmouth leitar líklega ekki langt yfir skammt til að finna eftirmann Harts:
Grant tekur líklega við liðinu
AVRAM GRANT Þykir líklegastur sam-
kvæmt breskum fjölmiðlum til þess að
taka við Portsmouth. NORDIC PHOTOS/AFP