Fréttablaðið - 26.11.2009, Side 52

Fréttablaðið - 26.11.2009, Side 52
36 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is ath. kl. 20. Þá verður uppákoma í tengslum við sýninguna André Kértész Frakkland – landið mitt / Ma France. Boðið verður upp á ljóðalestur og tónleika. Sigurður Pálsson rithöfundur les upp ljóð í anda sýningarinnar og svo verður boðið upp á tónleika harm- onikkutríósins Tríó Vadim Fedorov sem spilar franska musett- og vals- sveiflu í bland við heims- og djass- tónlist. Auk harmonikkuleikarans Vadims Fedorov er tríóið skipað þeim Gunnari Hilmarssyni gítarleik- ara og Leifi Gunnarssyni á kontra- bassa. > Ekki missa af Utan gátta eftir Sigurð Pálsson sem hefur reynst aðsóknar- drjúgt. Það eru aukasýningar í kvöld og á fimmtudag eftir viku. Þá verða sýningar orðnar 34 en þær fara fram í Kassa Þjóðleikhússins. ReykjavíkurAkademían efnir til síðdegis- umræðu í dag kl. 16 í húsnæði sínu við Hringbraut þar sem sérfræðingar halda áfram að bollaleggja um hvern hafi fyrstan rekið hingað norður. Lengi hefur staðið styr um kenningar sem verulega hafa hróflað við viðteknum hugmynd- um um upphaf landnáms á Íslandi. Þessar kenningar hafa verið settar fram á grunni aldursgreiningar á kolefni, svokallaðrar C14 aðferðar. Nýlega birtist grein í Skírni eftir Pál Theódórs- son eðlisfræðing þar sem hann heldur þessum hugmyndum á lofti og vakti hún nokkra athygli fjölmiðla og andmæli fræðimanna. Kenningar um landnám Íslands, upphaf þess og framvindu byggjast á samleik margra fræðigreina. Enn virðist þó ekki vera almenn samstaða um hvernig nota beri C14-aðferðina í þessu samhengi. Því blæs ReykjavíkurAkademían til umræðufundar um efnið í von um að bregða megi ljósi á vandann og leita leiða til að stilla saman krafta ólíkra fræðigreina. Þar mætir Páll Theódórsson eðlisfræðingur og held- ur erindi um kenningar sínar. Eftirtaldir bregðast stuttlega við erindi hans: Árný Sveinbjörnsdóttir jarðfræðingur, Kristján Mímisson fornleifafræð- ingur, Viðar Pálsson sagnfræð- ingur og Þorsteinn Vilhjálmsson, eðlisfræðingur og vísindasagnfræð- ingur. Eftir kaffihlé sitja frummæl- endur í pallborði og er vonast eftir líflegum og málefnalegum umæðum með þátttöku gesta. Ingólfur og fylgifiskar hans Annað kvöld er seinni skammturinn af dansverk- um á Djammviku Íslenska dansflokksins. Með Djamm- viku er Íslenski dansflokk- urinn að gefa nýjum höf- undum tækifæri til að vinna með flokknum og einnig er þetta vettvangur til að þróa og prófa nýja tækni og aðferðir við sköpunina. Listafólkið sem Íslenski dans- flokkurinn (ÍD) hefur fengið til liðs við sig og sýnir verk sín á morgun eru þau tvíeykið Stein- unn Ketilsdóttir og Brian Gerke, en þetta er í fyrsta sinn sem þau vinna með flokknum, og Peter Anderson, danshöfundur og dans- ari hjá flokknum, sem á eitt verk á dagskránni. Verkin kalla þau Brian Gerke og Steinunn Ketils- dóttir Heilabrot, Peter Anderson nefnir sitt Kjúklingur í sauða- gæru. Tvíeykið Brian Gerke og Stein- unn Ketilsdóttir hafa skapað og dansað saman síðan árið 2007 og hefur afrakstur þessa sam- starfs verið hnyttin og kaldhæð- in verk, oft á tíðum skemmtilega ýkt en samt persónuleg. Persón- urnar sem þau skapa eru fyndn- ar og kjánalegar á yfirborðinu, en þegar dýpra er kafað þá koma í ljós mannlegir brestir, hræðsla, óöryggi og einmanaleiki. Brian og Steinunn hafa undanfarin þrjú ár einvörðungu samið dúetta sem þau dansa í sjálf. Með verki sínu Heilabrot eru þau að taka skref í nýja átt þar sem þetta er í fyrsta sinn sem þau skapa verk fyrir aðra dansara og koma ekki sjálf fram. Kjúklingur í sauðargæru er nýjasta afurð Peters Anderson fyrir Íslenska dansflokkinn. Peter hefur verið fastráðinn dansari hjá ÍD frá 2001 en hann er fjölhæfur listamaður á sviði dans, myndlist- ar og kómedíu. Verk Peters eiga rætur sínar að rekja í dansleik- húsið og hafa einkennst af létt- leika og kaldhæðni en velta á sama tíma fram dýpri spurning- um. Umfjöllunarefnið að þessu sinni er „sársaukalaust grín“. Sýningar á dagskránum tveim- ur verða endurteknar 28. nóvem- ber. pbb@frettabladid.is Djammað meir í dansinum LISTDANS Frá æfingu á verki Steinunnar og Brians. MYND ÍD Auglýsingasími – Mest lesið Miðasala í síma 555 2222 og á midi.is Síðustu sýningar lau 28. nóv kl. 20 / sun 29. nóv kl. 20 / lau 5. des kl. 20 „skemmtileg sýning“ EB, Fréttablaðið, 5. okt. „mælum með sýningunni. Bæði til þess að hlæja, og til þess að finna til.“ Ynja.net í Hafnarfjarðarleikhúsinu FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK eftir Kristján Þórð Hrafnsson MEÐAL HÖFUNDA ERU: Matthías Johannessen Guðni Elísson Úlfhildur Dagsdóttir Jón Ólafsson Þorsteinn Antonsson Hermann Stefánsson Hallgrímur Helgason Kristín Eiríksdóttir Ritstjóri TMM er Guðmundur Andri Thorsson Nýtt hefti af Tímariti Máls og menningar er komið út

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.