Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 34
 26. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR ● LÍTILL OG LÁTLAUS EN ALLTAF Í TÍSKU Litli svarti kjóllinn er nauðsyn í klæða- skáp hverrar konu enda hægt að nota hann við öll tækifæri og tilefni. Hann passar með öllum mögulegum fylgihlutum, pinnahælum og strigaskóm, lopapeysu, perlufesti og galla- buxum og virkar alltaf eins og um glænýjan kjól sé að ræða. Hugmyndin um litla svarta kjól- inn kom frá Coco Chanel á þriðja áratug síðustu aldar sem hafði það í huga á krepputímum að finna flík sem ætti að vera endingargóð, látlaus og á góðu verði, höfða til allra kvenna og hlutlaus á litinn. Litli svarti kjóllinn ætti að uppfylla öll þessi skilyrði. Hinn klassíski litli, svarti kjóll er einfaldur í sniðinu og frekar stuttur, ekki mikið síðari en niður á hné. Og náttúrulega svartur. Önnur skilyrði þarf hann ekki að uppfylla til að geta orðið hinn fullkomni strigi við hvaða tilefni sem er. Og alltaf flottur. Tíðindi eru farin að berast úr tískuborgunum London, París og New York þess efnis að brúðarkjól- ar næsta árs verði margir litríkir, stuttir og undir áhrifum frá þriðja og sjötta áratug síðustu aldar. Oscar de la Renta og John Galli- ano eru sammála um að kjólarnir eigi að vera stuttir og gamaldags. Monique Lhuillier vill hafa sínar brúðarmeyjar hefðarlegar eins og á balli hjá sænsku hirðinni. Ant- íkhvítur, drapplitaður, himinblár, appelsínugulur og pastellitir hvers kyns, allt eru þetta litbrigði sem sjást á sýningarpöllum tískuborg- anna um þessar mundir. Þá eru kjólfaldar styttri en oft áður. Það er meðal annars rakið til þess að brúðarmeyjar vilja ekki draga pilsfaldinn á eftir sér og eiga um leið erfitt um vik með að hreyfa sig. Þær vilja frekar hafa brúðarkjólana hnésíða og vel að- sniðna og geta dansað í þeim fram á rauða nótt. Brúðarskór eiga að vera í sama stíl og kjóllinn, sérstaklega ef hann er stuttur. Séu blúndur á kjólnum eiga líka að vera blúndur á skónum og þar fram eftir götum. - nrg Hönnuðir horfa aftur til fortíðar Monique Lhuillier hefur kjólana sína íburðarmikla. Stuttir brúðarkjólar úr smiðju Oscars de la Renta. „Fyrir þessi jól leggja merkin okkar einna mesta áherslu á hinn hefðbundna „svarta kjól“ sem kemur í ýmsum útfærsl- um. Við bjóðum upp á mikið úrval af fallegu skarti sem hægt er að nota til að skreyta kjólana,“ segir Hólmfríður Ósk- arsdóttir, verslunarstjóri Evu á Laugavegi. Eva hefur verið á Laugavegi 89 síðan um aldamótin, en verslunin var stofnuð á fyrri hluta áttunda áratugarins. „Þetta er gömul og rótgróin verslun sem selur gæða- vöru,“ segir Hólmfríður. Hún segir svörtu kjólana eink- um vinsæla hjá konum sem vilja klæða sig upp fyrir jólin. „Efnin fyrir jólin eru mjúk og kvenleg, til að mynda silki, flauel, siffon og margir kjólanna eru með pallí- ettum og blúndu. Við erum að fá kjólana í öllum útfærslum, með stuttum og síðum ermum eða hlýrakjóla. Sniðin eru gjarn- an aðeins laus og síddin við hné. Einnig erum við með fallegt skart, til dæmis perlufestar og sem- elíufestar sem passa mjög vel við látlausu kjólana. Skórnir okkar eru kvenlegir, mikið af háum hælum, rúskinn er áberandi og einhverj- ir skreyttir steinum,“ segir Hólm- fríður. Þessa dagana er verslunin að fá inn auk kjólanna mikið af litl- um jökkum, pilsum, gollum og aukahlutum. „Þar koma litirnir meira við sögu,“ segir Hólmfríð- ur. „Silfur er vinsælt, einnig bleikt og grænt.“ Ásamt rótgrónu merkjunum í Evu, sem eru DKNY, Malene Birger og Gerard Darel, er einn- ig að finna ný merki frá Frakk- landi og Ítalíu á mjög fínu verði. „Í næstu viku kemur sending og þá lofa ég troðfullri búð af skóm, kjólum, toppum og pilsum,“ segir Hólmfríður. Svartir kjólar og skart Hólmfríður Óskarsdóttir verslunarstjóri og Inga Gottskálksdóttir sölumaður í Evu búa sig þessa dagana undir jólaösina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.