Fréttablaðið - 26.11.2009, Síða 8
26. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Bræðraborgarstíg 9
„HÉR KVEÐUR
VIÐ NÝJAN TÓN!“
„Sannarlega ágætis byrjun og
það er erfitt að forðast frasann
að hér hafi bæst við nýr tónn
í íslenska spennusagnaflóru
... skemmtileg aflestrar.“
– Úlfhildur Dagsdóttir,
bokmenntir.is
„Bók sem erfitt er að leggja
frá sér. Hér kveður við nýjan
tón í íslensku glæpasagna-
hljómkviðunni.“
– Ármann Jakobsson,
íslenskufræðingur.
NeoStrata hú vörur
LEIÐIN FRAM Á VIÐ
– tækifæri í nýju efnahagsumhverfi
*
*
Kennarar og nemendur viðskiptadeildar verða á staðnum – tilbúnir að ræða um
nám, kennslu og rannsóknir við deildina. Kynntu þér grunnnám við viðskiptadeild
Háskólans í Reykjavík.
, lektor við viðskiptadeild, heldur erindi
í Háskólanum í Reykjavík um leiðina fram á við og þau tækifæri
sem gefast í nýju efnahagsumhverfi.
Í dag, fimmtudaginn .
Háskólinn í Reykjavík, Ofanleiti 2, 3. hæð.
ALLIR VELKOMNIR!
HEILBRIGÐISMÁL Allt niður í tólf ára
stúlkubörn hafa leitað á neyðar-
móttöku fyrir þolendur nauðgana
á Landspítala eftir að hafa verið
í partíum eða kynnst einhverjum
á Netinu. Þetta segir Eyrún Jóns-
dóttir, verkefnisstjóri Neyðarmót-
tökunnar.
„Þær kynnast gjarnan einhverj-
um gegnum skemmtanir, partí eða
Netið. Þótt þær séu sem betur fer
ekki margar svona ungar sem leita
til neyðarmóttöku þá er umgjörðin
oft sú sama. Gerendur lokka þær
til fylgilags við sig og misnota sér
aldur og þroskaleysi þeirra.“
Stærsti samanlagði hópurinn
sem leitar á neyðarmóttökuna er
tólf til átján ára og yngri, að sögn
Eyrúnar. Hann er rúmlega 30 pró-
sent af heildinni.
„Það er misjafnt milli ára hversu
margir á yngsta aldursbilinu koma
inn,“ segir Eyrún. „Þegar Netið
kom til sögunnar bættist enn ein
birtingarmyndin við. Það á ekki
einungis við um yngsta aldurshóp-
inn, heldur geta líka eldri konur
lent í sömu aðstæðum.“
Eyrún segir að hópnauðganir og
nauðganir á skemmtistöðum hafi
færst í vöxt á síðustu tveimur til
þremur árum.
„Hvað varðar hópnauðgan-
ir þá eru þær oftast skemmtana-
og áfengistengdar. Fólk er úti á
lífinu að skemmta sér og endar
í mismunandi aðstæðum, heima
hjá geranda, þolanda eða annars
staðar þegar brotið er framið. Um
þriðjungur brotaþola sem leita til
Neyðarmóttökunnar er í áfengis-
dái þegar brot er framið, sem er
auðvitað mjög alvarlegt. Oft eru
ýmis formerki um að það sé verið
að ná sér í fórnarlamb í málum
sem varða til dæmis hópnauðgan-
ir.“
Nauðganir á skemmtistöðum
segir Eyrún vera oftast á salern-
unum með þeim hætti að ruðst er
inn á konurnar og verknaðurinn
framinn.
Nokkrir þolendur mansals hafa
komið á neyðarmóttökuna síðast-
liðin ár.
„Hingað hafa komið konur sem
sendar hafa verið milli landa í kyn-
lífsánauð. Birtingarmyndir þessa
ofbeldis eru margar,“ segir Eyrún.
