Fréttablaðið - 26.11.2009, Blaðsíða 6
6 26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Æskuminningar Flosa
stæðilegurt
úmor –
andi háð.
sta bók e
Flosa
fssonar.a
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
– fullt hús jólagjafa
Bílaapótek Hæðarsmára
Mjódd • Álftamýri
ALÞINGI. Kjararáð hefur ekki lokið
við að endurskoða launakjör í nein-
um þeirra ríkisstofnana og fyrir-
tækja sem falla undir úrskurðar-
vald ráðsins eftir lagabreytingu
á Alþingi í sumar. Breytingin var
gerð til að hrinda í framkvæmd
ákvæði stjórnarsáttmálans að
„engin ríkislaun verði hærri en
laun forsætisráðherra“.
Fram kom hjá Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra á Alþingi
í gær að þetta feli í sér að enginn
æðstu manna ríkisins, stofnana
þess og fyrirtækja hafi meira en
935.000 krónur í föst dagvinnu-
laun, nema forseti Íslands. Kjara-
ráð geti þó, eins og áður, ákveðið
að greiða aukaeiningar fyrir yfir-
vinnu og vaktaálag, til viðbótar við
föstu dagvinnulaunin.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, sagð-
ist telja að flestir hefðu talið að
með yfirlýsingum ríkisstjórnar-
innar í stjórnarsáttmálanum og við
lagabreytingarnar í sumar hefði
verið átt við að enginn af embætt-
ismönnum eða stjórnendum ríkis-
fyrirtækja fengi hærri heildarlaun
en forsætisráðherra.
Fram kom hjá Jóhönnu að flug-
menn Landhelgisgæslunnar séu
þeir einu sem taka laun samkvæmt
kjarasamningum, sem hafa meira
en 935.00 krónur í föst laun fyrir
dagvinnu. Aðrir ríkisstarfsmenn,
sem ekki eru settir undir Kjara-
ráð, geti einnig haft hærri heild-
arlaun en forsætisráðherra vegna
yfirvinnu, vaktaálags og fleiri
greiðslna.
Jóhanna sagði Kjararáð vinna
að endurskoðun kjaramála þeirra
stofnana og stjórnenda sem nýju
lögin ná yfir. „Endurskoðun sé
„misjafnlega á veg komin“ en sé
hvergi lokið.
„Ég hef alltaf furðað mig á því
að jafnaðarmenn allra landa hafi
ekki gripið inn í skattfrelsi utan-
ríkisþjónustunnar,“ sagði Pétur H.
Blöndal, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, í umræðunum á Alþingi í
gær, „og ekki bara skattfrelsi held-
ur líka dagpeninga og alls konar
undanþágur sem menn eru með“.
Pétur sagði að varpa ætti ljósi á
verðmæti lífeyrisréttinda, dagpen-
inga „en ekki bara líta á einhverja
krónutölu, sem laun hæstvirts for-
sætisráðherra“.
Jóhanna sagðist undrast ýmis
hlunnindi sem starfsmenn utan-
ríkisþjónustunnar njóta en að það
sneri að utanríkisráðherra frekar
en að sér að skoða það mál og hafa
á því skoðun. peturg@frettabaldid.is
Yfirvinna getur híft
menn yfir ráðherra
Endurskoðun launa æðstu manna stendur enn yfir. Kjararáð getur ákveðið að
greiða aukalega fyrir yfirvinnu og álag þannig að ríkislaun verði hærri en laun
forsætisráðherra. Flugmenn Gæslunnar eru einir með hærri laun í dagvinnu.
FORSÆTISRÁÐHERRA Jóhanna Sigurðardóttir sagði á Alþingi í gær að endurskoðun
á kjörum útvarpsstjóra, forstjóra Landsvirkjunar, seðlabankastjóra, forstjóra Landspít-
alans og fleiri standi nú yfir á vegum Kjararáðs. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
Ert þú með húðflúr á líkama
þínum?
Já 21,7%
Nei 78,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú réttmætt að fjölmiðlar
fái stuðning frá ríkinu?
Segðu skoðun þína á visir.is
EFNAHAGSMÁL Lánshæfismat
íslenska ríkisins mun að óbreyttu
geta haldist í svokölluðum fjárfest-
ingaflokki hjá matsfyrirtækjunum,
og sleppa við að lenda í áhættu-
flokki versni ástandið ekki. Þetta
kom fram í máli Más Guðmunds-
sonar seðlabankastjóra á fundi
Félags viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga á Grand hóteli í gær.
Már benti á að í nýjasta mati sem
erlent matsfyrirtæki hefur gefið út
eru horfur hér á landi sagðar stöð-
ugar. Út frá því megi búast við að
lánshæfismatið lækki ekki frekar
komi ekkert óvænt upp á.
Erlendir fjármagnsmarkaðir eru
enn lokaðir ríkinu og íslenskum
fyrirtækjum, en Már sagði Seðla-
bankann sjá vísbendingar um að
það gæti verið að breytast. Mögu-
lega muni slíkir markaðir brátt
opnast á ný, hugsanlega þegar líða
taki á næsta ár.
Aðstæður ættu að skapast
snemma á næsta ári fyrir því að
ríkið fari í öfluga kynningu á
landinu á erlendum mörkuðum,
sagði Már. Þá sé mögulegt að ríkið
ryðji leiðina á lánsfjármörkuðum
með því að taka lán til að auðvelda
íslenskum fyrirtækjum að fylgja í
kjölfarið.
Finnur Sveinbjörnsson, banka-
stjóri Arion, áður Nýja Kaupþings,
sagði mikilvægt fyrir íslensk fyrir-
tæki að erlendir lánsfjármarkaðir
opnist, og líklega muni það gerast í
nokkrum skrefum. Mikilvægt sé að
ríkið ryðji brautina, en engu aðsíð-
ur sé ljóst að kjörin verði „heldur
ömurleg“ til að byrja með. - bj
Erlendir fjármagnsmarkaðir enn lokaðir en margt bendir til þess að þeir opnist brátt segir seðlabankastjóri:
Ísland ekki í áhættuflokk að óbreyttu
Seðlabankinn áformar að draga á
lánaheimildir frá Norðurlöndunum
á næstunni, og mun féð vonandi
koma til landsins fyrir jól. Þetta kom
fram í máli Más Guðmundssonar
seðlabankastjóra á fundi FVH í gær.
„Fjármálaráðuneytið er aðal
lántakandinn, en ég get upplýst að
slík beiðni verður lögð inn einhvern-
tíman á næstu dögum,“ sagði Már í
samtali við Fréttablaðið eftir fund-
inn. Hægt væri að fá að hámarki
440 milljónir evra að láni á þessum
tímapunkti, sem jafngildir um 81
milljarði króna.
Már reiknar ekki með að óskað
verði eftir allri upphæðinni, en að
lágmarki verði 200 milljónir evra,
um 37 milljarðar króna, teknar að
láni nú.
Lánið verður notað til að styrkja
gjaldeyrisforðann.
FÁ LÁN FRÁ NORÐURLÖNDUM FYRIR JÓL
DÓMSMÁL Karlmaður um þrítugt hefur verið ákærð-
ur fyrir að kveikja í fatahrúgu innan dyra og
stökkva síðan út úr bíl sem hann ók að höfninni á
Hvammstanga, þannig að bíllinn rann út í sjó.
Maðurinn er ákærður fyrir að hafa kveikt í kjall-
araíbúð í þríbýlishúsi á Hvammstanga í febrúar.
Það gerði hann með því að leggja eld að fatnaði sem
lá ofan á rúmdýnu í svefnherbergi hans í íbúðinni.
Með því olli hann eldsvoða sem hafði í för með sér
almannahættu, verulegt eignatjón auk hættu á yfir-
gripsmikilli eyðingu eigna annarra hefði eldurinn
náð að breiðast út frekar áður en hann var slökktur
af slökkviliði, eins og segir í ákæru.
Jafnframt er maðurinn ákærður fyrir að hafa
tekið bíl traustataki og ekið honum undir áhrif-
um áfengis heiman að frá sér að hafnarsvæðinu og
stokkið þar á ferð út úr bifreiðinni sem rann áfram
og hafnaði í sjónum.
Vátryggingafélag Íslands gerir skaðabótakröfu á
hendur manninum að upphæð ríflega 4,5 milljónir
króna. - jss
Karlmaður um þrítugt fyrir dóm:
Kveikti í íbúð og setti bíl í sjóinn
HVAMMSTANGI Atvikin áttu sér stað á Hvammstanga í febrúar.
KJÖRKASSINN