„Þá hafa komið hingað konur sem
óábyrgir makar hafa fengið hing-
að til lands á hæpnum forsendum
og haldið síðan í algjörri ánauð á
sínu heimili.“
Eyrún segir þolendur yfirleitt
koma á neyðarmóttöku fyrir til-
stilli samtaka sem konurnar hafi
leitað til eða á eigin vegum, til
dæmis vegna áverka og leita þá
meðal annars til slysa- og bráða-
deildar LSH. jss@frettabladid.is
12 ára á neyð-
armóttöku
eftir partí
Allt niður í tólf ára stúlkur leita til neyðarmóttöku
fyrir þolendur nauðgana eftir að hafa kynnst ein-
hverjum á Netinu eða verið í partíum. Gerendur
notfæra sér aldur og þroskaleysi ungra stúlkna.
NEYÐARMÓTTAKAN Eyrún Jónsdóttir, verkefnisstjóri Neyðarmóttökunnar, segir að
þegar Netið hafi komið til sögunnar hafi enn ein birtingarmynd kynferðisofbeldis
tekið við.
KOMUR Á NEYÐARMÓTTÖKU
ÁR FJÖLDI
2006 145
2007 136
2008 118
*2009 110
*ÞAÐ SEM AF ER ÁRI.
VIÐSKIPTI Kröfur sem lýst var
í þrotabú V & Þ hf. (áður Vélar
og þjónusta) námu rúmlega 1,3
milljörðum króna. 603,5 milljón-
ir króna fengust upp í kröfur, eða
45,9 prósent.
Búið var tekið til gjaldþrota-
skipta í septemberbyrjun 2004,
en þeim lauk 26. október síðast-
liðinn. Búskröfur upp á 31,2 millj-
ónir og forgangskröfur upp á 21,2
milljónir króna fengust greidd-
ar að fullu. 66,77 prósent fengust
upp í veðkröfur upp á 749,6 millj-
ónir og 10,13 prósent fengust upp
í almennar kröfur, 516,9 milljón-
ir króna.
Eftir gjaldþrotið 2004 ákváðu
lánardrottnar að endurreisa fyr-
irtækið. Hinn 16. október síðast-
liðinn seldi Kaupþing Rekstrarfé-
lagið Vélar og þjónustu til nýrra
eigenda. Starfsemin er á síðu
félagsins sögð óbreytt að sinni.
- óká
Kröfur námu 1,3 milljörðum:
603,5 milljónir
voru greiddar
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti ætlar að koma
við á loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Kaupmannahöfn áður
en hann heldur til Óslóar að taka
við friðarverðlaunum Nóbels.
Hann kemur til Kaupmanna-
hafnar 9. desember og ávarpar
ráðstefnuna, sem hefst 7. desem-
ber. Þar ætlar hann að greina frá
hvaða markmið Bandaríkin ætla
að setja sér í losun gróðurhúsaloft-
tegunda.
Mike Froman, ráðgjafi forset-
ans, segir að hann hafi ákveðið
að fara til Kaupmannahafnar til
þess að setja kraft í samninga-
viðræðurnar þar. Nú hafa leið-
togar 65 ríkja boðað komu sína
til Kaupmannahafnar, en flestir
þeirra ætla sér að vera þar undir
lok ráðstefnunnar, dagana 17. til
18. desember, þegar niðurstöður
viðræðnanna eru farnar að koma
í ljós.
Yvo de Boyer, framkvæmda-
stjóri loftslagsmála hjá Sameinuðu
þjóðunum, segir afar mikilvægt að
Obama láti sjá sig á ráðstefnunni.
Þetta verður önnur heimsókn
Bandaríkjaforseta til Kaupmanna-
hafnar síðan í haust. Í byrjun okt-
óber hélt hann þangað til að sann-
færa alþjóðaólympíunefndina um
að velja Chicago sem vettvang
sumarólympíuleikanna árið 2016,
en hafði þá ekki erindi sem erfiði.
- gb
Obama kemur við í Kaupmannahöfn á leiðinni á Nóbelshátíðina í Ósló:
Mætir á loftslagsráðstefnuna
BARACK OBAMA Ætlar að gera grein fyrir
áformum Bandaríkjanna í loftslagsmál-
efnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP